Fara í efni

Bæjarstjórn

147. fundur
9. janúar 2014 kl. 16:00 - 18:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson Forseti bæjarstjórnar
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir Aðalmaður
Elvar Jónsson Aðalmaður
Eydís Ásbjörnsdóttir Aðalmaður
Guðmundur Þorgrímsson Aðalmaður
Jens Garðar Helgason Aðalmaður
Sævar Guðjónsson Aðalmaður
Valdimar O Hermannsson Aðalmaður
Stefán Már Guðmundsson Varamaður
Gunnar Jónsson Embættismaður
Páll Björgvin Guðmundsson Bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 369
Málsnúmer 1401001F
Fundargerð bæjarráðs til umfjöllunar og afgreiðslu.
Til máls tóku: Jens Garðar Helgason, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Elvar Jónsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 6. janúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
1.1 Fjárhagsáætlun 2013 - viðauki 8
1.2 Breyting á reglum um afskriftanefnd viðskiptakrafna
1.3 Reglur um styrkveitingar til greiðslu fasteignaskatts
1.4 Reglur um ferðakostnað starfsmanna Fjarðabyggðar
1.5 Reglur um upplýsingatæknimál
1.6 Starfsleyfi fyrir Gámaþjónustu Austurlands vegna starfseminnar að Hafnargötu 6 á Reyðarfirði.
1.7 Fjarskiptamál í Mjóafirði
1.8 NORA - Experience exchange project
1.9 Sameining lífeyrissjóða sveitarfélaga
1.10 Endurgreiðsluhlutfall launagreiðenda á greiddum lífeyri lífeyrisþega í fyrrum Lífeyrissjóði Neskaupstaðar
1.11 Veittur styrkur til viðgerðar á Lúðvíkshúsi
1.12 Veittur styrkur til viðgerðar á bragga/bröggum Stríðsárasafnsins á Reyðarfirði
1.13 Veitur styrk til endurbyggingar steinsteyptrar fjárréttar í Norðfirði
1.14 Nýir íbúar og brottfluttir í Fjarðabyggð 2013
1.15 Ársreikningur 2012 - Veturhús
1.16 Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 2013
1.17 Aðalfundur - Sjóminjasafn Austurlands 12. september 2013
1.18 Fundargerðir stjórnar SSA - 2013
1.19 Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2013
2.
Fjárhagsáætlun 2013 - viðauki 8
Málsnúmer 1401001
Bæjarstjóri fylgdi viðaukanum úr hlaði.
Viðauki nr. 8 við fjárhagsáætlun 2013 er varðar símenntun, námsstyrki, veikindapott og liðsstyrksverkefni, til afgreiðslu bæjarstjórnar. Viðaukinn fjallar einvörðungu um tilfærslu fjármuna milli sviða innan fjárhagsáætlunar aðalsjóðs fyrir árið 2013.
Enginn tók til máls.
Viðauki 8 er staðfestur af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
3.
Breyting á reglum um afskriftanefnd viðskiptakrafna
Málsnúmer 1110166
Forseti bæjarstjórnar fylgdi reglunum úr hlaði.
Breyttar reglur um afskriftarnefnd viðskiptakrafna lagðar fram til staðfestingar bæjarstjórnar.
Enginn tók til máls.
Reglurnar eru staðfestar af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
4.
Reglur um ferðakostnað starfsmanna Fjarðabyggðar
Málsnúmer 1312079
Forseti bæjarstjórnar fylgdi reglunum úr hlaði.
Reglur um ferðakostnað starfsmanna Fjarðabyggðar, lagðar fram til staðfestingar bæjarstjórnar.
Enginn tók til máls.
Reglurnar eru staðfestar af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
5.
Reglur um styrkveitingar til greiðslu fasteignaskatts
Málsnúmer 1312097
Forseti bæjarstjórnar fylgdi reglunum úr hlaði.
Endurskoðaðar reglur, um styrki vegna fasteignaskatts m.t.t. endurgerðar húsa, lagðar fram til staðfestingar bæjarstjórnar.
Til máls tók Páll Björgvin Guðmundsson.
Reglurnar eru staðfestar af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
6.
Reglur um upplýsingatæknimál
Málsnúmer 1310150
Forseti bæjarstjórnar fylgdi reglunum úr hlaði.
Reglur um tölvpóst og netnotkun annarsvegar og reglur um almenna tölvunotkun starfsmanna upplýsingatæknikerfa hinsvegar, lagðar fram til staðfestingar bæjarstjórnar.
Enginn tók til máls.
Reglurnar eru staðfestar af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.