Fara í efni

Bæjarstjórn

160. fundur
21. ágúst 2014 kl. 16:00 - 00:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson Forseti bæjarstjórnar
Pálína Margeirsdóttir Aðalmaður
Svanhvít Yngvadóttir Varamaður
Elvar Jónsson Aðalmaður
Eydís Ásbjörnsdóttir Aðalmaður
Esther Ösp Gunnarsdóttir Aðalmaður
Jens Garðar Helgason Aðalmaður
Sævar Guðjónsson Varamaður
Dýrunn Pála Skaftadóttir Varamaður
Gunnlaugur Sverrisson Embættismaður
Páll Björgvin Guðmundsson Bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
Dagskrá
1.
Flúormælingar 2014
Málsnúmer 1407100
Að loknum fundi með fulltrúum Umhverfisstofnunar og Matvælastofnunar telur eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd (ESU) ljóst, miðað við þær upplýsingar sem fyrir liggja, að almenningi stafar ekki hætta af flúorlosun frá Alcoa Fjarðaáli í Reyðarfirði. Stakar flúormælingar fela af margvíslegum ástæðum í sér afar takmarkað upplýsingagildi og mynda langtímamælingar af þessum sökum þann viðmiðunarkvarða sem gæta verður að í þessu sambandi. Mælingar hafa staðið óslitið yfir frá því að álverið í Reyðarfirði hóf starfsemi og er ekkert í þeim niðurstöðum sem bendir til þess að íbúum sé hætt vegna flúorlosunar álversins. ESU leggur þunga áherslu á mikilvægi þess fylgst sé af kostgæfni með mögulegum hættum sem íbúum og umhverfi kann að stafa af losun lofttegunda frá umræddri starfsemi. Á það ekki einungis við um sjálfar mælingarnar og úrvinnslu þeirra heldur einnig upplýsingamiðlun til almennings. Nefndin leggur ekki síður þunga áherslu á, að Alcoa Fjarðaál framfylgi áfram, sem hingað til, ýtrustu varúðarreglum gagnvart mögulegum umhverfisáhrifum og aðgæti með reglubundnum hætti hvort ástæða sé til að herða slíkar reglur enn frekar eða framkvæmd þeirra. Í ljósi þess að fréttaflutningur af flúormælingum í Reyðarfirði hefur ítrekað og að nauðsynjalausu vakið áhyggjur hjá íbúum í Fjarðabyggð af heilsufarslegu öryggi, beinir ESU því til bæjarstjórnar að hlutlægar upplýsingar verði gerðar aðgengilegar íbúum á vef sveitarfélagsins, í samstarfi við fagaðila og fræðimenn s.s. hjá Náttúrustofu Austurlands, Umhverfisstofnun, Matvælastofnun og háskólasamfélaginu. Sú staða er ekki ásættanleg fyrir Fjarðabúa að þeir telji ástæðu til að vantreysta áhrifum nánasta umhverfis á líf sitt og heilsu, eigi það ekki við full rök að styðjast. ESU leggur einnig til við yfirstjórn Umhverfisstofnunar og Matvælastofnunar, að kannað verði hvort leggja þurfi, í samskiptum þessara stofnana við fjölmiðla, aukna áherslu á faglega og gagnsæja miðlun upplýsinga til almennings.
Til máls um bókun eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar tóku Esther Ösp Gunnarsdóttir, Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Jens Garðar Helgason og Elvar Jónsson.

Bæjarstjórn tekur undir bókun eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 11.ágúst sl. og samþykkir að komið verði upp upplýsingatorgi á heimasíðu sveitarfélagsins, þar sem íbúar geti nálgast upplýsingar um flúormælingar í Reyðarfirði í samstarfi við fagaðila og fræðimenn. Þá verði farið ítarlega yfir alla þætti málsins á opnum íbúafundi á Reyðarfirði þann 9.september nk.

Bókun samþykkt með 8 atkvæðum. Esther Ösp situr hjá við afgreiðslu á bókun nefndarinnar.
2.
Fjárhagsáætlun 2014 - Kjarasamningar - viðauki 7
Málsnúmer 1408060
Forseti bæjarstjórnar fylgdi viðaukanum úr hlaði en um er að ræða viðauka nr. 7 við fjárhagsáætlun 2014, vegna metinna áhrifa kjarasamninga og annarra launabreytinga. Lagt er til að gerð verði breyting á rekstrarkostnaði Fjarðabyggðar og stofnana á árinu 2014 í samræmi við vænt áhrif launakostnaðar í ljósi nýrra kjarasamninga og annarra breytinga m.a. nýju starfsmati. Áætlun ársins 2014 með samþykktum viðaukum gerði ráð fyrir að heildar launaútgjöld ársins 2014 yrðu kr. 2.222.654.992 en með ofangreindum breytingum verða áætluð launaútgjöld ársins 2014 kr. 2.342.153.586. Breytingin nemur kr. 119.498.594 og skiptist þannig að kr. 112.911.998 er vegna breytinga í rekstri aðalsjóðs, kr. 4.586.523 vegna breytinga í rekstri hafnarsjóðs, kr. 462.904 vegna breytinga í rekstri hitaveitu, kr. 633.689 vegna breytinga í rekstri fráveitu, kr. 699.423 vegna breytinga í rekstri vatnsveitu og kr. 204.057 vegna breytinga í rekstri sorpsamlags. Lagt er til að þessi útgjaldaaukning verði fjármögnuð af eigin fé aðalsjóðs og stofnana. Handbært fé aðalsjóðs mun lækka um kr. 119.498.594 og verða áætlað kr. 276.615.406 í árslok 2014.
Viðauki lagður fram og samþykktur með 9 atkvæðum.
3.
Bæjarráð - 393
Málsnúmer 1408006F
Til máls tóku Jens Garðar Helgason og Eydís Ásbjörnsdóttir.
Fundargerð bæjarráðs nr. 393 frá 18.ágúst 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
4.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 98
Málsnúmer 1408004F
Enginn tók til máls.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 98 frá 11.ágúst 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
5.
Fræðslunefnd - 2
Málsnúmer 1408003F
Til máls tók Elvar Jónsson.
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 2 frá 12.ágúst 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
6.
Fundargerðir félagsmálanefndar 2014
Málsnúmer 1401186
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 56 frá 11.ágúst 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
7.
Bæjarráð - 392
Málsnúmer 1408002F
Fundargerð bæjarráðs, nr. 392 frá 11. ágúst 2014, lögð fram til umræðu og kynningar.
8.
Bæjarráð - 391
Málsnúmer 1407007F
Fundargerð bæjarráðs, nr. 391 frá 25. júlí 2014, lögð fram til umræðu og kynningar.
9.
Bæjarráð - 390
Málsnúmer 1407002F
Fundargerð bæjarráðs, nr. 390 frá 4. júlí 2014, lögð fram til umræðu og kynningar.
10.
Bæjarráð - 389
Málsnúmer 1406007F
Fundargerð bæjarráðs, frá nr. 389 frá 30. júní 2014, lögð fram til umræðu og kynningar.