Fara í efni

Bæjarráð

961. fundur
21. september 2026 kl. 08:30 - 11:00
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Kristinn Þór Jónasson varamaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Hrafn Bjarnason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Þórður Vilberg Guðmundsson sviðsstjóri mannauðs- og umbótasviðs
Dagskrá
1.
Sjálfvirknivæðing móttöku og símsvörunar 2026
Málsnúmer 2609028
Lögð fram tillaga bæjarritara að sjálfvirknivæðingu þjónustu afgreiðslu á bæjarskrifstofum.

Bæjarráð felur starfsmönnum á skrifstofu bæjarstjóra að vinna málið áfram og leggja það fyrir að nýju.
2.
Samskiptaáætlun - haust ''26
Málsnúmer 2609183
Fjarðabyggð vinnur eftir samskiptaáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2026. Upplýsingafulltrúi lagði fram og kynnti fjögurra mánaða útfærslu áætlunarinnar fyrir september til desember 2026 sem unnin var með hliðsjón af samskiptaáætluninni og vörumerkjahandbók Fjarðabyggðar.

Bæjarráð samþykkir framlagða útfærslu samskiptaáætlunar og vísar henni til úrvinnslu upplýsingafulltrúa.
3.
Þjónustukönnun 2026
Málsnúmer 2609189
Undanfarin ár hefur Gallup mælt viðhorf íbúa til þjónustu stærstu sveitarfélaga landsins. Framlagt boð Gallup um þáttöku í könnuninn árið 2026.

Bæjarráð samþykkir þátttöku í þjónustukönnuninni fyrir árið 2026.
4.
Beiðni um gjaldfrjáls afnot af Íþróttahúsi Reyðarfjarðar vegna Þorrablóts 2027
Málsnúmer 2609172
Framlögð beiðni Þorrablótsnefndar um styrk vegna húsaleigu vegna afnota af íþróttahúsinu á Reyðarfirði vegna Þorrablóts Reyðfirðinga 2027.

Bæjarráð samþykkir að veita styrk gegn afnotum af húsnæðinu. Tekið af liðnum óráðstafað 21-690.
5.
Til umsagnar 4. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Málsnúmer 2609198
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hefur sent til umsagnar frumvarp til laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl. (markmið, nýting eigna, framkvæmdaumsjón).

Bæjarstjóra falið að skila inn umsögn byggða á fyrri umsögnum Fjarðabyggðar. Frestur til að skila umsögn er til 1. október nk.
6.
Til umsagnar 5. mál, Sveitarstjórnarlög.
Málsnúmer 2609206
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hefur sent til umsagnar 5. mál, Sveitarstjórnarlög.

Bæjarstjóra falið að skila inn umsögn byggða á fyrri umsögnum Fjarðabyggðar.
7.
Áskorun - Þjóðarsátt um verðstöðugleika
Málsnúmer 2609187
Framlagt erindi frá Starfsgreinasambandinu um áherslur kjarasamninga vorið 2024 um að lögð verði rík áhersla að skapa efnahagslegan stöðugleika.

Bæjarstjóra falið að svara erindinu.
8.
Kjaramál og efnahagslegur stöðugleiki
Málsnúmer 2609168
Framlagt erindi frá Verslunarfélagi Reykjavíkur, Landssambandi íslenskra verslunarmanna og Rafiðnarsambandinu um áherslur efnahagslegan stöðugleika.

Bæjarstjóra falið að svara erindinu.
9.
Stjórn menningarstofu - 42
Málsnúmer 2609013F
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 15. september lögð fram til afgreiðslu.
9.1 2603195 - Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 2027
9.2 2607073 - Uppbygging annars áfanga Íslenska stríðsárasafnsins
9.3 2602053 - Verkefni menningarstofu 2026