Fara í efni

Bæjarráð

865. fundur
30. september 2024 kl. 08:30 - 10:45
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Kristinn Þór Jónasson varamaður
Jón Björn Hákonarson varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2025
Málsnúmer 2404213
Rætt um fjárhagsáætlunina og stöðu hennar. Lögð fram greining á fyrstu útgáfu af launaáætlun 2025 eins og hún liggur fyrir.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2025.
2.
Orka til fjarvarmaveita Hitaveitu Fjarðabyggðar
Málsnúmer 2409216
Umræða um orkukaup fyrir fjarvarmaveitur Hitaveitu Fjarðabyggðar í Neskaupstað og Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir að fela fjármálastjóra og bæjarstjóra að vinna að málinu og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
3.
Kauptilboð í Sólbakka 7 Breiðdalsvík
Málsnúmer 2409226
Lagt fram kauptilboð í Sólvelli 7 á Breiðdalsvík dagsett 25.9.2024.
Bæjarráð hafnar kauptilboði.
4.
Kauptilboð í Sólbakka 7 Breiðdalsvík
Málsnúmer 2409238
Lagt fram kauptilboð í Sólvelli 7 á Breiðdalsvík dagsett 26.9.2024
Bæjarráð hafnar kauptilboði.
5.
Húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2025
Málsnúmer 2409205
Framlagður til kynningar tölvupóstur HMS um samstarf við sveitarfélögin um endurskoðun og uppfærslu stafrænna húsnæðisáætlana en endurskoðun á að ljúka fyrir 20. janúar 2025.
Vísað til fjármálastjóra.
6.
Grænn orkugarður á Reyðarfirði
Málsnúmer 2108124
Bæjarstjóra hefur boðist að taka þátt í ferð viðskiptasendinefndar atvinnulífsins með Íslandsstofu, Grænvangi, Samtökum Iðnaðarins og Dansk-íslenska viðskiptaráðsins í tengslum við fyrstu opinberu heimsókn forseta Íslands til Danmerkur dagana 7.-10. október næstkomandi. Bæjarstjóri verður hluti sendinefndarinnar.
7.
Umsókn um stækkun á lóð að Búðareyri 3
Málsnúmer 2409158
Skipulags- og framkvæmdanefnd leggur til að lóðin að Búðareyri 3 verði stækkuð til suðurs til samræmis við mörk gróðurs og garðs.
Bæjarráð samþykkir stækkun lóðar.
8.
Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði
Málsnúmer 2306063
Framlögð andmæli frá fjáreiganda Þverhamars vegna áskorunar bæjarráðs um að sauðfé sé smalað af landi Óseyrar.
9.
Samstarfssamningur
Málsnúmer 2409237
Framlagt erindi frá Krabbameinsfélagi Austfjarða um framlengingu á samstarfssamingi Fjarðabyggðar og félagsins.
Bæjarráð samþykkir að samningurinn verði framlengdur um þrjú ár.
10.
Frumvarp um breytingu á lögum um haf- og strandsvæði í samráðsgátt
Málsnúmer 2409236
Framlagt frumvarp um breytingu á lögum um haf- og strandsvæði í samráðsgátt.
Bæjaráð felur bæjarritara að veita umsögn.
11.
Ársfundur jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2024
Málsnúmer 2409228
Framlagt fundarboð á ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitafélaga sem haldinn verður 9.okt nk.
Bæjarráð felur Jóni Birni Hákonarsyni forseta bæjarstjórnar að fara með umboð Fjarðabyggðar á ársfundinum.
12.
Sambandsgleði í tengslum við fjármálaráðstefnu
Málsnúmer 2409233
Framlagt til kynningar boð frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga á hóf í tengslum við fjármálaráðstefnu.
13.
Boðskort á Sveitarfélag ársins
Málsnúmer 2409231
Framlagt til kynningar boð á viðburðinn Sveitarfélag ársins 2024 sem haldið verður 17. október 2024.
14.
Líkamsræktaraðstaða á Reyðarfirði
Málsnúmer 2403089
Framlagt minnisblað um stöðu líkamsræktaraðstöðu á Reyðarfirði.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og fjármálastjóra að fara yfir málið frekar og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
15.
Nefndaskipan Framsóknarflokks 2022-2026
Málsnúmer 2205170
Framlögð beiðni Þuríðar Lillýar Sigurðardóttur um leyfi frá störfum sem kjörinn fulltrúi í bæjarstjórn og formennsku í skipulags- og framkvæmdanefnd vegna fæðingarorlofs frá 1. október 2024 til 31. desember 2024.
Framsóknarflokkurinn gerir eftirfarandi breytingar nefndaskipan á þessum tíma og við formennsku skipulags- og framkvæmdanefndar tekur Jón Björn Hákonarson. Elís Pétur Elísson tekur sæti Þuríðar í bæjarstjórn fyrir sama tíma.
16.
Stafrænt byggingarleyfi
Málsnúmer 2409225
Framlagður til kynningar tölvupóstur frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um stafræn byggingarleyfi sem stofnunin er að innleiða.
Vísað til kynningar í skipulags- og framkvæmdanefnd.
17.
Fjölskyldunefnd - 13
Málsnúmer 2409020F
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð fjölskyldunefndar frá 23. september.
17.1 Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 2025
17.2 Fundur vegna frumkvæðisathugunar GEV á búsetuúrræðum fatlaðs fólks
17.3 Málefni innflytjenda
18.
Stjórn menningarstofu - 9
Málsnúmer 2409022F
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð stjórnar menningarstofu frá 23. september.
18.1 Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins
18.2 Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 2025
18.3 Gjaldskrá safna í Fjarðabyggð 2025
18.4 Gjaldskrá félagsheimila 2025
18.5 Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 2024
19.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 17
Málsnúmer 2409024F
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 25. september.
19.1 Byggingarleyfi Egilsbraut 8 breyting á notkun
19.2 Breyting á deiliskipulagi íbúðarsvæðis að Bökkum 3, Neskaupstað
19.3 Bréf til Framkvæmda- og skipulagsnefndar
19.4 Umsókn um stækkun á lóð að Búðareyri 3
19.5 Umsókn um lóð fyrir bílastæði að Nesbakka 11
19.6 Umsókn í framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2025
19.7 Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður
19.8 Erindi til Bæjarráðs vegna Sólvellir Breiðdalsvík, athafnasvæði
19.9 Skólavegur 98-112 frágangur grunna
19.10 Gjaldskrá gatnagerðargjalda 2025
19.11 Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2025
19.12 Gjaldskrá vatnsveitu 2025
19.13 Gjaldskrá rafhleðslustöðva 2025
19.14 Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 2025
19.15 Gjaldskrá ljósleiðaraheimtauga í dreifbýli Fjarðabyggðar 2025
19.16 Gjaldskrá hunda- og kattahald 2025
19.17 Gjaldskrá hitaveitu 2025
19.18 Gjaldskrá fráveitu 2025
19.19 Gjaldskrá fjarvarmaveita 2025
19.20 Fjallskilanefnd - 6
19.21 Ítrekaður hraðakstur í BakkagerðiÁsgerði
19.22 Byggingarleyfi Borgarnaust 5
20.
Fjallskilanefnd - 6
Málsnúmer 2407016F
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð fjallskilanefndar frá 1. ágúst.
20.1 Fjárréttir í Fjarðabyggð
20.2 Fjallskil og gangnaboð 2024