Fara í efni

Bæjarstjórn

165. fundur
30. október 2014 kl. 16:00 - 00:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson Forseti bæjarstjórnar
Eiður Ragnarsson Aðalmaður
Pálína Margeirsdóttir Aðalmaður
Elvar Jónsson Aðalmaður
Eydís Ásbjörnsdóttir Aðalmaður
Einar Már Sigurðarson Aðalmaður
Kristín Gestsdóttir Aðalmaður
Valdimar O Hermannsson Aðalmaður
Dýrunn Pála Skaftadóttir Varamaður
Gunnlaugur Sverrisson Embættismaður
Páll Björgvin Guðmundsson Bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 - aðalmál
Málsnúmer 1407033
Fyrri umræða um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2015.
Bæjarstjóri fylgdi fjárhagsáætlun og starfsáætlun úr hlaði með greinargerð.
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Valdimar O. Hermannsson, Elvar Jónsson, Pálína Margeirsdóttir, Einar Már Sigurðarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Eiður Ragnarsson, Kristín Gestsdóttir og Dýrunn Pála Skaftadóttir.
Bókun Fjarðalistans.
"Bæjarfulltrúar Fjarðalistans samþykkja að vísa fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 til seinni umræðu í bæjarstjórn með fyrirvara um forgangsröðun, sérstaklega í fræðslumálum. Einnig er mjög mörgum mikilvægum spurningum ósvarað um aðgerðir og framkvæmdaáætlanir."
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2015, auk starfsáætlunar, til síðari umræðu í bæjarstjórn 4. desember nk.
2.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016 - 2018
Málsnúmer 1408015
Fyrri umræða um þriggja ára fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árin 2016 til 2018.
Bæjarstjóri fylgdi fjárhagsáætluninni úr hlaði með greinargerð.
Til máls tóku Eydís Ásbjörnsdóttir og Elvar Jónsson.
Bókun Fjarðalistans.
"Bæjarfulltrúar Fjarðalistans samþykkja að vísa fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016 - 2018 til seinni umræðu í bæjarstjórn með fyrirvara um forgangsröðun, sérstaklega í fræðslumálum. Einnig er mjög mörgum mikilvægum spurningum ósvarað um aðgerðir og framkvæmdaáætlanir."
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa þriggja ára fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2016 til 2018 til síðari umræðu í bæjarstjórn 4. desember nk.
3.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 - útsvarsálagning
Málsnúmer 1410111
Forseti bæjarstjórnar bar fram tillögu að útsvarsálagningu 2015.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 9 atkvæðum að útsvarshlutfall ársins 2015 verði 14,48% af tekjum einstaklinga í Fjarðabyggð. Með þessu er útsvarsheimild sveitarfélagsins fullnýtt á árinu 2015. Sá fyrirvari er gerður að ef Alþingi samþykkir hækkun á hámarksútsvari á árinu 2015, fyrir árslok um 0,04% sem sérstakt álag vegna málefna fatlaðs fólks, skal útsvarshlutfall hækka samsvarandi og verða þá 14,52%
4.
Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2014/2015
Málsnúmer 1409057
Forseti bæjarstjórnar fylgdi reglum um byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2014 til 2015 úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Sérreglur vegna byggðakvóta fiskveiðiársins 2014 til 2015 samþykktar með 9 atkvæðum.
5.
Bæjarráð - 402
Málsnúmer 1410012F
Fundargerðir bæjarráðs, nr. 402 og 403, teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Valdimar O. Hermannsson og Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 402 frá 20.október 2014, utan liðar 1.14., samþykkt með 9 atkvæðum.
5.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 - aðalmál
5.2 Fundir sveitarstjórna með fjárlaganefnd Alþingis haustið 2014
5.3 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 auk starfsáætlunar - Menningar- og safnanefnd
5.4 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
5.5 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - Bæjarráð
5.6 Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 2015
5.7 Gjaldskrá félagslegrar heimaþjónustu 2015
5.8 Gjaldskrá framkvæmdaleyfa og þjónustugjalda
5.9 Gjaldskrá fráveitu Fjarðabyggðar 2015
5.10 Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 2015
5.11 Gjaldskrá gatnagerðargjalda 2015
5.12 Gjaldskrá hitaveitu Fjarðabyggðar 2015
5.13 Gjaldskrá hunda- og kattahalds 2015
5.14 Gjaldskrá og reglur vegna skipulagðra samgangna 2015
5.15 Gjaldskrá slökkviliðs Fjarðabyggðar 2015
5.16 Gjaldskrá tjaldsvæða 2015
5.17 Gjaldskrá vatnsveitu Fjarðabyggðar 2015
5.18 Gjaldskrár fyrir íþrótta- og tómstundastofnanir 2015
5.19 Gjaldskrár í fræðslustofnunum
5.20 Íbúafundur á Reyðarfirði október 2014
5.21 Vatnsveita Fjarðabyggðar - vatnsból Norðfirði
5.22 Drög að rafrænni handbók um öryggi og velferð barna í grunnskólum - frestur til athugasemda til 31. október nk.
5.23 Löggæslumálefni, framkvæmdavald og stjórnsýsla ríkisins í héraði
5.24 Tilnefningar til Skipulagsverðlaunanna 2014
5.25 Upplýsingar um framkvæmd verðhækkana
5.26 Þokusetur
5.27 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 - útsvarsálagning
5.28 Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2014/2015
5.29 Mennta - og menningarmálaráðuneytið hefur sett í opið samráðsferli, breytingar á grunnskólum er varða frístundaheimili.
5.30 157.mál til umsagnar frumvarp til laga um vegalög (gjaldtaka af umferð o.fl., EES-reglur)
5.31 214.mál til umsagnar frumvarp til laga um framhaldsskóla
5.32 Nýsköpunarráðstefna og nýsköpunarverðlaunin í opinberri þjónustu og stjórnsýslu - óskað eftir tilnefningum - skilafrestur til 7. nóvember
5.33 Bréf til bæjarráðs frá BRJÁN og Hljóðkerfaleigu Austurlands
5.34 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 104
6.
Bæjarráð - 403
Málsnúmer 1410018F
Fundargerðir bæjarráðs, nr. 402 og 403, teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Valdimar O. Hermannsson og Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 403 frá 27.október 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
6.1 Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 2015
6.2 Gjaldskrá hitaveitu Fjarðabyggðar 2015
6.3 Gjaldskrá tjaldsvæða 2015
6.4 Gjaldskrár í fræðslustofnunum
6.5 Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 2015
6.6 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - Fræðslunefndar
6.7 Starfsáætlun 2015 - fræðslumál
6.8 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - Íþrótta- og tómstundanefndar
6.9 Starfsáætlun 2015 - Íþrótta- og tómstundamál
6.10 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - Félagsmálanefnd
6.11 Starfsáætlun 2015 - félagsmál
6.12 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 - fasteignagjaldaálagning
6.13 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 - aðalmál
6.14 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016 - 2018
6.15 Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2014/2015
6.16 Umsókn um styrk til bæjarráðs vegna Selláturs
6.17 Öldungamót í blaki á Norðfirði 2015
6.18 Framlag Fjarðabyggðar til Sjóminjasafns Austurlands
6.19 Viðurkenning Sjóminjasafns Austurlands
6.20 Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2013 og 2014
6.21 Ársfundur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum 10.okt. 2014
6.22 Aðalfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga 2014 - 6.nóvember
6.23 257.mál til umsagnar frumvarp til laga um sérhæfða þjónustumiðstöð á sviði heilbrigðis- og félagsþjónustu (heildarlög)
6.24 Íþrótta- og tómstundanefnd - 6
6.25 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 105
6.26 Fræðslunefnd - 7
6.27 Hafnarstjórn - 139
6.28 Fundargerðir félagsmálanefndar 2014
7.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 104
Málsnúmer 1410010F
Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 104 og 105, teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Eiður Ragnarsson og Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 104 frá 13.október 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
8.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 105
Málsnúmer 1410015F
Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 104 og 105, teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Eiður Ragnarsson og Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 105 frá 23.október 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
9.
Hafnarstjórn - 139
Málsnúmer 1410013F
Til máls tók Valdimar O. Hermannsson.
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 139 frá 21.október 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
9.1 Aðalfundur Fiskmarkaður Austurlands 2014
9.2 Beiðni um stuðning við námskeiðshald fyrir leiðsögumenn
9.3 Fjárlög til hafnaframkvæmda og hafnalög
9.4 Ósk um stuðning við frágang á lóð við hús sveitarinnar.
9.5 Tillaga að lagfærinu við Norðfjarðarvita
9.6 Lóð fyrir nýtt netaverkstæði Fjarðanets í Neskaupstað
9.7 Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 2015
10.
Fræðslunefnd - 7
Málsnúmer 1410014F
Til máls tóku Elvar Jónsson, Pálína Margeirsdóttir, Jón Björn Hákonarson og Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 7 frá 21.október 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
10.1 Vakin er athygli á að mennta - og menningarmálarn. hefur sett í opið samráðsferli breytingar á grunnskólum er varða frístundaheimili.
10.2 Undirbúningur að stefnumótun í fræðslu- og frístundamálum
10.3 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - Fræðslunefndar
10.4 Staðan í kjarasamningum tónlistarkennara og sveitarfélaga
10.5 Starfsáætlun 2015 - fræðslumál
10.6 Gjaldskrár í fræðslustofnunum
10.7 214.mál til umsagnar frumvarp til laga um framhaldsskóla
11.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 6
Málsnúmer 1410016F
Enginn tók til máls.
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 6 frá 23.október 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
11.1 Strandblakvöllur Fáskrúðfirði - umsókn.
11.2 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - Íþrótta- og tómstundanefndar
11.3 Starfsáætlun 2015 - Íþrótta- og tómstundamál
12.
Fundargerðir félagsmálanefndar 2014
Málsnúmer 1401186
Enginn tók til máls.
Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 60 frá 20.október 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.