Fara í efni

Bæjarstjórn

145. fundur
5. desember 2013 kl. 16:00 - 18:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson Forseti bæjarstjórnar
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir Aðalmaður
Elvar Jónsson Aðalmaður
Eiður Ragnarsson Aðalmaður
Ásta Eggertsdóttir Varamaður
Stefán Már Guðmundsson Aðalmaður
Borghildur Hlíf Stefánsdóttir Varamaður
Óskar Þór Hallgrímsson Varamaður
Gunnar Jónsson Embættismaður
Páll Björgvin Guðmundsson Bæjarstjóri
Benedikt Jóhannsson Varamaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 366
Málsnúmer 1311017F
Fundargerðin lögð fram til afgreiðslu.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Stefán Már Guðmundsson, Elvar Jónsson, Óskar Þór Hallgrímsson,
Fundargerð bæjarráðs frá 2. desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
1.1 Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2013/2014
1.2 Kaup á Fjarðarbraut 53 Stöðvarfirði
1.3 Kaupvangur - beiðni um styrk vegna endurgerðar hússins
1.4 Mótmæli gegn niðurskurði heilsugæslu á Fáskrúðsfirði
1.5 Fjölskyldumeðferð SÁÁ - Helgarnámskeið í Fjarðabyggð
1.6 740 Naustahvammur 60 - umsókn um lóð
1.7 Fyrirspurn um hugsanlega leigu eða kaup á hluta af eyðibýlinu Hvalnesi
1.8 Bókun frá bæjarstjórn Seyðisfjarðarkaupstað um ferjusiglingar - Smyril line
1.9 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2014 - fasteignagjöld
1.10 Til athugunar varðandi álagningarhlutfall útsvars fyrir árið 2014
1.11 Bréf frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga(EFS)til endurskoðenda sveitarfélaga
1.12 Fjármál sveitarfélaga, Fjárhagsleg viðmið og upplýsingar um fjármál sveitarfélaga
1.13 Mögulegt ólögmæti lána LS frá 2006
1.14 Aðlögunaráætlun 2013-2023 og Fjárhagsáætlun 2014-2017
1.15 Reikningagerð veitufyrirtækja
1.16 Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2013
1.17 Fundagerðir 2013 - Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum
1.18 152.mál til umsagnar - um breytingu á sveitarstjórnarlögum
1.19 159.mál til umsagnar - um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði (heildarlög)
1.20 160.mál til umsagnar - um lífsýnasöfn (söfn heilbrigðisupplýsinga og leitargrunnar)
1.21 167.mál til umsagnar - um náttúruvernd (brottfall laganna)
1.22 186.mál til umsagnartil - um barnaverndarlög (rekstur heimila fyrir börn)
1.23 Breytingar á nefndarskipan sjálfstæðisflokks á kjörtímabilinu 2010-2014
1.24 Fundargerðir barnaverndarnefndar 2013
1.25 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 81
2.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 81
Málsnúmer 1311018F
Fundargerðir eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar tekin til afgreiðslu.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Eiður Ragnarsson, Ásta Eggertsdóttir, Elvar Jónsson, Stefán Már Guðmundsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Óskar Þór Hallgrímsson.
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 18. nóvember samþykkt með 9 atkvæðum.
3.
Fundargerðir barnaverndarnefndar 2013
Málsnúmer 1301075
Fundargerðin lögð fram til afgreiðslu.
Enginn tók til máls.
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 39 frá 19.11. staðfest með 9 atkvæðum.
4.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2014 - fasteignagjöld
Málsnúmer 1310175
Forseti bæjarstjórnar fylgdi reglum úr hlaði.
Lögð fram til umræðu tillaga fjármálastjóra að reglum um afslátt af fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega á árinu 2014.
Til máls tóku: Eiður Ragnarsson,
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum reglur um afslátt af fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega.
5.
Álagningarhlutfall útsvars fyrir árið 2014
Málsnúmer 1311187
Forseti bæjarstjórnar fylgdi tillögu úr hlaði vegna útsvarsálagningar á árinu 2014.
"Bæjarstjórn samþykkir, með fyrirvara um að lögum nr. 4/1945 um tekjustofna sveitarfélaga verði breytt á Alþingi fyrir 31. desember, að útsvar á árinu 2014 skuli nema 14,52%. Gangi fyrirhugaðar lagabreytingar ekki í gegn stendur fyrri ákvörðun bæjarstjórnar frá 144. fundi um að útsvar skuli á árinu 2014 nema 14,48% af tekjum."
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum tillöguna.
6.
Umferðaröryggi við leik- og grunnskóla og íþróttamannvirki
Málsnúmer 1311091
Bæjarstjóri lagði fram tillögu um umferðaöryggismál.

"Lagt er til að sveitarfélagið hafi forgöngu um aðgerðir sem miða að bættri umferðarmenningu í Fjarðabyggð, með áherslu á akandi, hjólandi og gangandi vegfarendur í grennd við skóla, leikvelli og íþróttahús.

Greinargerð
Settur verði á fót samráðshópur sem í sitji bæjarstjóri og fræðslustjóri, fyrir hönd sveitarfélagsins, fulltrúi frá lögreglu og formenn foreldrafélaga grunnskólanna.
Samráðshópnum er ætlað að stuðla að aukinni umræðu um umferðaröryggismál barna og ungmenna í bæjarkjörnum sveitarfélagsins, sem nýst getur m.a. við yfirstandandi endurskoðun á umferðarsamþykkt sveitarfélagsins. Hópurinn vinni einnig að aðgerðum sem miða að bættri umferðamenningu í samstarfi foreldra, lögreglu og fræðsluyfirvalda í Fjarðabyggð."
Til máls tóku: Elvar Jónsson, Ásta Eggertsdóttir, Stefán Már Guðmundsson, Jón Björn Hákonarson.
Tillagan er samþykkt með 9 atkvæðum.