Fara í efni

Bæjarráð

932. fundur
23. febrúar 2026 kl. 08:30 - 11:30
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir varamaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2025 - viðauki 3
Málsnúmer 2602171
Framlagður viðauki 3 við fjárhagsáætlun 2025.
Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.
2.
Efnahagur Fjarðabyggðar
Málsnúmer 2602172
Framlögð tillaga fjármálastjóra um fyrirkomulag skammtímafjármögnunar sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir að sviðsstjóra fjármála- og greininarsviðs sé veitt heimild til að kalla eftir tímabundinni yfirdráttarheimild allt að fjárhæð 200 m.kr. ef á þarf að halda.
3.
Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning 2026
Málsnúmer 2602058
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að endurskoðuðum reglum um sérstakan húsnæðisstuðning.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
4.
Reglur um menningarstyrki
Málsnúmer 2602064
Vísað frá stjórn menningarstofu til afgreiðslu bæjarráðs drögum að uppfærðum reglum um úthlutun menningarstyrkja.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
Viðhengi
Minnisblað -
5.
Vallavinnusamningur 2026
Málsnúmer 2601098
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs nýjum vallavinnusamning við Knattspyrnufélag Austfjarða (KFA) fyrir tímabilið 01.01.2026 - 31.12.2028.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
6.
Leigusamningur lögreglu við íþróttamannvirki Reyðarfjarðar
Málsnúmer 2602099
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu nefndarinnar að heimila útleigu á gamla ræktarsalnum í Íþróttahúsinu á Reyðarfirði til lögreglunnar til eins árs samkvæmt framlögðum leigusamningi.
Bæjarráð samþykkir leigusamninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
7.
Eyrin, þróunarreitur, 740 Norðfjörður
Málsnúmer 2602176
Lagt fram minnisblað skipulagsfulltrúa um undirbúning þróunarverkefnis við Eyri, 740 Norðfirði.
Bæjarráð vísar til skipulags- og framkvæmdanefndar undirbúningi og framkvæmd verkefnisins.
8.
Sveitarstjórnarkosningar 2026
Málsnúmer 2602135
Framlögð fundargerð yfirkjörstjórnar Fjarðabyggðar þar sem tillaga er gerð að kjörstöðum og opnunartímum þeirra vegna sveitarstjórnarkosninga 2026.
Lagt er til að kjörstaðir og talningastaður í Fjarðabyggð verði:
Sólbrekka í Mjóafirði
Nesskóli í Neskaupstað
Eskifjarðarkirkja á Eskifirði
Safnaðarheimilið á Reyðarfirði
Grunnskólinn á Fáskrúðsfirði
Grunnskólinn á Stöðvarfirði
Grunnskólinn á Breiðdalsvík
Talningarstaður í Eskifjarðarkirkju
Kjörstaðir verði opnir frá kl. 09:00 til 22:00 nema í Mjóafirði til kl. 14:00.
Bæjarráð samþykkir tillögu yfirkjörstjórnar um kjörstaði og opnun þeirra vegna sveitarstjórnakosninga 16. maí nk. Vísað til bæjarstjórnar.
9.
Öruggara Austurland - samstarf og samvinna.
Málsnúmer 2602093
Farið yfir málefni Lögreglurstjórans á Austurlandi ásamt því að kynnt er stefna embættisins sem felst í áhersla er lögð á öryggi og öryggistilfinningu íbúa með markvissri, sýnilegri og forvarnamiðaðri löggæslu sem skipulögð er út frá gögnum og stöðu mála.
10.
Aðgerðaáætlun fyrir sjúkraflutninga og bráðaþjónustu utan heilbrigðisstofnana
Málsnúmer 2602156
Framlögð til kynningar drög að aðgerðaráætlun fyrir sjúkraflutninga og bráðaþjónustu fyrir 2026 til 2030.
11.
Erindi Krabbemeinsfélags Austfjarða um styrk til afnota af Skrúð
Málsnúmer 2602182
Framlagður tölvupóstur Krabbameinsfélags Austfjarða þar sem óskað er eftir styrk til afnota af Skrúð vegna mottumarsviðburðar 16. til 19. mars.
Bæjarráð samþykkir að styrkja félagið sem nemur afnotum af félagsheimilinu. Tekið af liðnum óráðstafað 21690.
12.
Fab Lab Ársskýrsla 2025
Málsnúmer 2602162
Ársskýrsla Fab Lab Austurlands lögð fram til kynningar.
13.
Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 2026
Málsnúmer 2602129
Fundargerðir 88. og 89. fundar lagðar fram til kynningar
14.
Fjölskyldunefnd - 51
Málsnúmer 2602010F
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð fjölskyldunefndar frá 16. febrúar.
14.1 Starfsáætlun fjölskyldusviðs 2027
14.2 Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning 2026
14.3 Einfalda regluverk um verkefni sveitarfélaga
14.4 Barnaverndarþjónusta Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar - merki
14.5 Þróun mála barnaverndar og samþættrar þjónustu árin 2023-2026
14.6 Vallavinnusamningur 2026
14.7 Leigusamningur lögreglu við íþróttamannvirki Reyðarfjarðar
15.
Hafnarstjórn - 334
Málsnúmer 2602013F
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð hafnarstjórnar frá 16. febrúar.
15.1 Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Dettifoss
15.2 Útboð á dýpkun Frystihússbryggja Eskifjarðarhöfn
15.3 Landmótun og landfylling á Mjóeyrarhöfn
15.4 Eskifjarðarhöfn - stækkun
15.5 Sjóvarnir á Breiðdalsvík
15.6 Hafnarsvæði Mjóafjarðarhafnar
15.7 Öryggismál hafna
15.8 Breyting á aðalskipulagi Sævarendi 2
15.9 Einfalda regluverk um verkefni sveitarfélaga
15.10 Beiðni um umsögn v. endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskiðjuvers
15.11 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026
16.
Stjórn menningarstofu - 32
Málsnúmer 2602012F
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð stjórnar menningarstofur frá 16. febrúar.
16.1 Bæjarhátíðir í Fjarðabyggð
16.2 Reglur um menningarstyrki