Fara í efni

Bæjarráð

959. fundur
14. september 2026 kl. 08:30 - 10:20
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Birgir Jónsson varamaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Alma Sigurbjörnsdóttir varamaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Haustþing SSA 2026
Málsnúmer 2609049
Fjallað um undirbúning haustþings SSA 2026.
2.
Samstarfsverkefni með Bríeti - Bakkabakki og Breiðablik
Málsnúmer 2511118
Farið yfir stöðu mála gagnvart leigufélaginu Bríeti varðandi húsnæði Bakkabakka og Breiðablik.
3.
Erindi frá Nestak
Málsnúmer 2609142
Framlagt erindi frá Nestak varðandi Bakkabakka í Neskaupstað.
Bæjarráð þakkar erindið og ósk um samtal vegna Bakkabakka 15 í Neskaupstað. Fyrir liggur viljayfirlýsing við Bríeti um kaup á húsnæðinu, í samræmi við samþykkt bæjarstjórnar þar sem bæjarstjóra var falið að ganga frá kaupsamningi. Unnið er að því að leiða þau kaup til lykta. Að svo stöddu er því ekki tilefni til frekari viðræðna um sölu eða eignaskipti vegna fasteignarinnar. Bæjarstjóra falið að ræða við Nestak.
4.
Orkuöflun Njörvadalsár og Geithúsaár
Málsnúmer 2607085
Alma Sigurbjörnsdóttir vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar.
Farið yfir framgang áforma Grunnorku ehf. um virkjun vatnsorku Njörvadalsár og Geithúsaár.
Bæjarráð óskar eftir að lögmaður sveitarfélagsins fari yfir samningsdrög og þeir teknir til umfjöllunar á fundi bæjarráðs að nýju.
5.
Breytingar á heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga
Málsnúmer 2609085
Farið yfir stöðu verkefna sem Heilbrigðiseftirlit hefur sinnt og munu færast til nýrra stofnana og sveitarfélaga um næstu áramóta.
6.
Landsþings sambandsins 23.-25.09.26
Málsnúmer 2602019
Framlagðar tillögur að breytingum á samþykktum Sambands íslenskra sveitarfélaga og tillögu kjörnefndar sem lagðar verða fyrir á landsþingi sambandsins.
Lagðar fram til kynningar.
7.
Ósk um gjaldfrjálsa notkun á Skrúð
Málsnúmer 2609101
Framlagt erindi vegna beiðnar um styrk vegna húsaleigu á félagsheimilinu Skrúð vegna hjónaballs 2027.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk gegn afnotum af húsnæðinu. Tekið af liðnum óráðstafað 21-690.
8.
Notendaráð sveitarfélaga
Málsnúmer 2609131
Framlagt til kynningar erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um skipan notendaráða.
Vísað til fjölskyldunefndar.
9.
Tilboð í uppsetningu á stálneta yfir stíflu
Málsnúmer 2609158
Framlagður tölvupóstur frá Ofanflóðasjóði vegna tilboð í uppsetningu stoðneta yfir stíflu við ofanflóðamannvirki á Fáskrúðsfirði.
Bæjarráð samþykkir tillögu Ofanflóðsjóðs um töku tilboðs lægstbjóðanda, Gasser Felstechnik AG / Múrberg ehf.
10.
Aðalfundur Orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2608047
Fundargerð aðalfundar Orkusveitarfélaga frá 21. ágúst lögð fram til kynningar.
11.
Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 2026
Málsnúmer 2602129
Fundargerðir 93.-96. funda stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga lagðar fram til kynningar.
12.
Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
Málsnúmer 2601212
Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
13.
Hafnarstjórn - 345
Málsnúmer 2609008F
Fundargerð 345. fundar hafnarstjórnar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
13.1 Staða og horfur í skemmtiferðaskipageiranum á Íslandi
13.2 Landmótun og landfylling á Mjóeyrarhöfn
13.3 Mjóeyrarhöfn skipulagsgreining
13.4 Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2027
13.5 Ósk um aðgang að Norðfjarðarvita
14.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 68
Málsnúmer 2609005F
Fundargerð 65. fundar skipulags- og framkvæmdanefndar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
14.1 Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 2027
14.2 Málaflokkayfirlit
14.3 Byggingarleyfi Hraun 1 - Stálgrindarhús
14.4 Byggingarleyfi Hraun 11a
14.5 Þakviðgerðir Grunnskóla Breiðdalsvík
14.6 Umferðarsamþykkt
14.7 Stekkjargata - Torg og garðsvæði við Egilsbúð
14.8 Umsókn um stöðuleyfi
14.9 Ósk um að erindi um göngubrú yfir Grjótá
14.10 Göngubrú yfir Lambeyrará
14.11 Umsókn um stækkun á lóð við Fagrahlíð 11 ESK
14.12 Fundaáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar