Fara í efni

Bæjarstjórn

168. fundur
4. desember 2014 kl. 16:00 - 00:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson Forseti bæjarstjórnar
Eiður Ragnarsson Aðalmaður
Pálína Margeirsdóttir Aðalmaður
Elvar Jónsson Aðalmaður
Eydís Ásbjörnsdóttir Aðalmaður
Einar Már Sigurðarson Aðalmaður
Jens Garðar Helgason Aðalmaður
Valdimar O Hermannsson Aðalmaður
Ragnar Sigurðsson Varamaður
Gunnlaugur Sverrisson Embættismaður
Páll Björgvin Guðmundsson Bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
Dagskrá
1.
Viðmiðunarreglur um úthlutun kennslutímamagns
Málsnúmer 1409039
Nýjar viðmiðunarreglur um úthlutun tímamagns til grunnskóla, vísað frá bæjarráði. Fræðslunefnd hefur samþykkt reglurnar, fyrir sitt leyti.
Forseti bæjarstjórnar fylgdi viðmiðunarreglum úr hlaði og gerði grein fyrir sameiginlegri bókun bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn samþykkir nýjar viðmiðunarreglur um úthlutun kennslutímamagns með fyrirvara um að þær verði skoðaðar, sem og fræðslumál sveitarfélagsins í heild, í úttekt KPMG sem vinna er hafin við. Um úttektina verði fjallað innan viðeigandi nefnda og meðal íbúa Fjarðabyggðar. Úttektin í heild sinni verður tekin til umfjöllunar í bæjarstjórn í mars 2015 og þá tekin afstaða til viðmiðunarreglna um úthlutun kennslutímamagns."
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir viðmiðunarreglur um úthlutun tímamagns til grunnskóla með 9 atkvæðum.
2.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 - aðalmál
Málsnúmer 1407033
Seinni umræða um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 ásamt starfsáætlunum einstakra málaflokka.

Bæjarstjóri fylgdi úr hlaði síðari umræðu um fjárhagsáætlun 2015 og starfsáætlanir stofnana.

Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jens Garðar Helgason og Einar Már Sigurðarson.

Niðurstöður fjárhagsáætlunar 2015 fyrir Fjarðabyggð og stofnanir með áorðnum breytingum eru eftirfarandi:

Tölur í þús.kr.

Rekstrarniðurstaða Fjárfestingar Afborganir langtímalána
og leiguskuldbindinga

Samstæða A -hluta 26.308 287.500 428.023
Samstæða B-hluta 324.553 375.000 185.162
Samstæða A og B hluta 350.861 662.500 613.184

Bókun Fjarðalistans:
Bæjarfulltrúar Fjarðalistans samþykkja fjárhagsáætlun fyrir árið 2015 með vísan í sameiginlega bókun við afgreiðslu á nýjum viðmiðunarreglum um úthlutun kennslutímamagns.

Bæjarstjórn samþykkir fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og starfsáætlanir stofnana fyrir árið 2015 með 9 atkvæðum.
3.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016 - 2018
Málsnúmer 1408015
Seinni umræða um þriggja ára áætlun Fjarðabyggðar og stofnana 2016 - 2018.
Bæjarstjóri fylgi umræðu úr hlaði.

Til máls tóku Elvar Jónsson og Jens Garðar Helgason.

Bókun Fjarðalistans:
Bæjarfulltrúar Fjarðalistans samþykkja fjárhagsáætlun fyrir árin 2016 - 2018 með vísan í sameiginlega bókun við afgreiðslu á nýjum viðmiðunarreglum um úthlutun kennslutímamagns.

Þriggja ára fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árin 2016 til 2018 samþykkt með 9 atkvæðum.
4.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 - fasteignagjaldaálagning
Málsnúmer 1410165
Forseti bæjarstjórnar gerði grein fyrir álagningarstofnum fasteignagjalda 2015 og afslætti af fasteignaskatti elli- og örorkulíferisþega.

Enginn tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 9 atkvæðum að fasteignagjöld ársins 2015 verði sem hér segir:

Fasteignaskattur A verði 0,48 % 1 af húsmati og lóðarhlutamati.
Fasteignaskattur B verði 1,32 % 2 af húsmati og lóðarhlutamati.
Fasteignaskattur C verði 1,63 % 3 af húsmati og lóðarhlutamati.
Lóðarleiga íbúðarhúsnæðis verði 0,53 % af lóðarhlutamati.
Lóðarleiga atvinnuhúsnæðis verði 2,00% af lóðarhlutamati.
Vatnsgjald verði 0,28 % af húsmati.
Holræsagjald verði 0,32 % af húsmati.
Sorphreinsunargjald verði 23.050 kr. á heimili.
Sorpeyðingargjald verði 10.940 kr. á heimili.
Fjöldi gjalddaga verði átta, mánaðarlega frá 1. febrúar.
Eindagi fasteignagjalda verður síðasti virki dagur gjalddagamánaðar.

Jafnframt samþykkir bæjarstjórn samhljóða með 9 atkvæðum að afsláttur á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega verði sem hér segir:

a) Hámarks afsláttur af fasteignaskatti fylgi breytingum fasteignamatsstofns og verði kr. 53.541 á árinu 2015.
b) Afsláttur fasteignaskatts er tekjutengdur og miðast við árstekjur ársins 2014 samanber álagningu skattstjóra á árinu 2015 og skulu tekjumörk vera sem hér segir:
Einstaklingar: Brúttótekjur allt að kr. 2.713.597 - 100 % afsláttur
Brúttótekjur yfir kr. 3.588.669 - 0 % afsláttur
Hjón og samskattað sambýlisfólk: Brúttótekjur allt að kr. 4.121.608 - 100 % afsláttur
Brúttótekjur yfir 4.926.043 - 0 % afsláttur
5.
Bygging leikskóla á Neseyri
Málsnúmer 1402081
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum verksamning við Vélaverkstæði Hjalta Einarssonar hf. vegna byggingar nýs leikskóla í Neskaupstað, að því gefnu að verkábyrgð liggi fyrir við undirritun verksamnings.
6.
740 - Deiliskipulag miðbæjar Norðfjarðar
Málsnúmer 1302169
Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulagstillögunni úr hlaði.
Bæjarstjórn samþykkir deiliskipulag miðbæjar Neskaupstaðar, skipulagsuppdráttur, greinagerð og skýringaruppdrættir, dags. 9. júlí 2014 br. 1. desember 2014, með þeim breytingum sem fram koma á uppdrætti og í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. október 2014 nema að nafni skipulagsins verði breytt í Deiliskipulag miðbæjar Neskaupstaðar. Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga þegar gögn hafa verið lagfærð í samræmi við samþykkt.
Til máls tóku Eiður Ragnarsson, Einar Már Sigurðarson og Jens Garðar Helgason.
Deiliskipulagstillaga samþykkt með 9 atkvæðum.
7.
Aðalskipulagsbreyting Norðfjarðarhafnar
Málsnúmer 1411134
Tillaga framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna vegna vinnu við breytingu aðal- og deiliskipulags fyrir Norðfjarðarhöfn.
Forseti fylgdi tillögu úr hlaði. Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að hefja vinnu við breytingu aðal- og deiliskipulags fyrir Norðfjarðarhöfn.
8.
Bæjarráð - 407
Málsnúmer 1411011F
Fundargerðir bæjarráðs nr. 407 og 408 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Jón Björn Hákonarson og Einar Már Sigurðarson.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 407 frá 24.nóvember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
8.1 Stefna Fjarðabyggðar í efnahags- og atvinnumálum
8.2 Verkefnahópur um málefni Stöðvarfjarðar - erindisbréf
8.3 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 - aðalmál
8.4 Flugsaga Austurlands - umsókn um styrk
8.5 Málefni Upplýsingamiðstöðvar Austurlands
8.6 Áskorun til sveitarstjórnar Fjarðabyggðar vegna verkfalls tónskólakennara
8.7 Gjaldtaka Fasteignaskrár Íslands vegna fasteignamats
8.8 Fundargerðir barnaverndarnefndar 2014
9.
Bæjarráð - 408
Málsnúmer 1411019F
Fundargerðir bæjarráðs nr. 407 og 408 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Jón Björn Hákonarson, Eiður Ragnarsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Einar Már Sigurðarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Valdimar O. Hermannsson og Elvar Jónsson.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 408 frá 1.desember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
9.1 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - Fræðslunefndar
9.2 Viðmiðunarreglur um úthlutun kennslutímamagns
9.3 Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 2015
9.4 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
9.5 Búnaður fyrir brettaiðkendur
9.6 Öldungamót í blaki á Norðfirði 2015
9.7 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - Félagsmálanefnd
9.8 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 - fasteignagjaldaálagning
9.9 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 - aðalmál
9.10 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016 - 2018
9.11 Almenningssamgöngur - samningar 2014
9.12 Gjaldskrá og reglur vegna skipulagðra samgangna 2015
9.13 Bygging leikskóla á Neseyri
9.14 Menningarstefna
9.15 Glettur - styrkbeiðni
9.16 Mat á leigusamningum við Reiti II
9.17 Umsókn um aðstöðu fyrir strandblaksvöll á Reyðarfirði
9.18 Aðalskipulagsbreyting Norðfjarðarhafnar
9.19 Málefni Austurbrúar
9.20 Birtingaráætlun Austurbrúar 2015
9.21 Framlag Fjarðabyggðar til Sjóminjasafns Austurlands
9.22 Stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir árin 2014 - 2018
9.23 Atvinnuleysi í Fjarðabyggð 2014
9.24 Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2014
9.25 Stjórnarfundir Skólaskrifstofu Austurlands 2014
9.26 Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 2014
9.27 Stjórnarfundir StarfA 2014
9.28 Umferðaröryggi við leik- og grunnskóla
9.29 Templarinn - hlutverk hússins
9.30 Fundargerðir félagsmálanefndar 2014
9.31 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 107
9.32 Fræðslunefnd - 9
9.33 Menningar- og safnanefnd - 7
9.34 Íþrótta- og tómstundanefnd - 7
9.35 Hafnarstjórn - 141
10.
Fræðslunefnd - 9
Málsnúmer 1411012F
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 9 frá 25.nóvember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
10.1 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - Fræðslunefndar
10.2 Starfsáætlun 2015 - fræðslumál
10.3 Viðmiðunarreglur um úthlutun kennslutímamagns
10.4 Styrking verklegrar kennslu í skólum Fjarðabyggðar
10.5 Framlög vegna nýbúafræðslu 2015
10.6 Framlög vegna sérþarfa fatlaðra nemenda 2015
10.7 Stjórnarfundir Skólaskrifstofu Austurlands 2014
11.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 107
Málsnúmer 1411016F
Til máls tóku Eiður Ragnarsson og Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 107 frá 24.nóvember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
12.
Hafnarstjórn - 141
Málsnúmer 1411015F
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 141 frá 25.nóvember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
12.1 Fundargerðir CI á árinu 2014
12.2 Fyrirspurn um þátttöku í flutninga- og hafnahóp sjávarklasans og formlega inngöngu í Íslenska sjávarklasann
12.3 Norðfjarðarflugvöllur - klæðning
12.4 Seatrade Miami 16-19 mars 2015
12.5 Umsögn um 24.000 tonna framleiðsla á laxi og regnbogasilungi í sjókvíum í Fáskrúðsfirði og Berufirði.
12.6 Aðalskipulagsbreyting Norðfjarðarhafnar
12.7 Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 2015
12.8 Rif á Strandgötu 7, Reyðarfirði
13.
Menningar- og safnanefnd - 7
Málsnúmer 1411018F
Enginn tók til máls.
Fundargerð menningar- og safnanefndar, nr. 7 frá 27.nóvember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
13.1 Samningur um söguritun Fáskrúðsfjarðar
13.2 Málefni menningarmiðstöðva 2014
13.3 Menningarstefna
13.4 Styrkur til Kórs Fjarðabyggðar
13.5 Tillaga um varðveislu og endurbótum á gömlum fjárréttum og lofvarnabirgi á Reyðarfirði
13.6 Stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir árin 2014 - 2018
13.7 Framlag Fjarðabyggðar til Sjóminjasafns Austurlands
14.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 7
Málsnúmer 1411014F
Enginn tók til máls.
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 7 frá 27.nóvember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
14.1 Öldungamót í blaki á Norðfirði 2015
14.2 Búnaður fyrir brettaiðkendur
14.3 Sameiginleg markaðssetning skíðasvæðanna á Austurlandi
14.4 Ungmennaráð 2014 - 2015
14.5 SamAust 2014 á Norðfirði
14.6 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - Íþrótta- og tómstundanefndar
14.7 Starfsáætlun 2015 - Íþrótta- og tómstundamál
15.
Fundargerðir félagsmálanefndar 2014
Málsnúmer 1401186
Enginn tók til máls.
Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 62 frá 24.nóvember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
16.
Fundargerðir barnaverndarnefndar 2014
Málsnúmer 1402090
Enginn tók til máls.
Fundargerð barnaverndarnefndar, nr. 50 frá 18.nóvember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
Bókun bæjarstjóra: Ég vil lýsa yfir mikilli ánægju með að fjárhags- og starfsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2015 og 2016 - 2018, njóti stuðnings allra bæjarfulltrúa Fjarðabyggðar. Það er að mínu mati farsæl leið, fyrir okkar góða samfélag, að bæjarstjórn standi sameinuð að þeim mikilvægu ákvörðu