Fara í efni

Bæjarstjórn

110. fundur
15. mars 2012 kl. 16:00 - 19:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson ritari bæjarstjórnar
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 283
Málsnúmer 1202015F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.  
Til máls tóku:  Jón Björn Hákonarson. 
Fundargerð staðfest með 9 atkvæðum.
1.1 750-ófrágengnir sökklar við Skólaveg 98-112 og Hlíðargötu 68-80
1.2 Landsþingsfulltrúar og 26.landsþing 2012
1.3 Sala íbúða, Nesbakki 5-7 0102, 740
1.4 Gjaldskrá Fráveitu Fjarðabyggðar 2012
1.5 Reglur fyrir leiguíbúðir Fjarðabyggðar
1.6 Þjónustumiðstöð fyrir olíurannsóknir og vinnslu
1.7 Samningur við Fjarðabyggð
1.8 Frá Brussel til Breiðdalshrepps, febrúar 2012
1.9 Lokun afgreiðslu Íslandspósts í Mjóafirði
1.10 Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2012
1.11 Sala á fasteign að Fífubarði 11 á Eskifirði
1.12 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 37
1.13 Fundargerðir barnaverndarnefndar 2012
1.14 Hafnarstjórn - 95
2.
Bæjarráð - 284
Málsnúmer 1203003F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.  
Enginn tók til máls.
Fundargerð staðfest með 9 atkvæðum.
2.1 Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.- 23.mars 2012
2.2 Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga
2.3 Fjarðarferðir 2012
2.4 Fjarvistastefna
2.5 Forkaupsréttur að lóð nr.4 við Hraun
2.6 Fundarboð um niðurfærslu stofnsjóðs
2.7 Lokun afgreiðslu Íslandspósts í Mjóafirði
2.8 Nefnd um eflingu sveitarstjórnarstigsins
2.9 Samgönguáætlun mál 392 og 393 til umsagnar frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.
2.10 Umskipunarhöfn á Íslandi
2.11 Þjónustumiðstöð fyrir olíurannsóknir og vinnslu
2.12 Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2010 - 2014
2.13 Hafnarstjórn - 96
2.14 Atvinnu- og menningarnefnd - 27
3.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 37
Málsnúmer 1202013F
Enginn tók til máls
Fundargerð staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
3.1 Fólkvangur í Neskaupstað- afmæli
3.2 730 - Deiliskipulag Hólmanes
3.3 730 - Deiliskipulag vöruflutningahafnar - breyting
3.4 730-Deiliskipulag Bakkagerði 1, breyting
3.5 730-Deiliskipulag iðnaðarsvæðis á Kollaleiru, breyting
3.6 730-Deiliskipulag Melur 1, breyting
3.7 Tillaga að Deiluskipulagi, Kollaleiru 4
3.8 730 Fjarðabyggð, Ægisgata 6
3.9 Bréf til sveitarfélaga vegna atvinnuátaksins VINNANDI VEGUR
3.10 Byggingar í biðstöðu/stopp í Fjarðabyggð
3.11 Fjarskiptaáætlun- mál 342 og 343 til umsagnar
3.12 Götulýsing á veitusvæði RARIK
3.13 Könnun á stöðu leiguíbúða sveitafélaga þann 31.12.2011
3.14 Lóð fyrir neðan Fiskimjölsverksmiðju Eskju
3.15 Megináherslur í úrgangsmálum.
3.16 Reglur fyrir leiguíbúðir Fjarðabyggðar
3.17 Samgönguáætlun mál 392 og 393 til umsagnar frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.
3.18 Samningur um sjúkraflutninga 2012
3.19 Umsókn um leigu á sal í Félagslundi
3.20 Útbreiðsla ágengra tegunda í Fjarðabyggð
3.21 Sala íbúða, Nesbakki 5-7 0102, 740
3.22 750-ófrágengnir sökklar við Skólaveg 98-112 og Hlíðargötu 68-80
3.23 Tímabundið geymslusvæði fyrir vinnuvélar ofl á Esk.
4.
Hafnarstjórn - 95
Málsnúmer 1202012F
Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umræðu og afgreiðslu saman.
Enginn tekinn til máls.  
Fundargerð staðfest með 9 atkvæðum.
4.1 Áætlun um móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa frá skipum
4.2 Fyrirspurn um innheimtu vörugjalda
4.3 Umsókn um uppsetningu á olíutanka og afgreisðlubúnaði í Norðfjarðarhöfn.
4.4 Umsókn um lóð nr. 6 að Hrauni
4.5 Starfsmannamál hafnanna
5.
Hafnarstjórn - 96
Málsnúmer 1203002F

Fundargerðir hafnarnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

Enginn tók til máls

Fundargerð staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

5.1 Hafnarmál á Norðfirði
5.2 Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2012
5.3 Smábátahafnir Fjarðabyggð
5.4 Smábátahöfn Reyðarfirði
6.
Atvinnu- og menningarnefnd - 27
Málsnúmer 1203001F
Enginn tók til máls. 
Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
7.
Fundargerðir barnaverndarnefndar 2012
Málsnúmer 1201124
Enginn tók til máls. 
Fundargerð staðfest með 9 atkvæðum.
8.
730 - Deiliskipulag Hólmanes
Málsnúmer 1111135

Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulagi úr hlaði.

Enginn tók til máls.

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Hólmanes með 9 atkvæðum. Tillagan er sett fram á uppdrætti með greinagerð dags. 13. febrúar 2012 ásamt skýringaruppdráttum. Deiliskipulagstillagan er fyrir verndarsvæðið í Hólmanesi milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar. Meginmarkmið með tillögunni er að skilgreina aðkomu að fólkvangi og friðlandi, skilgreina þjónustusvæði og áningarstaði og bæta aðstöðu til útivistar á svæðinu í heild. Tillagan verður auglýst samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

9.
730 - Deiliskipulag vöruflutningahafnar - breyting
Málsnúmer 1111042

Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulagi úr hlaði.

Enginn tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir breytingu á deiliskipulagi Vöruflutningahafnar á Reyðarfirði með 9 atkvæðum. Breytingar fólust í að skipulagssvæðið minnkar og einni lóð var bætt við.

10.
730-Deiliskipulag Bakkagerði 1, breyting
Málsnúmer 1111058

Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulaginu úr hlaði.

Enginn tók til máls.

Breytingar felast í að raðhúsa- og parhúsalóðum við Brekkugerði er breytt í einbýlishúsalóðir, lóð fyrir spennistöð við Brekkugerði 15 er breytt í einbýlishúsalóð ásamt breytingum á lóðamörkum, nokkrum lóðum þar sem gert var ráð fyrir einnar hæðar húsum er breytt þannig að gert er ráð fyrir tveggja hæða húsum.

Bæjarstjórn samþykkir breytingu á deiliskipulagi Bakkagerðis 1 á Reyðarfirði með 9 atkvæðum.

11.
730-Deiliskipulag iðnaðarsvæðis á Kollaleiru, breyting
Málsnúmer 1111041

Forseti bæjarstjórnar fylgdi skipulaginu úr hlaði.

Enginn tók til máls.

Breytingar fólust í að skipulagssvæðið stækkar, Tjarnarvogur fellur út ásamt lóðum, nýjar lóðir eru búnar til þar sem svæðið stækkar, nokkrar lóðir eru felldar út, aðrar lóðir stækka og enn aðrar minnka.

Bæjarstjórn samþykkir breytingu á deiliskipulagi Iðnaðarsvæðis á Kollaleiru með 9 atkvæðum. 

12.
730-Deiliskipulag Melur 1, breyting
Málsnúmer 1111034

Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulagi úr hlaði.

Enginn tók til máls.

Breytingar fólust í að íbúðafjöldi eykst þannig að á svæðinu verða 10 einbýlishús, 20 íbúðir í 10 parhúsum og 57 íbúðir í 15 raðhúsum.

Bæjarstjórn samþykkir breytingu á deiliskipulaginu Melur 1 á Reyðarfirði með 9 atkvæðum.

13.
Reglur fyrir leiguíbúðir Fjarðabyggðar
Málsnúmer 1112082
Bæjarstjóri fylgdi reglunum úr hlaði.
Til máls tók Elvar Jónsson.
Reglur um almenna útleigu leiguíbúða samþykktar með 9 atkvæðum og reglur um leigu íbúða til félagasamtaka samþykktar með 9 atkvæðum.