Fara í efni

Bæjarráð

948. fundur
22. júní 2026 kl. 08:30 - 11:00
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Hrafn Bjarnason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Rafræn innkaupakort
Málsnúmer 2605053
Fjallað um fyrirkomulag innkaupa sveitarfélagsins.
2.
Fjármálareglur
Málsnúmer 2511055
Fjallað um fjármálareglur sveitarfélagsins.
3.
Greinargerð um framkvæmdir ársins
Málsnúmer 2604093
Farið yfir stöðu framkvæmda á árinu 2026.
4.
Ofanflóðavarnir á Eskifirði - Grjótá
Málsnúmer 2002092
Hönnun ofanflóðamannvirkja vegna Grjótár á Eskifirði kynnt af hálfu fulltrúa Ofanflóðasjóðs og Cowi verkfræðistofu.
Bæjarráð vísar hönnun ofanflóðamannvirkja til umfjöllunar skipulags- og framkvæmdanefndar.
5.
Framlenging um eitt ár á samningi um skólamáltíðir í grunnskóla
Málsnúmer 2606169
Framlagt minnisblað þar sem lagt er til að samningur um skólamáltíðir í skólum Fjarðabyggðar verði framlengdur um eitt ár eða til 31. júlí 2027.
Bæjarráð samþykkir framlengingu samnings.
6.
Gat í sjókví Sigmundarhús Reyðarfjörður
Málsnúmer 2606159
Framlögð tilkynning Kaldvíkur vegna sjókvíaeldis þeirra í Reyðarfirði.
7.
Fundargerðir Austurbrúar og SSA 2026
Málsnúmer 2602238
Fundargerðir aukaaðalfundar og fyrsta stjórnarfundar nýrrar stjórnar SSA frá 4. júní sl. lagðar fram til kynningar þar sem Helgi Hlynur aldursforseti gerði að tillögu sinni að Ragnar Sigurðsson yrði formaður stjórnar til næstu fjögurra ára og var það samþykkt samhljóða.