Fara í efni

Bæjarráð

683. fundur
12. október 2020 kl. 08:30 - 12:05
í fjarfundarbúnaði í Neskaupstað og á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Sigurður Ólafsson formaður
Pálína Margeirsdóttir varaformaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Rúnar Már Gunnarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Úttekt á skipulagi og rekstri 06 íþrótta- og æskulýðsmála
Málsnúmer 2007060
Framlögð skýrsla frá Ráðrík ehf. um íþróttamannvirki í Fjarðabyggð og tillögur um reksturs málaflokks íþróttamála.
Skýrslunni vísað til umfjöllunar í íþrótta- og tómstundanefnd og til sviðsstjóra fjölskyldusviðs til úrvinnslu.
2.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2021 - 2024
Málsnúmer 2005017
Farið yfir stöðu vinnu við fjárhagsáætlun 2021-2024. Lagðar fram spár um hagþróun frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Þjóðhagsstofnun auk minnisblaðs fjármálastjóra.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun 2021. Fjármálastjóra og bæjarstjóra falið að rýna reksturinn og niðurstöður úr tillögum nefndanna.
3.
Samningur um sölu eigna Rafveitu Reyðarfjarðar
Málsnúmer 1912136
Framlagðir samningar vegna kaupa Orkusölunnar á framleiðsluhluta í samræmi við kaupsamning frá 18. desember 2019.
Bæjarráð samþykkir samninga og felur bæjarstjóra undirritun gagna vegna sölu eignarinnar.
4.
Kauptilboð í Nesbakka 21 2. hæð 5-6 herb Neskaupstað
Málsnúmer 2010008
Framlagt gagntilboð vegna sölu á Nesbakka 21, 2. hæð í Neskaupstað.
Bæjarráð samþykkir gagntilboðið og felur bæjarstjóra að undirrita skjöl vegna sölu eignarinnar.
5.
Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2021
Málsnúmer 2005025
Farið yfir fjárheimildir í einstökum málaflokkum, slökkviliðsstjóri sat þennan lið fundarins. Vísað til áframhaldandi vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.
6.
Ofanflóðavarnir á Eskifirði - Lambeyrará
Málsnúmer 1702150
Framlagt erindi frá Framkvæmdasýslu ríkisins um útboð 21261, Ofanflóðavarnir Eskifirði - Lambeyrará. Tillaga Framkvæmdasýslunnar er að niðurstaða viðræðna um samningskaup verði tekið. Jafnframt lagt fram bréf frá Ofanflóðasjóði um töku tilboðs.
Bæjarráð samþykkir að tilboðinu verði tekið.
7.
Ástand íbúðar
Málsnúmer 2010032
Lagðar fram upplýsingar um mat á stöðu húsnæðisins að Sólheimum 3 í Breiðdal.
Bæjarráð samþykkir að ekki séu forsendur fyrir því að leigja íbúðina í því ástandi sem hún er og leigusamningi er því sagt upp. Húsnæði verði sett í framhaldi í sölu í því ástandi sem það er.
8.
Svæðisskipulag fyrir Austurland
Málsnúmer 1602151
Bréf Skipulagsstofnunar frá 5.október sl., til svæðisskipulagsnefndar Austurlands, er varðar gerð svæðisskipulags fyrir Austurland í ljósi breyttra aðstæðna eftir sameiningu sveitarfélaga á Austurlandi.
Skipulagsstofnun hefur að hluta til hafnað að greiða kostnaðarframlag úr skipulagssjóði á þeim forsendum að skipa þurfi nýja svæðisskipulagsnefnd og hefja skipulagsferli að nýju.
Lagt fram til kynningar.
9.
750 Stekkholt 10 - Umsókn um lóð
Málsnúmer 2009170
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn Róberts Óskars Sigurvaldasonar og Grétars Helga Geirssonar, dagsettri 18. september 2020, þar sem sótt er um lóðina við Stekkholt 10 á Fáskrúðsfirði undir parhús sem sambyggt yrði húsi á lóðinni við Stekkholt 8.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur auk þess samþykkt að gerð sé óveruleg breyting á deiliskipulagi þannig að gert verði ráð fyrir parhúsi á lóðunum.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
10.
750 Stekkholt 8 - Umsókn um lóð
Málsnúmer 2009169
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn Róberts Óskars Sigurvaldasonar og Grétars Helga Geirssonar þar sem sótt er um lóðina við Stekkholt 8 á Fáskrúðsfirði undir parhús sem sambyggt yrði húsi á lóðinni við Stekkholt 10.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur auk þess samþykkt að gerð sé óveruleg breyting á deiliskipulagi þannig að gert verði ráð fyrir parhúsi á lóðunum.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
11.
Aðalfundur Heilbrigðiseftilits Austurlands 28.október 2020
Málsnúmer 2010039
Aðalfundur Heilbrigðiseftirlits Austurlands verður haldinn miðvikudaginn 28. október nk. á Borgarfirði Eystri eða í fjarfundi ef aðstæður krefjast.
Bæjarráð felur Jóni Birni Hákonarsyni bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.
12.
Nefndaskipan Miðflokksins
Málsnúmer 1909045
Breyting á nefndaskipan Miðflokksins í menningar- og nýsköpunarnefnd.
Magnea María Jónudóttir tekur sæti aðalmanns í menningar- og nýsköpunarnefnd og Anna Þórhildur Kristmundsdóttir tekur sæti varamanns í nefndinni.
13.
Vatnstjón á Eyrarstíg 1
Málsnúmer 1801118
Farið yfir stöðu málsins.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu og bæjarráð mun skoða gögn frekar fyrir næsta fund.
14.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 271
Málsnúmer 2009025F
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 5. október sl. lögð fram til afgreiðslu.
14.1 Ofanflóðavarnir á Eskifirði - Grjótá
14.2 Gjaldskrá hitaveitu Fjarðabyggðar 2021
14.3 Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2021
14.4 Gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Fjarðabyggð 2021
14.5 Gjaldskrá fráveitu Fjarðabyggðar 2021
14.6 Gjaldskrá vatnsveitu Fjarðabyggðar 2021
14.7 Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 2021
14.8 Gjaldskrá gatnagerðagjalda í Fjarðabyggð 2021
14.9 Gjaldskrá fjarvarmaveitu 2021
14.10 Gjaldskrá félagsheimila 2021
14.11 Framkvæmda- og viðhaldsáætlun 2020
14.12 Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar 2021
14.13 Biðskýli við Valhöll
14.14 730 Hraun 9a - Umsókn byggingarleyfi, vakthús
14.15 730 Óseyri 1 - Umsókn um byggingarleyfi, breyting utanhúss og fjölgun eignarhluta
14.16 740 Egilsbraut 6 - Umsókn byggingarleyfi, milligólf
14.17 740 Nesgata 5 - Byggingarleyfi, breytt notkun
14.18 750 Stekkholt 8 - Umsókn um lóð
14.19 750 Stekkholt 10 - Umsókn um lóð
14.20 740 Hlíðargata 21 - Umsókn um stækkun lóðar
14.21 750 Stekkholt 15 - Umsókn um stækkun lóðar
14.22 Ábending lögreglu vegna umferðaröryggis
15.
Fræðslunefnd - 90
Málsnúmer 2010003F
Fundargerð fræðslunefndar frá 7. október sl. lögð fram til afgreiðslu
15.1 Gjaldskrá tónlistarskóla 2021
15.2 Gjaldskrá skólamats í grunnskólum 2021
15.3 Gjaldskrá grunnskóla 2021
15.4 Gjaldskrá leikskóla 2021
15.5 Gjaldskrá skóladagheimila 2021
15.6 Leikskólamál
15.7 Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2021
16.
Hafnarstjórn - 250
Málsnúmer 2010002F
Fundargerð hafnarstjórnar frá 6. október sl. lögð fram til afgreiðslu
16.1 Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnarstjórnar 2021
16.2 Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2021
16.3 Skemmdir á Hafskipabryggju á Eskifirði
16.4 Eskifjarðarhöfn - stækkun
16.5 Umhverfismat fyrir efnistökusvæði í Norðfjarðarflóa og innfjörðum
16.6 Rampur fyrir litla seglbáta og kajaka
16.7 Ástandsskoðun á Rex NS 3
16.8 Spennistöð á Mjóeyrarhöfn
16.9 Ný þjónustumiðstöð - Norðfjörður
16.10 Smábátahöfn Breiðdalsvík - stækkun
16.11 Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 2020
16.12 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2020
16.13 Eskifjarðarhöfn - stækkun
17.
Barnaverndarfundargerðir 2020
Málsnúmer 2003129
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 119, 120 og 121, lagðar fram til upplýsinga.