Fara í efni

Bæjarráð

698. fundur
1. febrúar 2021 kl. 08:30 - 10:45
í Safnaðarheimilinu á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Sigurður Ólafsson formaður
Pálína Margeirsdóttir varaformaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Rúnar Már Gunnarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Framkvæmda- og viðhaldsáætlun 2020
Málsnúmer 2001149
Farið yfir stöðu framkvæmda- og viðhaldsverkefna á árinu 2020 með tilliti til áætlana.
2.
Skammtímafjármögnun Fjarðabyggðar 2021
Málsnúmer 2101116
Heimild til yfirdráttar að fjárhæð 300 milljónir króna hjá Íslandsbanka rennur út þann 5. febrúar 2021. Lagt er til að bæjarráð samþykki nýjan skammtímalánasamning við Íslandsbanka með allt að 400 milljón króna yfirdráttarheimild og samningurinn gildi til 5. febrúar 2022. Um er að ræða varúðarráðstöfun sem hluta af skammtímafjármögnun sveitarfélagsins.
Bæjarráð heimilar framlengingu á yfirdrætti og hann hækki í 400 m.kr. Endanlegri staðfestingu vísað til bæjarstjórnar.
3.
Íbúðarhúsnæði í Fjarðabyggð
Málsnúmer 2003158
Umræðu um húsnæðismál og málefni Hrafnhóls fram haldið. Lögð fram endurbætt drög að samningi við félagið.
Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.
4.
Forkaupsréttur að Beljanda SU306 nr. 2298
Málsnúmer 2101224
Lögð fram beiðni Guðjóns Guðmundssonar skipasala um að Fjarðabyggð nýti ekki forkaupsrétt að Beljanda SU-306 sem er í eigu Gullrúnar ehf. í Breiðdal. Báturinn er seldur án allra veiðiheimilda sama hvaða nafni þær kunna að nefnast.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leiti að nýta ekki forkaupsrétt að skipinu og vísar beiðni til staðfestingar bæjarstjórnar.
5.
Samningur vegna rekstur tjaldsvæðis á Breiðdalsvík
Málsnúmer 2101234
Fram lögð drög að samningi vegna reksturs tjaldsvæðisins í Breiðdal. Samningurinn er sambærilegur samningum um útvistun annarra tjaldsvæða Fjarðabyggðar. Gert er ráð fyrir að samningurinn verði til eins árs.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans. Samningi jafnframt vísað til kynningar í menningar- og nýsköpunarnefnd.
6.
369.mál til umsagnar frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð
Málsnúmer 2012093
Umsögn sambandsins lögð fram til kynningar.
7.
378.mál - Frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum og lögum um tekjustofna sveitarfélaga (lágmarksíbúafjöldi sveitarfélags)
Málsnúmer 2101213
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum og lögum um tekjustofna sveitarfélaga (lágmarksíbúafjöldi sveitarfélags), 378. mál. Umsagnarfrestur er til 18. febrúar nk.
Vísað til bæjarstjóra og bæjarritara.
8.
Niðurrif bragga á Eskifirði - undirskriftalisti
Málsnúmer 2101178
Lagður fram undirskriftalisti er varðar bragga á Eskifirði.
9.
Hafnarstjórn - 256
Málsnúmer 2101018F
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 256 frá 26. janúar, lögð fram til afgreiðslu.
9.1 Erindi vegna áforma um innheimtu vörugjalds
9.2 Deiliskipulag, Eskifjörður-Útkaupstaður
9.3 Aðgangskerfi og myndavélar á Mjóeyrarhöfn
9.4 Eskifjarðarhöfn - stækkun
9.5 Fóðurprammi sekkur við Gripalda
9.6 Drangur sekkur í Stöðvarfjarðarhöfn
9.7 Umsókn um leitar- og rannsóknarleyfi í Reyðarfirði
9.8 418. mál - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (atvinnu- og byggðakvótar o.fl.)
9.9 419.mál - Frumvarp til laga breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu, sandkola og hryggleysingja)
10.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 83
Málsnúmer 2101017F
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar nr. 83 frá 25. janúar, lögð fram til afgreiðslu.
10.1 Íþróttamaður Fjarðabyggðar
10.2 Fundaáætlun íþrótta- og tómstundanefndar vor 2021
10.3 Oddsskarð 2021
10.4 354.mál til umsagnar frumvarp til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna,
11.
Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 20
Málsnúmer 2101014F
Fundargerð framkvæmdaráðs hjúkrunarheimilanna nr. 20 frá 25. janúar, lögð fram til afgreiðslu.
11.1 Uppsögn á samningum um rekstur Hulduhlíðar og Uppsala 2020-2021
11.2 Breyting á reglugerð 466/2012 um færnis- og heilsumat vegna dalar- og hjúkrunarrýma
11.3 Rekstur hjúkrunarheimila og Covid 19
11.4 Rekstur hjúkrunarheimila 2020
12.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 280
Málsnúmer 2101016F
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 280 frá 25. janúar, lögð fram til afgreiðslu.
12.1 Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027
12.2 735 Strandgata 55 - Umsókn um byggingarleyfi, breytt notkun, íbúð
12.3 735 Strandgata 98b - Fyrirspurn um framtíðaráform