Fara í efni

Bæjarstjórn

109. fundur
1. mars 2012 kl. 16:00 - 18:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 281
Málsnúmer 1202010F

Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.  

Til máls tóku Valdimar O. Hermannsson, Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Guðmundur Þorgrímsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Sævar Guðjónsson og Esther Ösp Gunnarsdóttir.

Fundargerð bæjarráðs, nr. 281 frá 20.febrúar 2012, samþykkt með 9 atkvæðum.

1.1 Sameining Austfirskra stoðstofnana (AST) - fundargerðir og skýrsla
1.2 Áhrif á landsbyggðina af breytingum á hlutverki Reykjavíkurflugvellar
1.3 Menningarsamningur sveitarfélaga á Austurlandi og ríkisins 2011
1.4 Samgöngunefnd SSA - Fundargerðir 2011-2012
1.5 Fundagerðir Skólaskrifstofu Austurlands 2011 - 2012
1.6 Landsþingsfulltrúar og 26.landsþing 2012
1.7 Samningur um sjúkraflutninga 2012
1.8 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 36
2.
Bæjarráð - 282
Málsnúmer 1202011F

Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.  

Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Valdimar O. Hermannsson, Guðmundur Þorgrímsson, Páll Björgvin Guðmundsson,  Sævar Guðjónsson, Esther Ösp Gunnarsdóttir og Óskar Þór Hallgrímsson.

Fundargerð bæjarráðs, nr. 282 frá 27.febrúar 2012, samþykkt með 9 atkvæðum.

2.1 Aðalfundur Sláturfélags Austurlands 19.febúar
2.2 Heildaryfirlit yfir famlög úr Jöfnunarsjóði 2011
2.3 Evrópsk viðurkenning til strandbæja
2.4 Lokun afgreiðslu Íslandspósts í Mjóafirði
2.5 Læknisþjónusta í Fjarðabyggð
2.6 Samningur um félagsþjónustu við Breiðdalshrepp
2.7 Samgönguáætlun mál 392 og 393 til umsagnar frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.
2.8 Tilfærsla málefna fatlaðs fólks til sveitarfélaga
2.9 Fundargerðir Þróunarfélags Austurlands
2.10 Fundargerðir Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands
2.11 Reglur um stuðningsfjölskyldur
2.12 Lausarstöður á Framkvæmdarsviði
2.13 Samgöngumál í Fjarðabyggð
2.14 Fundargerðir félagsmálanefndar 2012
2.15 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 36
2.16 Atvinnu- og menningarnefnd - 26
3.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 36
Málsnúmer 1202008F

Enginn tók til máls.

Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 36 frá 13.febrúar 2012, samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

3.1 Fundagerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands árið 2012
3.2 Skógræktarfélagið sækir um leyfi til að planta trjám á Fáskrúðsfirði
3.3 Samráðsfundur Skipulagsstofnunar og sveitarfélaganna
3.4 735-Deiliskipulag Dalur 1, íþróttasvæði og leikskóli ásamt br. á aðalskipulagi
3.5 Tímabundið geymslusvæði fyrir vinnuvélar ofl á Esk.
3.6 Umsókn um lóð nr. 6 að Hrauni
3.7 Leiguíbúðir Fjarðabyggðar
3.8 Project proposal on city lighting
3.9 Endurnýjun á stöðuleyfi vegna starfsmannaþorps á Haga
3.10 Samgönguáætlun mál 392 og 393 til umsagnar frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.
3.11 Fjarskiptaáætlun- mál 342 og 343 til umsagnar
3.12 Sjálfboðaliðaverkefni
3.13 735 Strandgata 30 - útlitsbreytingar
3.14 Eldsneytis birgðastöð Olíudreifingar ehf. á Reyðarfirði
3.15 Umsókn um stöðuleyfi fyrir gám
3.16 730 Skrifstofugámar vestan 620
3.17 Afgreiðslur byggingafulltrúa - 28
4.
Atvinnu- og menningarnefnd - 26
Málsnúmer 1202007F

Til máls tóku Sævar Guðjónsson, Guðmundur Þorgrímsson, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Elvar Jónsson, Jón Björn Hákonarson og Páll Björgvin Guðmundsson.

Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar, nr. 26 frá 23.febrúar 2012, samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

5.
Fundargerðir félagsmálanefndar 2012
Málsnúmer 1201123
Enginn tók til máls.
 
Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 27 frá 13. febrúar 2012, samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
6.
Samgönguáætlun mál 392 og 393 til umsagnar frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.
Málsnúmer 1202032
Páll Björgvin Guðmundsson fór yfir helstu atriði í umsögn bæjarráðs en auk þess tók Elvar Jónsson til máls. 
 
Tillaga bæjarráðs að umsögn um samgönguáætlanir borin upp og samþykkt með 9 atkvæðum.
7.
Viðauki við fjárhagsáætlun 2012 vegna málefna fatlaðs fólks.
Málsnúmer 1007146

Til máls tók Páll Björgvin Guðmundsson og fylgdi eftir tillögu um aukningu í málflokki fatlaðs fólks. Lagt er til að viðauki við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2012 verði samþykkur en hann felur í sér breytingar á fjárheimildum í málaflokki félagsmála.  Ekki er um breytingu á niðurstöðu áætlunar að ræða þar sem kostnaðaraukningu er mætt með auknu framlagi úr jöfnunarsjóði. Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum tillögu að viðauka á fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs 2012 vegna málefna fatlaðs fólks. 

 

8.
Reglur um stuðningsfjölskyldur
Málsnúmer 1105038
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum reglur um stuðningsfjölskyldur fatlaðra barna.
9.
735 - Breyting á aðalskipulagi Fjarðabyggðar vegna fyrirhugaðrar eldsneytisafgreiðslu vestan Norðfjarðarvegar
Málsnúmer 1109006

Kynningarfundur vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, vegna fyrirhugaðrar eldsneytisafgreiðslu vestan Norðfjarðarvegar, er lokið. Eigna,- skipulags- og umhverfisnefnd vísaði tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007 - 2027 til auglýsingar.

Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007 - 2027.

10.
735-Deiliskipulag Dalur 1, íþróttasvæði og leikskóli ásamt br. á aðalskipulagi
Málsnúmer 1109006
Bæjarstjórn samþykktir með 9 atkvæðum að auglýsa deiliskipulagið Dalur 1, íþróttasvæði og leikskóli á Eskifirði. 
Sævar Guðjónsson og Eshter Ösp Gunnarsdóttir viku af fundi kl. 18:30. Bókun bæjarstjórnar vegna heilbrigðismála. Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Óskar Þór Hallgrímsson, Elvar Jónsson, Valdimar O. Hermannsson og Guðmundur Þorgrímsson. 'Í framhaldi af því að velferðarráðuneytið afhenti bæjarráði