Fara í efni

Bæjarráð

769. fundur
17. október 2022 kl. 08:30 - 12:00
að Búðareyri 2, fundarherbergi 1
Nefndarmenn
Stefán Þór Eysteinsson formaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Starfsmenn
Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Snorri Styrkársson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Beiðni Skíðafélags Fjarðabyggðar um fund með bæjastjórn
Málsnúmer 2210030
Farið yfir skipulag almenningssamgangna vegna skíðaæfinga, starf skíðafélagsins og framtíð skíðasvæðisins.
2.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023 - 2026
Málsnúmer 2205271
Framhald umræðu um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023-2026.
Umræðu vísað til næsta fundar bæjarráðs.
3.
Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2023
Málsnúmer 2208080
Vísað frá félagsmálanefnd til umfjöllunar bæjarráðs tillögum sviðsstjóra um hagræðingu vegna reksturs félagsmálaflokksins.
Bæjarráð samþykkir að taka tillögur sem koma fram í minnisblaði til vinnslu í fjárhagsáætlunargerð 2023.
4.
Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 2023
Málsnúmer 2208081
Vísað frá stjórn menningarstofu- og safnastofnunar til bæjarráðs drögum að starfs- og fjárhagsáætlun fyrir menningarmálaflokkinn 2023.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
5.
Starfs- og fjárhagsáætlun Mannvirkja- og veitunefndar 2023
Málsnúmer 2208082
Vísað frá mannvirkja- og veitunefnd til umfjöllunar bæjarráðs starfs- og fjárhagsáætlun málaflokka sem heyra undir nefndina.
Vísað til áframhaldandi vinnslu við gerð fjárhagsáætlunar.
6.
Fjárhagsáætlun 2022 - viðauki 3
Málsnúmer 2210050
Framlagður viðauki við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2023. Viðaukinn fjallar um breytta framsetningu fjárhagsáætlana samkvæmt reglugerð, veikindalaun, þjónustu í þágu velsældar barna, námsstyrki og millifærslur.
Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
7.
Starfshópur um framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins
Málsnúmer 2206071
Vísað frá stjórn menningarstofu og safnastofnunar til bæjarráðs málefnum stríðsárasafns sem lútað að framtíð og staðsetningu safnsins.
Fram lagt og rætt. Verður tekið upp síðar í bæjarráði.
8.
Boð um þátttöku í samráði Þjóðgarðar og önnur friðlýst svæði - lykilþættir
Málsnúmer 2210058
Framlagður tölvupóstur frá umhverfis, orku-, og loftlagsráðuneytinu þar sem kynnt er samráð vegna máls. 188/2022 - Þjóðgarðar og önnur friðlýst svæði - lykilþættir". Umsagnarfrestur er til og með 21.10.22.
Bæjarráð vísar erindi til skoðunar hjá umhverfis- og skipulagsfulltrúa.
9.
Til umsagnar 9. mál frá nefndasviði Alþingis
Málsnúmer 2210090
Framlögð tillaga að þingsályktun um endurskoðun á laga- og reglugerðaumhverfi sjókvíaeldis.
Bæjarráð vísar til fyrri samþykkta sinna um fiskeldissjóð og felur bæjarstjóra að skila inn umsögn.
10.
Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2022
Málsnúmer 2201187
Framlögð til kynningar fundargerð 51. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
11.
Hafnarstjórn - 285
Málsnúmer 2210008F
Fundargerð hafnarstjórnar frá 10. október lögð fram til afgreiðslu.
11.1 Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2023
11.2 Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2023
11.3 Beiðni um umsögn v.endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskiðjuvers
11.4 Erindi frá UNICEF á Íslandi til Fjarðabyggðar
11.5 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2022
12.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 9
Málsnúmer 2210001F
Fundargerð 9. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 11. október lögð fram til afgreiðslu.
12.1 Gilsárstekkur - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
12.2 Stekkjarholt 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
12.3 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
12.4 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
12.5 Ósk um umsögn, aðalskipulagsbreyting, efnistaka vegna Axarvegar
12.6 Nafnabreyting Lækjarmót verður að Lækjamót
12.7 Erindi frá áhugahóp um Fjölskyldu-og útivistarsvæði á Fáskrúðsfirði.
12.8 Fjallskilasamþykkt SSA
12.9 Órækt við Lækjargil og knattspyrnuvöllinn í Neskaupstað
12.10 Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum, nr. 1232010 (uppbygging innviða), 144. mál.
12.11 Strandgata 68 Eskifirði
12.12 Upplistun lausra lóða
12.13 Umsagnarbeiðni - Stækkun Mjóeyrarhafnar
12.14 Umferðaröryggi - Gatnamót Stekks og Kvíabrekku
12.15 Erindi frá UNICEF á Íslandi til Fjarðabyggðar
12.16 Meindýravarnir
12.17 Þörungablómi í Reyðarfirði
12.18 Framkvæmdaleyfi
12.19 Gjaldskrá hunda og kattahald 2023
12.20 Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2023
12.21 Gjaldskrá gatnagerðargjalda 2023
13.
Félagsmálanefnd - 158
Málsnúmer 2210004F
Fundargerð 158. fundar félagsmálanefndar frá 11. október lögð fram til afgreiðslu.
13.1 Gjaldskrá stuðningsþjónustu 2023
13.2 Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2023
13.3 Akstursþjónusta sérreglur
13.4 Erindi frá íbúum í Breiðablik
13.5 Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 2023
14.
Stjórn menningarstofu og safnastofnunar - 4
Málsnúmer 2210007F
Fundargerð stjórnar menningarstofu og safnastofununar frá 11. október lögð fram til afgreiðslu.
14.1 Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 2023
14.2 Gjaldskrá bókasafna 2023
14.3 Gjaldskrá safna í Fjarðabyggð 2023
14.4 Gjaldskrá félagsheimila
14.5 Umsókn um styrk vegna fornleifarannsókna í Stöð Stöðvarfirði
14.6 Starfshópur um framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins
14.7 Erindi frá UNICEF á Íslandi til Fjarðabyggðar
14.8 Málefni Sköpunarmiðstöðvarinnar 2020 - 2022
15.
Mannvirkja- og veitunefnd - 6
Málsnúmer 2210010F
Fundargerð mannvirkja- og veitunefndar frá 12. oktober lögð fram til afgreiðslu.
15.1 Starfs- og fjárhagsáætlun Mannvirkja- og veitunefndar 2023
15.2 Gjaldskrá vatnsveitu Fjarðabyggðar 2023
15.3 Gjaldskrá hitaveitu Fjarðabyggðar 2023
15.4 Gjaldskrá fjarvarmaveitu 2023
15.5 Erindi frá áhugahóp um Fjölskyldu-og útivistarsvæði á Fáskrúðsfirði.
15.6 Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 2023
15.7 Erindi frá UNICEF á Íslandi til Fjarðabyggðar
15.8 Fyrirspurn um framtíð tjaldsvæðis á Stöðvarfirði
15.9 Gjaldskrá fráveitu 2023
16.
Fræðslunefnd - 116
Málsnúmer 2210009F
Fundargerð 116. fundar fræðslunefndar frá 12. október lögð fram til afgreiðslu.
16.1 Erindi frá UNICEF á Íslandi til Fjarðabyggðar
16.2 Gjaldskrá frístundaheimila 2023
16.3 Gjaldskrá leikskóla 2023
16.4 Gjaldskrá tónlistarskóla Fjarðabyggðar 2023
16.5 Gjaldskrá húsnæðis Grunnskóla 2023
16.6 Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2023
16.7 Beiðni um breytingu á skóladagatali
17.
Barnaverndarnefnd 2022
Málsnúmer 2202112
Fundargerð barnaverndarnefndar frá 11. október lögð fram til afgreiðslu.