Fara í efni

Bæjarráð

811. fundur
5. september 2023 kl. 09:00 - 09:50
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir varamaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður
Kristinn Þór Jónasson varamaður
Starfsmenn
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Snorri Styrkársson embættismaður
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Þórður Vilberg Guðmundsson forstöðurmaður stjórnsýslu- og upplýsingamála
Dagskrá
1.
Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL
Málsnúmer 2303071
Framlagt sem trúnaðarmál yfirlit yfir rekstur málaflokka fyrir Fjarðabyggð og stofnanir janúar - júní árið 2023
2.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2024
Málsnúmer 2305061
Lögð fram tillaga að rammaúthlutun í A hluta fyrir fjárhagsáætlun 2024 ásamt fyrstu útgáfu af útgönguspá fyrir árið 2023 ásamt mögulegri stöðu fyrir árið 2024 byggt á tillögu um rammaúthlutun og fyrri áætlun um fjárfestingar 2024.

Bæjarráð samþykkir framlagða fjárhagsramma áætlunar 2024 og felur fjármálastjóra að gefa þá út til nefnda. Kristinn Þór Jónasson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins situr hjá við afgreiðsluna.
3.
Gott að eldast-samþætting þjónustu Fjarðabyggð og HSA
Málsnúmer 2306119
Vísað frá félagsmálanefnd til afgreiðslu bæjarráðs minnisblaði og umsókn um þáttöku í tilraunaverkefni stjórnvalda umsamþættingu þjónustu HSA og Fjarðabyggðar við eldra fólk.

Bæjarráð samþykkir að Fjarðabyggð taki þátt í umsókn að tilraunaverkefninu og felur bæjarstjóra að undirrita viljayfirlýsingu þar um.
4.
Erindi Jaspis ágúst 2023
Málsnúmer 2308173
Framlagt erindi frá Jaspis, félagi eldri borgara á Stöðvarfirði varðandi bílastæði við húsnæði félagsins og kaup á borðum.
Bæjarráð vísar erindi til gerðar fjárhagsáætlunar félagsmálanefndar og mannvirkja- og veitunefndar fyrir árið 2024.
5.
Umsókn um lóð Hjallaleira 8
Málsnúmer 2308155
Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðaumsókn Stapavéla ehf. um lóðina Hjallaleiru 8 á Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
6.
Samráð vegna stefnumótunar lagareldis
Málsnúmer 2304174
Framlögð greinargerð frá matvælaráðuneytinu þar sem sveitarfélögum er gefinn frestur til 8. september til að skila athugasemdum vegna hennar og fjallar um stefnumótun í lagareldi.

Bæjarstjóra og atvinnu- og þróunarstjóra falið að vinna umsögn Fjarðabyggðar á grundvelli fyrri umsagna sveitarfélagsins.
7.
Lok leyfis frá störfum bæjarfulltrúa
Málsnúmer 2309027
Framlagður tölvupóstur Jóns Björns Hákonarsonar þar sem hann tilkynnir um lok leyfis sem hann tók frá störfum sem bæjarfulltrúi.
8.
Nefndaskipan Sjálfstæðisflokks 2022 - 2026
Málsnúmer 2205171
Framlögð ósk Jóhönnu Sigfúsdóttur um leyfi frá störfum í bæjarstjórn frá 11.9.23 til 31.12.23.
Jafnframt tilkynnt um breytingu á skipan Sjálfstæðisflokksins í fræðslunefnd en Sigurjón Rúnarsson tekur við sem aðalmaður af Inga Steini Freysteinssyni og Bryngeir Ágúst Margeirsson kemur inn sem varamaður.
Bæjarráð staðfestir leyfi Jóhönnu ásamt breytingum á nefndarskipan í fræðslunefnd.
9.
Nefndaskipan Framsóknarflokks 2022-2026
Málsnúmer 2205170
Framlögð beiðni Bjarka Ingasonar um leyfi frá nefndarstörfum frá 1. september til 31. ágúst 2023. Lagt er til að Elsa Guðjónsdóttir taki sæti aðalmanns og Karen Ragnarsdóttir sæti varamanns í stjórn menningarstofu og safnastofnunar.
Bæjarráð staðfestir leyfi Bjarka ásamt breytingum á nefndarskipan í stjórn menningarstofu og safnastofnunar.
10.
Starfshópur um skattlagningu orkuvinnslu - Umsögn
Málsnúmer 2307031
Framlögð til kynningar umsögn Samtaka Orkusveitarfélaga við tillögur starfsóps um skattlagningu orkuvinnslu.
11.
Aðalfundur fulltrúaráðs EBÍ 2023
Málsnúmer 2308174
Framlagt til kynningar boð á aðalfund fulltrúaráðs EBÍ 2023 sem haldinn verður í Reykjavík 6. október kl. 13. Bæjarstjóri tekur þátt á fundinum fyrir hönd Fjarðabyggðar
12.
Málþing Byggðastofnunar um brothættar byggðir
Málsnúmer 2308153
Framlagt boð Byggðastofnunar á málþing um byggðaþróunarverkefnið Brothættar byggðir sem haldið verður á Raufarhöfn 5. október 2023.
Bæjarráð þakkar fyrir boðið og fulltrúar sveitarfélagsins munu taka þátt í málþinginu.
13.
Ársfundur samtaka sveitarfélaga á köldu, svæðum 2023
Málsnúmer 2308177
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum boðar til aðalfundar samtakanna föstudaginn 22. september kl. 12:30 á Hilton Reykjavík Nordica. Fulltrúar Fjarðabyggðar munu mæta á fundinn.
14.
Fundagerð stjórnar Náttúrustofu Austurlands 2023
Málsnúmer 2304305
Framlögð til kynningar fundargerð stjórnar Náttúrustofu Austurlands nr. 2.
15.
Mannvirkja- og veitunefnd - 18
Málsnúmer 2308018F
Fundargerð 18. fundar mannvirkja- og veitunefndar lögð fram til afgreiðslu.
15.1 Áfangastaðir Ferðamálastofa 2021
15.2 Eignarsjóður 735 Grunnskólinn Eskifirði
15.3 Bréf til Bæjarráðs
15.4 Síkkun á dælu í ES-2 Eskifirði
15.5 Framkvæmdasvið verkefni 2023
15.6 Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL
16.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 122
Málsnúmer 2308016F
Fundargerð 128. fundar íþrótta- og tómstundanefndar lögð fram til afgreiðslu.
16.1 Öruggara Austurland
16.2 Fundaáætlun íþrótta- og tómstundanefndar haust 2023
16.3 Erindi vegna gjaldskrár
16.4 Umsókn Körfuknattleiksdeild Hattar að frístundastyrkjum Fjarðabyggðar
17.
Félagsmálanefnd - 167
Málsnúmer 2308015F
Fundargerð 167. fundar fræðslunefndar tekin til afgreiðslu.
17.1 Fundaáætlun félagsmálanefndar haust 2023
17.2 Öruggara Austurland
17.4 Styrkbeiðni frá þroskaþjálfanemum
17.5 Gott að eldast-samþætting þjónustu Fjarðabyggð og HSA
18.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 33
Málsnúmer 2308011F
Fundargerð 33. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar lögð fram til afgreiðslu.
18.1 Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira
18.2 735 - Deiliskipulag, Dalur athafnasvæði
18.3 735 Deiliskipulag Norðfjarðarvegar og nágrennis að gangamunna á Eskifirði - breyting, minnkun skipulagssvæðis
18.4 Erindi til Umhverfis og skipulagsnefndar. Uppsetning á sólarsellum, vindmyllum og rafhlöðupakka
18.5 Hafnargata 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
18.6 Umsókn um stöðuleyfi
18.7 Umsókn um stöðuleyfi
18.8 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Búðareyri 4
18.9 Framkvæmdaleyfi vegslóði Mjóafirði
18.10 Umsókn um lóð Hjallaleira 8
18.11 Ný staðsetning gámasvæða
18.12 Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL
19.
Hafnarstjórn - 299
Málsnúmer 2308017F
Fundargerð 299. fundar hafnarstjórnar lögð fram til afgreiðslu.
19.1 Leyfi fyrir viðbótar hafnarkrana við Mjóeyrarhöfn - Eimskip
19.2 Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Samskip Hoffell
19.3 Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - MV Frigg W
19.4 Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - MV Sif W
19.5 Öryggismál hafna
19.6 Mengunarmál í höfnum Fjarðabyggðar
19.7 Málefni Cruise Iceland 2023
19.8 Lagarlíf 2023
19.9 Sjávarútvegsráðstefnan 2023
19.10 Styrkumsókn - Útsæði - 2023
19.11 Beiðni um umsögn v.endurnýjunar heimavigtunarleyfis uppsjávarfrystihúss
19.12 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2023