Fara í efni

Bæjarráð

954. fundur
10. ágúst 2026 kl. 08:30 - 10:00
í fjarfundi
Nefndarmenn
Birgir Jónsson varaformaður
Kristinn Þór Jónasson varamaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Hrafn Bjarnason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Nefndaskipan Framsóknarflokks 2026-2030
Málsnúmer 2608040
Framlögð beiðni Þuríðar Lillýjar Sigurðardóttur um leyfi frá störfum sem kjörinn fulltrúi frá 9. til 26. ágúst.
Lögð er fram tillaga um að Birgir Jónsson taki við varaformennsku í bæjarráði meðan á leyfi Þuríðar stendur og samþykkti fundurinn það. Tók Birgir við stjórn fundar.
2.
Umsókn og staðfesting á stofnframlagi til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum
Málsnúmer 2608039
Lögð fram tillaga að umsókn um stofnframlag til kaupa á almennri íbúð vegna umsóknar Brákar íbúðafélags hses. grundvelli laga um almennar íbúðir nr. 52/2016. Um er að ræða kaupa á einni íbúð við Móbakka 16 fyrir tekju-og eignalága.
Samþykkt er að Fjarðabyggð leggi til áskilið stofnframlag sveitarfélags vegna kaupanna.
Bæjarráð óskar eftir fundi með fulltrúa Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar vegna málefna leigufélaganna.
3.
Stjórnsýslukæra vegna málsmeðferðar - Óseyri í Stöðvarfirði
4.
Óveruleg breyting á Deiliskipulag Hlíðarendi Eskifirði - Strandgata 77b
Málsnúmer 2606050
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs grenndarkynningu vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Hlíðarenda á Eskifirði, Strandgata 77B. Ekki bárust athugasemdir.
Bæjarráð með umboði bæjarstjórnar samþykkir óverulega breytingu deiliskipulagsins Hlíðarendi á Eskifirði ásamt því að staðfesta niðurstöðu grenndarkynningar.
5.
Grenndarkynning Mógerði 5
Málsnúmer 2605151
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs grenndarkynningu vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Bakkagerði 1 á Reyðarfirði, Mógerði 3. Ekki bárust athugasemdir.
Bæjarráð með umboði bæjarstjórnar samþykkir óverulega breytingu deiliskipulagsins Bakkagerði 1 á Reyðarfirði ásamt því að staðfesta niðurstöðu grenndarkynningar.
6.
Ofanflóðavarnir á Eskifirði - Grjótá
Málsnúmer 2002092
Fundur haldinn með fulltrúum Veðurstofunnar vegna áhættumats og afmörkun á jafnhættulínum vegna ofanflóðavarna á Eskifirði og Norðfirði.
7.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 65
Málsnúmer 2608002F
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 6. ágúst lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir fundargerð skipulags- og
framkvæmdanefndar.