Fara í efni

Bæjarráð

712. fundur
31. maí 2021 kl. 08:30 - 09:30
í fjarfundi vegna COVID19
Nefndarmenn
Sigurður Ólafsson formaður
Pálína Margeirsdóttir varaformaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Rúnar Már Gunnarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2022
Málsnúmer 2104135
Farið yfir undirbúning vegna fjárhagsáætlunar 2022 fyrir málaflokka sem heyra undir bæjarráð, slökkvilið, sameiginlegan kostnað, atvinnumál og fjármagnsliði.
Tekið fyrir að nýju í bæjarráði.
2.
Ósk um lækkun eða niðurfellingu á gjaldi vegna lagningar ljósleiðara að býlinu Stöð.
Málsnúmer 2105139
Framlagt bréf Hansínu H. Jóhannesdóttur þar sem óskað er lækkunar á gjaldi vegna lagningar ljósleiðara að býlinu Stöð í Stöðvarfirði.
Vísað til skoðunar bæjarstjóra og bæjarritara.
3.
Gjaldskrár vatnsveitna og fjármagnskostnaður
Málsnúmer 1911079
Lagt fram bréf frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu um álagningu vatnsgjalda og formlega umfjöllun um gjaldskrár vatnsveitna.
Vísað til fjármálastjóra til svara og bæjarráðs að nýju til umfjöllunar.
4.
Nýtt skipulag almannavarna í maí 2021
Málsnúmer 2105157
Lagt fram bréf Lögreglustjórans á Austurlandi er varðar nýtt skipulag almannavarna. Óskað er eftir tilnefningum á aðal- og varamanni í vinnuhóp Fjarðabyggðar fyrir 15. júní nk.
Bæjarráð frestar afgreiðslu og felur bæjarstjóra málið til skoðunar.
5.
735 Sigmundarhús - Umsókn um lóð undir spennistöð
Málsnúmer 2105116
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs, stofnun lóðar undir spennistöð í landi Sigmundarhúsa. Fyrirhugað er að rafvæða með landtengingu sjókvíar fyrirtækisins úti fyrir ströndinni, sbr. bréf Laxa Fiskeldis ehf., dagsett 26. mars 2020.
Bæjarráð samþykkir að lóð í landi Sigmundarhúsa verði stofnuð og felur umhverfis- og skipulagssviði að vinna að stofnun lóðarinnar.
6.
Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts 2021
Málsnúmer 2105179
Framlagt bréf Listasmiðju Norðfjarðar þar sem sótt er um styrk til geiðslu faseignaskatts vegna Þiljuvalla 11 í Neskaupstað í samræmi við reglur Fjarðabyggðar um styrkveitingar til greiðslu fasteignaskatts.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk samkvæmt reglum.
7.
Aðalfundur Sambands sveitarfélaga Austurlandi 2021
Málsnúmer 2105108
Framlagt yfirlit yfir dagskrá aðalfundar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi og ársfundar Austurbrúar 3. júní nk.
8.
Menningar- og nýsköpunarnefnd - 38
Málsnúmer 2105008F
Framlögð fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 17. maí sl. til afgreiðslu.
8.1 Starfshópur um nýsköpun og atvinnuþróun
8.2 Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2022
8.3 Tjaldsvæði Fjarðabyggðar sumarið 2021
8.4 Útgáfa á sögu Fáskrúðsfjarðar
8.5 Sumaropnun í bókasöfnum Fjarðabyggðar - 2020 og 2021
8.6 Hernámsdagurinn 2021
8.7 Endurnýjun búnaðar bókasafna
8.8 Tónaflug 2021 samningur og fleira
9.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 289
Málsnúmer 2105012F
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 25. maí sl. lögð fram til afgreiðslu.
9.1 Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027
9.2 Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar 2022
9.3 730 Mánagata 23 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
9.4 740 Hafnarbraut 4 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
9.5 740 Miðstræti 24 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
9.6 740 Urðarteigur 22 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
9.7 740 Miðgarður 14 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
9.8 740 Urðarteigur 8 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
9.9 740 Nesgata 29 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
9.10 740 Strandgata 6 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
9.11 750 Skólavegur 58 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
9.12 740 Naustavegur 8 - Umsókn um stöðuleyfi
9.13 735 Sigmundarhús - Umsókn um lóð undir spennistöð
9.14 760 Randversstaðir, Þorgrímsstaðir - Framkvæmdaleyfi, efnistaka
9.15 740 Naustahvammur 67 - Umsókn um byggingarleyfi, viðbygging við fiskimjölsverksmiðju
9.16 740 Hafnarbraut 20 - Umsókn byggingarleyfi, breytt notkun
9.17 Skýrsla Eflu vegna myglutjóns í Breiðablik
9.18 Óskað er umsagna hagaðila. Landgræðsluáætlun 2021-2031 og umhverfismat áætlunarinnar
9.19 Fjárréttir í Fjarðabyggð
9.20 Bonn-áskorunin
9.21 Landsáætlun í skógrækt, kynning á drögum að umhverfismati áætlunarinnar
9.22 Vöktunarverkefni GroLind
10.
Hafnarstjórn - 263
Málsnúmer 2105013F
Fundargerð hafnarstjórnar frá 28. maí sl. lögð fram til afgreiðslu.
10.1 Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2022
10.2 Ný þjónustumiðstöð - Fáskrúðsfjörður
10.3 Erindi vegna áforma um innheimtu vörugjalds
10.4 Bréf vegna umskipunar olíu á hafi innan hafnarsvæða og óhafntengdrar þjónustu við fiskeldi
10.5 640. mál - Atvinnuveganefnd Alþingis umsögn tillögu til þingsályktunar um endurskoðun á laga- og reglugerðarumhverfi sjókvíaeldis, 640. mál
10.6 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2021
10.7 Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 2021
10.8 Ósk um styrk vegna kaupa á björgunarbáti
10.9 Beiðni um styrk vegna Sjómannadagsins á Eskifirði 2021
11.
Barnaverndarnefnd 2021
Málsnúmer 2101080
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 130 frá 26. maí sl. lögð fram til afgreiðslu.