Fara í efni

Bæjarráð

744. fundur
28. febrúar 2022 kl. 08:30 - 11:00
í Molanum fundarherbergi 3
Nefndarmenn
Sigurður Ólafsson formaður
Pálína Margeirsdóttir varaformaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Rúnar Már Gunnarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Snorri Styrkársson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Rekstur málaflokka 2021 - TRÚNAÐARMÁL
Málsnúmer 2104079
Framlagt sem trúnaðarmál yfirlit yfir rekstur málaflokka, launakostnað og fjárfestingaryfirlit ásamt deildayfirliti fyrir allt árið 2021.
2.
Ársreikningur Fjarðabyggðar árið 2021
Málsnúmer 2202017
Lagt fram minnisblað frá hagdeild Sambands íslenskra sveitarfélaga um hækkun lífeyrisskuldbindinga á árinu 2021.
3.
Almennt eftirlit með fjármálum sveitarfélaga á árinu 2022
Málsnúmer 2202172
Lagt fram til kynningar bréf Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga þar sem kynntar eru áherslur nefndarinnar á árinu 2022 um eftirlit með fjármálum sveitarfélaga.
4.
Fyrirspurnir Ragnars Sigurðssonar
Málsnúmer 2202113
Lögð fram svör við fyrirspurnum Ragnars Sigurðssonar.
5.
Dalborg, hönnun á viðbyggingu
Málsnúmer 2002039
Lögð fram fundargerð frá opnun tilboða í viðbyggingu leikskólans Dalborgar en þrír aðilar gera tilboð í verkið í 7 tilboðum.
Bæjarráð vísar tilboðum til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og felur framkvæmdasviði að yfirfara tilboðin og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
6.
Borkjarnasafnið í Breiðdal
Málsnúmer 2110034
Framlagt bréf Náttúrufræðistofnunar Íslands um viðhald á húsnæði borkjarnasafns Náttúrufræðistofnunar Íslands í Breiðdal.
Bæjarstjóra falið að ræða við Náttúrufræðistofnun.
7.
Beiðni um samstarf vegna umsóknar til Byggðastofnunar vegna sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða
Málsnúmer 2202150
Framlögð tillaga um samstarf Fjarðabyggðar og Austurbrúar vegna umsóknar til Byggðastofnunar vegna sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða.
Bæjarráð samþykkir þátttöku í verkefninu og felur atvinnu- og þróunarstjóra að vera tengiliður sveitarfélagsins við verkefnið.
8.
332. mál til umsagna um vernd og orkunýtingu landsvæða
Málsnúmer 2202119
Lögð fram drög að umsögn atvinnu- og þróunarstjóra um þingsályktunartillögu um vernd og orkunýtingu landsvæða.
9.
Fiskeldissjóður - umsóknir 2022
Málsnúmer 2202187
Bæjarstjóri og atvinnu- og þróunarstjóri kynntu auglýsingu Fiskeldsissjóðs fyrir árið 2022 um úthlutun styrkja til uppbyggingar innviða þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað.
10.
Drög að frumvarpi um bann við olíuleit og olíuvinnslu til kynningar í samráðsgátt
Málsnúmer 2202152
Lögð fram tillaga að umsögn vegna frumvarps um bann við olíuleit og olívinnslu í Íslenskri efnahagslögsögu.
11.
349. mál til umsagnar um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða
Málsnúmer 2202196
Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn sandkola og hryggleysingja), 349. mál.
Atvinnu- og þróunarstjóra falið að veita umsögn.
12.
Forvarna- og öryggisnefnd erindisbréf og fundargerðir
Málsnúmer 2110173
Fundargerð forvarnar- og öryggisnefndar frá 24. febrúar, lögð fram til kynningar.
13.
Afnot af húsnæði í eigu sveitarfélagsins
Málsnúmer 2104113
Umræða um afnot stjórnmálaflokka af húsnæði í eigu sveitarfélagsins.
Vísað til bæjarstjóra og bæjarritara að uppfæra reglur sveitarfélagsins sem fjalla um framlög til stjórnmálasamtaka sem bjóða fram til sveitarstjórnarkosninga.
14.
Barnaverndarlög og barnaverndarþjónusta 2022
Málsnúmer 2110125
Ráðherra mennta- og barnamála hefur samþykkt að fresta gildistöku barnaverndarlaga til haustsins. Jafnframt verður skipaður starfshópur með aðkomu ráðuneytisins og Barna- og fjölskyldustofu sem leggur fram tillögur að skipan barnaverndarþjónustu og umdæmisráða.
Vísað til fjölskyldusviðs.
15.
760 Ásvegur 16 - Umsókn um lóð
Málsnúmer 2202138
Vísað frá eigna-, skipulags- umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn þar sem sótt er um lóðina við Ásveg 16 á Breiðdalsvík undir einbýlishús. Svæðið er ódeiliskipulagt. Samkvæmt aðalskipulagi er umrætt svæði innan skilgreindrar íbúðabyggðar þar sem gert er ráð fyrir nýbyggingum sem falla að nýtingu, yfirbragði og þéttleika núverandi byggðar.
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.
16.
760 Ásvegur 30 - Umsókn um lóð
Málsnúmer 2202137
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn um lóðina við Ásveg 30 á Breiðdalsvík undir einbýlishús. Svæðið er ódeiliskipulagt. Samkvæmt aðalskipulagi er umrætt svæði innan skilgreindrar íbúðabyggðar þar sem gert er ráð fyrir nýbyggingum sem falla að nýtingu, yfirbragði og þéttleika núverandi byggðar.
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.
17.
740 Blómsturvellir 51 - Umsókn um lóð
Málsnúmer 2201193
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn þar sem sótt er um lóðina við Blómsturvelli 51 á Norðfirði undir einbýlishús. Svæðið er ódeiliskipulagt. Samkvæmt aðalskipulagi er umrætt svæði innan skilgreindrar íbúðabyggðar þar sem gert er ráð fyrir nýbyggingum sem falla að nýtingu, yfirbragði og þéttleika núverandi byggðar.
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.
18.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 306
Málsnúmer 2202011F
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 24. febrúar lögð fram til afgreiðslu.
18.1 Græn Skref Fjb.
18.2 Deiliskipulag Hlíðarenda - breyting, safnasvæði
18.3 735 Strandgata 52 - Umsókn um byggingarleyfi, viðbygging
18.4 740 Blómsturvellir 51 - Umsókn um lóð
18.5 740 Leiruvegur - Umsókn um lóð við smábátahöfn
18.6 760 Ásvegur 30 - Umsókn um lóð
18.7 760 Ásvegur 16 - Umsókn um lóð
18.8 750 Hlíðargata 20 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
18.9 750 Hlíðargata 40 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
18.10 750 Hafnargata - Kæra vegna útgáfu byggingarleyfis
18.11 Göngu- og hjólastígur á milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar
18.12 Ókyngreindir búningsklefar og salerni í íþróttamannvirkjum Fjarðabyggðar
19.
Hafnarstjórn - 274
Málsnúmer 2202013F
Fundargerð hafnarstjórnar frá 22. febrúar lögð fram til afgreiðslu.
19.1 Verkefni hafnarsjóðs
19.2 Hafnargjöld fyrir eldri borgara
19.3 Umsókn um styrk vegna Franskra daga 2022
19.4 Seatrade Cruise Global í Miami 2022
19.5 Sjávarútvegsfundur 2022
19.6 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2022
20.
Menningar- og nýsköpunarnefnd - 44
Málsnúmer 2202012F
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 21. febrúar lögð fram til afgreiðslu.
20.1 Umsókn um styrki til menningarmála
20.2 Umsókn um styrki til menningarmála
20.3 Umsókn um styrki til menningarmála
20.4 Umsókn um styrki til menningarmála
20.5 Umsókn um styrki til menningarmála
20.6 Umsókn um styrki til menningarmála
20.7 Umsókn um styrki til menningarmála
20.8 Umsókn um styrki til menningarmála
20.9 Umsókn um styrki til menningarmála
20.10 Umsókn um styrki til menningarmála
20.11 Umsókn um styrki til menningarmála
20.12 Umsókn um styrki til menningarmála
20.13 Umsókn um styrki til menningarmála
20.14 Umsókn um styrki til menningarmála
20.15 Umsókn um styrki til menningarmála
20.16 Umsókn um styrki til menningarmála
20.17 Umsókn um styrki til menningarmála
20.18 Umsókn um styrki til menningarmála
20.19 Umsókn um styrki til menningarmála
20.20 Umsókn um styrki til menningarmála
20.21 Umsókn um styrki til menningarmála
20.22 Umsókn um styrki til menningarmála
20.23 Umsókn um styrki til menningarmála
20.24 Umsókn um styrki til menningarmála
20.25 Umsókn um styrki til menningarmála
20.26 Umsókn um styrki til menningarmála
20.27 Umsókn um styrki til menningarmála
20.28 Umsókn um styrki til menningarmála
20.29 Erindisbréf starfshóps um framtíðarsýn Stríðsárasafns
20.30 BRAS - skýrslur og samningar 2020 og 2021
20.31 Útgáfa á sögu Fáskrúðsfjarðar
21.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 96
Málsnúmer 2201006F
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 14. febrúar lögð fram til afgreiðslu.
21.1 Fundaáætlun íþrótta- og tómstundanefndar haust 2021 og vor 2022
21.2 Akstur á skíðasvæðið í Oddsskarði
21.3 Mat á áhrifum ákvarðana sveitarfélaga á börn og rétt barna til þátttöku og áhrifa.
21.4 Ókyngreindir búningsklefar og salerni í íþróttamannvirkjum Fjarðabyggðar
21.5 Fjárhagsyfirlit íþrótta- og tómstundasviðs 2021
21.6 Sportabler kostnaður