Fara í efni

Bæjarráð

708. fundur
19. apríl 2021 kl. 08:30 - 10:00
í fjarfundi vegna COVID19
Nefndarmenn
Sigurður Ólafsson formaður
Pálína Margeirsdóttir varaformaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Rúnar Már Gunnarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Rekstur málaflokka 2021 - TRÚNAÐARMÁL
Málsnúmer 2104079
Framlagt sem trúnaðarmál yfirlit um rekstur málaflokka og framkvæmdir fyrir janúar - febrúar 2021, skatttekjur og launakostnað fyrir janúar - mars 2021.
2.
Rekstur málaflokka 2020 TRÚNAÐARMÁL
Málsnúmer 2004074
Framlagt til upplýsinga deildayfirlit fyrir rekstur deilda og málaflokka í sveitarsjóði á árinu 2020.
3.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2022-2025
Málsnúmer 2104074
Framlögð tillaga að reglum um gerð fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2022 og 3ja ára áætlun áranna 2023-2025.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
4.
Fiskeldi í Viðfirði og Hellisfirði
Málsnúmer 2006076
Framlagt til kynningar bréf atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins frá 14. apríl, er varðar fiskeldi í Viðfirði og Hellisfirði.
5.
Áform um gerð burðarþolsmats og eldissvæðaskiptingu í Mjóafirði
Málsnúmer 2104070
Lagt fram til kynningar bréf atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins til svæðisráðs um skipulag haf- og strandsvæða, þar sem tilkynnt er að óskað hafi verið eftir við Hafrannsóknastofnun að hún framkvæmi burðarþolsmat fyrir Mjóafjörð í tengslum við fiskeldi í firðinum. Fjarðabyggð hefur áður hvatt til þess að Mjóifjörður verði settur í útboð til fiskeldis og styður áform ráðuneytisins.
6.
Breyting á reglugerð um kjör íþróttamann ársins 2021
Málsnúmer 2103096
Vísað frá bæjarstjórn til umfjöllunar bæjarráðs drögum að breytingum á reglugerð um kjör íþróttamanns Fjarðabyggðar.
Pálína Margeirsdóttir formaður íþrótta- og tómstundanefndar óskaði eftir að taka erindi að nýju upp í nefndinni.
Viðhengi
Minnisblað
7.
Sumaropnun í bókasöfnum Fjarðabyggðar - 2020 og 2021
Málsnúmer 1911151
Framlagt bréf frá forstöðumönnum bókasafna í Fjarðabyggð varðandi sumaropnun bókasafnanna.
Bæjarráð vísar erindi til skoðunar forstöðumanns safnastofnunar og bæjarritara til úrlausnar, þannig að bókasöfnin verði opin með sama fyrirkomulagi og síðasta sumar.
8.
Aðalfundur samtaka atvinnulífsins 2021
Málsnúmer 2104065
Framlagt til kynningar aðalfundarboð Samtaka atvinnulífsins sem fer fram miðvikudaginn 12. maí næstkomandi.
9.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 286
Málsnúmer 2104006F
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 286 frá 12. apríl, lögð fram til afgreiðslu.
9.1 740 Þiljuvellir 4 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
9.2 740 Strandgata 77 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
9.3 740 Naustahvammur 19 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
9.4 760 Sólvellir 21 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
9.5 730 Heiðarvegur 7 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
9.6 750 Hafnargata 1 - Umsókn um byggingarleyfi, hækkun hluta þaks verksmiðjuhús
9.7 760 Selnes 7 - Umsókn um byggingarleyfi, rífa hús
9.8 735 Strandgata 43 - Umsókn um byggingarleyfi, bílskúr
9.9 750 Stekkholt 8-10 - Umsókn um byggingarleyfi, parhús
9.10 735 Strandgata 88 - Umsókn byggingarleyfi, einbýlishús
9.11 750 Hafnargata 23 - Framkvæmdaleyfi, fylling
9.12 Íþróttahús Reyðarfirði - nýbygging 2021
9.13 Garðaúrgangur
9.14 Sauðfé í þéttbýli - úrræði
9.15 Fjárréttir í Fjarðabyggð
9.16 Friðlýsing Gerpissvæðisins
9.17 Hönnun á lóð við Íslenska stríðsárasafnið, Reyðarfirði
9.18 Umsókn vegna uppsetningar á varanlegum skúlptúr á Stöðvarfirði
9.19 Skýrsla Byggðastofnunar um samanburð á orkukostnaði heimila árið 2020
9.20 22. Ársfundur Umhverfisstofnunar,náttúrverndarnefnda sveitarfélaga og náttúrustofa 2021
9.21 730 Hjallanes 8 - Umsókn um byggingarleyfi, milligólf
9.22 Landbúnaðarnefnd - 27
10.
Landbúnaðarnefnd - 27
Málsnúmer 2103022F
Fundargerð landbúnaðarnefndar, nr. 27 frá 7. apríl, lögð fram til afgreiðslu.
10.1 Sauðfé í þéttbýli - úrræði
10.2 Fjárréttir í Fjarðabyggð
10.3 Fjallskil og gangnaboð 2021
10.4 Varnarlínur í Fjarðabyggð
11.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 87
Málsnúmer 2104005F
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 87 frá 12. apríl, lögð fram til afgreiðslu.
11.1 Endurskoðun styrkjamála til íþróttafélaga 2021
11.2 Börn af erlendum uppruna og íþróttir bæklingur
11.3 Viðhorfskönnun landshlutasamtaka sveitarfélaga
11.4 Íþróttamál Breiðdalsvík
11.5 Almenningssamgöngur í Fjarðabyggð
12.
Barnaverndarnefnd 2021
Málsnúmer 2101080
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 129 frá 15. apríl, lögð fram til afgreiðslu.