Fara í efni

Bæjarráð

934. fundur
9. mars 2026 kl. 08:30 - 10:00
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Jón Björn Hákonarson varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Kaupsamningur og afsal um Sunnugerði 7
Málsnúmer 2603062
Framlögð drög að kaupsamningi um Sunnugerði 7 á Reyðarfirði milli Brákar íbúðafélags ehf. og Fjarðabyggðar.
Bæjarráð samþykkir kaupsamninginn og felur bæjarstjóra undirritun og frágang skjala vegna sölunnar.
2.
Verkefnið Sterkur Stöðvarfjörður
Málsnúmer 2603063
Fjallað um atvinnumál á Stöðvarfirði.
Bæjarstjóra falið að senda Byggðastofnun bréf vegna fyrirhugaðrar sæbjúgnavinnslu á Stöðvarfirði.
3.
Umsókn um stofnframlög til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum
Málsnúmer 2602006
Framlögð til staðfestingar umsóknir um stofnframlög til byggingar eða kaupa á almennum íbúðun hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Bæjarráð samþykkir að sótt verði um stofnframlög vegna kaupa á tveimur íbúðum á Eskifirði.
4.
Fasteignir í eigu Fjarðabyggðar
Málsnúmer 2404100
Fjallað um niðurrif á fasteignum við Íslenska stríðsárasafnið að Heiðarveg 37.
Bæjarráð felur skipulags- og framkvæmdasviði að afla tilskilinna leyfa til niðurrifs tveggja ónýtra húsa sem standa ofan safnsins og þau verði rifin á árinu. Kostnaði vegna rifanna vísað til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins.
5.
Fundarboð á hluthafafund
Málsnúmer 2602222
Farið yfir niðurstöður hluthafafundar Leigufélagsins Bríetar ehf. sem haldinn var 5. mars sl.
6.
Viljayfirlýsing
Málsnúmer 2511118
Fjallað um málefni tengdum uppbygginu húsnæðis fyrir 60 ára og eldri.
7.
Forkaupsréttur að Skugga HU-41
Málsnúmer 2603084
Framlagt erindi frá Gullrúnu ehf. þar sem óskað er eftir afstöðu Fjarðabyggðar til að nýta forkaupsrétt að bátnum Skuggi HU-41.
Bæjarráð samþykkir að nýta ekki forkaupsrétt að bátnum Skuggi HU-41.
8.
Aðalfundur Lánasjóðs Sveitarfélaga ohf
Málsnúmer 2603021
Framlagt boð á aðalfund Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. sem haldinn verður 20. mars 2026 kl. 14:00.
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri gangi frá umboði sveitarfélagsins fyrir hönd Fjarðabyggðar á aðalfundinn.
9.
Ársfundur Austurbrúar 2026
Málsnúmer 2603024
Framlagt boð á ársfundar Austurbrúar 2026 sem verður haldinn í Skrúð á Fáskrúðsfirði, föstudaginn 20. mars 2026 kl. 13:00.
Bæjarfulltrúar munu sækja ársfundinn.
10.
Fjölskyldunefnd - 52
Málsnúmer 2602025F
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 2. mars lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.