Fara í efni

Bæjarstjórn

119. fundur
20. september 2012 kl. 16:00 - 18:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 307
Málsnúmer 1209002F
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson og Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð bæjarráðs nr. 307 frá 10.september samþykkt með 9 atkvæðum.
1.1 750 Fjarðabyggð, snjóflóðavarnir Fáskrúðsfirði
1.2 Aðalfundur Sambands sveitarfélaga Austurlandi 2012
1.3 Afslættir fasteignagjalda
1.4 Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2012
1.5 Beiðni um bætta félagsþjónstu á Stöðvarfirði
1.6 Bréf frá foreldrum barna á Sólvöllum - Saltkráku
1.7 Drög að heildstæðu frumvarpi til náttúruverndarlaga
1.8 Drög af samþykktum og dagskrá aukaaðalfundar Mennigarráðs Austurlands
1.9 Heyskapur á jörðinni Hólmum
1.10 Innkaupareglur Fjarðabyggðar
1.11 Þrautabraut í tengslum við Verkmenntaskóla Austurlands
1.12 Vatnsveita Fjarðabyggðar Fáskrúðsfirði
1.13 Fundargerðir félagsmálanefndar 2012
1.14 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 45
2.
Bæjarráð - 308
Málsnúmer 1209006F
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Valdimar O. Hermannsson, Elvar Jónsson og Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð bæjarráðs nr. 308 frá 17.september samþykkt með 9 atkvæðum.
2.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2013
2.2 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2013 - Fræðslu- og frístundanefnd
2.3 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2013 - Atvinnu- og menningarnefnd
2.4 Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2012/2013
2.5 Beiðni um bætta félagsþjónstu á Stöðvarfirði
2.6 Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2012
2.7 Fundargerðir stjórnar og framkvæmdaráðs SSA - 2012
2.8 Heilbrigðisáætlun til umsagnar
2.9 Kynning á verkefninu OpenStreetMap
2.10 Könnun sambandsins og FG á grundvelli bókunar 2 með kjarasamningi
2.11 Make it happen - lokaráðstefna
2.12 Rekstur, framlög og fjárhagsáætlun Héraðsskjalasfns Austfirðinga bs. fyrir árið 2013
2.13 Stofnun samtaka sjávarútvegssveitarfélaga
2.14 Nýir íbúar og brottfluttir í Fjarðabyggð
2.15 Snjóflóðavarnir á Drangagilssvæði í Neskaupstað
2.16 Aðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga
2.17 Fundagerðir Skólaskrifstofu Austurlands 2011 - 2012
2.18 Atvinnu- og menningarnefnd - 34
2.19 Fræðslu- og frístundanefnd - 28
2.20 Hafnarstjórn - 103
3.
Fræðslu- og frístundanefnd - 28
Málsnúmer 1209003F
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 28 frá 12.september samþykkt með 9 atkvæðum.
4.
Atvinnu- og menningarnefnd - 34
Málsnúmer 1209005F
Enginn tók til máls.
Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 34 frá 13.september samþykkt með 9 atkvæðum.
5.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 45
Málsnúmer 1208012F
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Eiður Ragnarsson, Valdimar O. Hermannsson og Páll  Björgvin Guðmundsson,
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 45 frá 3.september samþykkt með 9 atkvæðum.
5.1 730 Hraun 4 - breyting á húsnæði
5.2 730 Öldugata 5, viðbygging - grenndarkynning
5.3 735 - Deiliskipulag í botni Eskifjarðar
5.4 735 Fagrahlíð 3 - Umsókn um lóð
5.5 735 Strandgata 2 - nýframkvæmd
5.6 740 - Deiliskipulag fiskihafnar á Norðfirði
5.7 750 - Deiliskipulag, Hlíðargata 58 og nágrenni
5.8 750 - Fyrirhuguð lagnaleið vatnsveitu / göngustígur
5.9 755 - Saxa
5.10 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2013-Eigna-skipulags- og umhverfinefnd
5.11 Fráveita Fjarðabyggðar - útrásir
5.12 Frumvarp til laga - Framlenging B-gatnagerðargjalds
5.13 Fyirspurn - Byggingarleyfi og stöðuleyfi til vara - gistihúsnæði í Stöðvarfirði
5.14 Fyrirspurn - Sjálfbært Samkomuskýli Sköpunnarmiðstöðvarinnar á Stöðvarfirði
5.15 Landsskipulagsstefna 2012-2024
5.16 Lóðarsamningur vegna Strandgata 64
5.17 Lýsing í íþóttahúsinu Norðfirði
5.18 Niðurfelling vega af vegaskrá
5.19 Samstarf er lykill að árangri
5.20 Útgáfa landsáætlunar um meðhöndlun úrgangs 2012-2023
6.
Hafnarstjórn - 103
Málsnúmer 1209004F
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 103 frá 13.september samþykkt með 9 atkvæðum.
6.1 Beiðni um styrk til viðhalds bryggju við Strandgötu 60b
6.2 Endurbætur gamalla bryggja í Fjarðabyggð
6.3 Fjögurra ára samgönguáætlun 2013-2016
6.4 Fundagerðir CI á árinu 2012
6.5 Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2012
6.6 Rafvæðing gámakrana Mjóeyrarhöfn
6.7 Brú yfir Lambeyrará
6.8 Fjárhagsáætlun 2013 - Hafnarstjórn
7.
Fundargerðir félagsmálanefndar 2012
Málsnúmer 1201123
Til máls tóku Páll Björgvin Guðmundsson, Valdimar O. Hermannsson og Elvar Jónsson.
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 33 frá 3.september samþykkt með 9 atkvæðum.
8.
750 - Deiliskipulag, Hlíðargata 58 og nágrenni
Málsnúmer 1112072
Forseti fylgi deiliskipulagstillögunni úr hlaði. Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkti 21. júní 2012 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Hlíðargötu 58 og nágrenni á Fáskrúðsfirði ásamt umhverfisskýrslu. Deiliskipulagstillagan, ásamt umhverfisskýrslunni, var auglýst frá 5. júlí til og með 16. ágúst 2012. Athugsemdafrestur var til sama tíma. Engar athugasemdir bárust.  Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum deiliskipulag vegna Hlíðargötu 58 og nágrennis.
9.
Snjóflóðavarnir á Drangagilssvæði í Neskaupstað
Málsnúmer 1209085
Bæjarstjóri lagði fram viðauka nr. 5 við fjárhagsáætlun 2012 er varðar brýnt viðhald vegna snjóflóðavarna á Drangagilssvæðinu í Neskaupstað. Lagt er til við bæjarstjórn að 3 millj. kr. verði færðar af fjárfestingarlið fjárhagsáætlunar 2012 vegna snjóflóðavarna í Tröllagili til viðhalds ofanflóðavarna í Drangagili enda sé sá liður lægri sem upphæðinni nemur fyrir árið 2012. Mun færsla fjármuna því ekki hafa áhrif á heildarfjárflæði a-hluta samstæðu sveitarfélagsins árins 2012. Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 5 með 9 atkvæðum.