Fara í efni

Bæjarráð

947. fundur
15. júní 2026 kl. 08:30 - 11:40
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Birgir Jónsson varamaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Hrafn Bjarnason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Styrktarumsókn v afmælistónleika
Málsnúmer 2606058
Framlögð ósk Tónlistarskóla Fjarðabyggðar um styrk vegna 70 ára afmælis Tónskólans í Neskaupstað.
Bæjarráð tekur vel í erindið og felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs ásamt bæjarstjóra að finna fjármagn til afmælistónleikanna.
2.
Umsókn um lóð Strandgata 33, 735 Eskifirði
Málsnúmer 2603146
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um lóðina Strandgötu 33 á Eskifirði.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
3.
Umsókn um lóð Bakkagerði 11, 730 Reyðarfirði
Málsnúmer 2606034
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um lóðina Bakkagerði 11 á Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
4.
Nýja svæði Dreka
Málsnúmer 2603166
Framlagður tölvupóstur frá Skotíþróttafélaginu Dreka vegna íþróttasvæðis.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara um málefnið.
5.
Grenndarkynning Mógerði 5
Málsnúmer 2605151
Tekin umræða um grenndarkynningu vegna Mógerði 5 á Reyðarfirði en skipulags- og framkvæmdanefnd fjallaði um málið á síðasta fundi sínum.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að funda með aðilum sem tengjast grenndarkynningu og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
6.
Boð um samstarf við Swieciechowa vegna menningarverkefnis
Málsnúmer 2606104
Framlagt erindi frá sveitarfélaginu Swieciechowa í Póllandi þar sem Fjarðabyggð er boðin þátttaka í samstarfsverkefni í meningarmálum sem sveitarfélagið er að undirbúa og verður hleypt af stokkunum af ráðuneyti menningar og þjóðararfs í Póllandi á þriðja ársfjórðungi ársins. Verkefnið er fjármagnað gegnum EEA fjármálaáætlunina og styrki frá Noregi.
Bæjarráð vísar erindi til frekari skoðunar hjá bæjarritara og forstöðumanni menningarstofu.
7.
Skjálausnir í íþróttamiðstöðvar
Málsnúmer 2605230
Framlögð drög að samstarfssamningi um rekstur á skjálausn í íþróttamiðstöðvum Fjarðabyggðar.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
8.
Viðaukaframlag vegna samþykkta réttindasafna R og B deilda
Málsnúmer 2606106
Framlagt erindi Brúar lífeyrissjóðs vegna skilyrðis úr samþykktum vegna réttindasafns R og B deildar Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar en sjóðurinn krefur um viðbótarframlag sem nemur 110 m.kr.
Bæjarráð samþykkir að viðbótarframlagið sé greitt til lífeyrissjóðsins og vísar fjármögnun hans til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins.
9.
Erindi um styrk til afnota af Skrúð
Málsnúmer 2606079
Framlögð beiðni frá Krabbameinsfélagi Austfjarða þar sem óskað er eftir styrk til greiðslu afnota af Skrúð 10. september vegna 75 ára afmælis Krabbameinsfélags Íslands.
Bæjarráð samþykkir að styrkja félagið sem nemur afnot um húsnæðinu fyrir afmælið. Kostnaði mætt af liðnum óráðstafað 21690.
10.
Leikskólinn Dalborg áfangi IV. Endurbætur á eldri byggingu
Málsnúmer 2606077
Skipulags- og framkvæmdanefnd leggur til að tilboði lægstbjóðanda VHE ehf. í IV. áfanga endurbóta við Dalborg leikskóla verði tekið.
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda og felur bæjarstjóra undirritun samningsins.
11.
Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður
Málsnúmer 2009034
Farið yfir framkvæmdir við Ofanflóðavarnir í Nes- og Bakkagiljum með fulltrúum Ofanflóðasjóðs og Veðurstofunnar.
12.
Málefni slökkviliðs Fjarðabyggðar
Málsnúmer 2511053
Slökkviliðsstjóri fór yfir málefni slökkviliðs.
13.
Fjarðabyggð - Hagræn umsvif
Málsnúmer 2606129
Kynning á drögum að mælaborði varðandi hagræn umsvif í Fjarðabyggð á árunum 2020-2024. Deildarstjóri fjármála kynnir stöðu.
14.
Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
Málsnúmer 2601212
Fundagerð 1000. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
15.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 60
Málsnúmer 2606003F
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 8. júní lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
16.
Fjölskyldunefnd - 60
Málsnúmer 2606001F
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 10. júní lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
17.
Stjórn menningarstofu - 37
Málsnúmer 2606007F
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 10. júní lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
18.
Hafnarstjórn - 341
Málsnúmer 2606008F
Fundargerð hafnarstjórnar frá 8. júní lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.