Fara í efni

Bæjarstjórn

169. fundur
18. desember 2014 kl. 16:00 - 00:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson Forseti bæjarstjórnar
Eiður Ragnarsson Aðalmaður
Pálína Margeirsdóttir Aðalmaður
Eydís Ásbjörnsdóttir Aðalmaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir Varamaður
Einar Már Sigurðarson Aðalmaður
Kristín Gestsdóttir Aðalmaður
Ragnar Sigurðsson Varamaður
Dýrunn Pála Skaftadóttir Varamaður
Gunnar Jónsson Embættismaður
Páll Björgvin Guðmundsson Bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 409
Málsnúmer 1412006F
Fundargerðir bæjarráðs, nr. 409 og nr. 410, teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 409 frá 8. desember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
2.
Bæjarráð - 410
Málsnúmer 1412009F
Fundargerðir bæjarráðs, nr. 409 og nr. 410, teknar til afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 410 frá 15. desember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
3.
Fræðslunefnd - 10
Málsnúmer 1412005F
Til máls tók Pálína Margeirsdóttir.
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 10 frá 9. desember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
4.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 108
Málsnúmer 1412003F
Til máls tóku: Eiður Ragnarsson, Ragnar Sigurðsson, Einar Már Sigurðarson.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 108 frá 8. desember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
5.
Hafnarstjórn - 142
Málsnúmer 1412004F
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 142 frá 9. desember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
6.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 8
Málsnúmer 1412008F
Til máls tók: Krisín Gestsdóttir, Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 8 frá 11. desember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
7.
Fundargerðir félagsmálanefndar 2014
Málsnúmer 1401186
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 63 frá 8. desember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
8.
740 deiliskipulag Naust 1 - óveruleg breyting v. Vinheimanaust 7
Málsnúmer 1411129
Forseti bæjarstjórnar fylgdi breytingum á deiliskipulaginu úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum óverulega breytingu á deiliskipulaginu Naust 1, Norðfjarðarhöfn og nágrenni, skipulagsuppdráttur með greinargerð dagsettur 4. desember 2014.
Grenndarkynningu er lokið með samþykki allra nágranna.
Málsmeðferð verði í samræmi við 44. gr. skipulagslaga.
9.
Ársfundur Austurbrúar ses. 2014
Málsnúmer 1404114
Bæjarstjóri fylgdi málinu úr hlaði.
Til máls tók Einar Már Sigurðarson,
Bæjarráð samþykkti, fyrir sitt leyti, eftirfarandi að því gefnu að heildarfjármögnun verkefnis við endurskipulagningu reksturs Austurbrúar liggi fyrir með framlagi allra sveitarfélaga og annarra stofnaðila ásamt fjármagni ríkis og stofnana þess og að fjárhagsáætlun ársins 2015 haldi.
a) að fjármagn úr Atvinnuþróunarsjóði Austurlands, sem nú er til ráðstöfunar, verði nýtt til fjárhagslegrar endurskipulagningar Austurbrúar ca, 11.000.000 kr.
b) að á árunum 2016, 2017 og 2018 verði framlag Fjarðabyggðar til Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands tvöfaldað frá því sem það er á árinu 2014 og það renni til fjárhagslegrar endurskipulagningar.
Bæjarstjórn staðfestir samþykkt bæjarráðs með 8 atkvæðum en Jón Björn Hákonarson situr hjá vegna stjórnarformennsku í Austurbrú.
10.
Fjárhagsáætlun 2014 - viðauki 9 - Tónskóli Nesk
Málsnúmer 1412035
Bæjarstjóri fylgdi viðauki nr. 9 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar árið 2014 úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Í viðauka er lagt til að gerð verði breyting á fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar á árinu 2014 þannig að viðhaldskostnaður húsnæðis tónlistarskólans í Nesskóla í Neskaupstað í málaflokki 37 Eignarhaldsfélaginu Hrauni ehf. hækki um kr. 9.000.000 og verði samtals kr. 19.904.500 í árslok 2014.

Enn fremur er lagt til að fjármagna viðhaldsframkvæmdina af eigin fé Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. og inneign félagsins á viðskiptareikningi mun lækka sem því nemur við aðalsjóð. Handbært fé aðalsjóðs lækkar um sömu upphæð og verða áætlað kr. 274.276.000 í árslok 2014.
Bæjarstjórn samþykkir viðaukann með 9 atkvæðum.
11.
Fjárhagsáætlun 2014 - viðauki 10 - Reitir
Málsnúmer 1412110
Bæjarstjóri fylgdi viðauka nr. 10, við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2014 úr hlaði.
Í viðauka er gert ráð fyrir kaupum Fjarðabyggðar á eign Reita II ehf. að Heiðarvegi 14a Reyðarfirði - líkamsræktarstöð sem hefur verið leigð af fyrirtækinu.

Við kaup Fjarðabyggðar á ofangreindri eign breytist eignahlið Eignasjóðs ekki, þar sem eignin er þegar færð meðal eigna sjóðsins. Skuldamegin munu skuldir, vegna kaupa eignanna, færast af liðnum leiguskuldir undir langtímaskuldum og lækkar hann sem því nemur eða um 61 milljón króna. Liðurinn langtímaskuldir við lánastofnanir, í efnahagsreikningi, hækkar þá á móti sem nemur fyrirhuguðum lántökum vegna kaupanna þegar endanleg lántaka liggur fyrir.

Því er lagt til að eftirfarandi breyting verði samþykkt á fjárhagsáætlun Eignasjóðs og samstæðu Fjarðabyggðar fyrir árið 2014:

a)
Leiguskuldir í efnahagsreikningi lækki um kr. 61.000.000 á árinu 201 og afborganir leiguskulda ársins í sjóðsstreymisyfirliti hækki um sömu upphæð.
b)
Skuldir við lánastofnanir í efnahagsreikningi hækki um kr. 61.000.000 á árinu 2014 og tekin ný langtímalán í sjóðsstreymisyfirliti hækki um sömu upphæð.
c)
Fjármagnsgjöld í rekstrarreikningi hækki um kr. 1.000.000.

Enn fremur er lagt til að fjármagna aukin rekstrargjöld kr. 1.000.000 af eigin fé eignasjóðs og skuld sjóðsins á viðskiptareikningi mun hækka sem því nemur við aðalsjóð. Handbært fé aðalsjóðs lækkar um sömu upphæð og verða áætlað kr. 273.276.000 í árslok 2014.
Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 10 við fjárhagsáætlun 2014 með 9 atkvæðum.
12.
Mat á leigusamningum við Reiti II
Málsnúmer 1302116
Fram lögð tillaga um fjármögnun vegna kaupa á líkamsræktarstöð á Reyðarfirði.
Forseti bæjarstjórnar lagði fram tillögu vegna dagskrárliðar.
"Með vísan til minnisblaðs fjármálastjóra frá 16.12. 2014 um fjármögnun kaupa Heiðavegar 14a af Reitum II ehf. samþykkir bæjarstjórn Fjarðabyggðar eftirfarandi:
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð allt að 61.000.000 kr., í samræmi við skilmála sjóðsins um óverðtryggt lán til allt að 15 ára af eigin fé sjóðsins, lánið er óverðtryggt og ber 6 mánaða REIBOR millibankavexti auk 0,5% álags. Fjarðabyggð er heimilt að greiða lánið upp að hluta eða að öllu leyti á vaxtagjalddögum án kostnaðar fyrir lántaka, afborganir verða tvisvar á ári. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Er lánið tekið til að fjármagna endurkaup sveitarfélagsins á Heiðarvegi 14a af Reitum II ehf., sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Gunnari Jónssyni kt. 291065-5059 bæjarritara og staðgengli bæjarstjóra, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Fjarðabyggðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga ohf. sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.
Tillaga samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Bókun bæjarstjórnar Fjarðabyggðar vegna tilfærslu starfa út á land. Bæjarstjórn Fjarðabyggðar fagnar umræðu og áhuga stjórnvalda til að dreifa opinberum störfum um landið. Brýnt er að horft verði á landið allt og verkefnum valin staðsetning með tilliti til aðstæðna á hverjum stað og eðli verkefnanna. Víða á Austurlandi hefur opinberum störfum fækkað og atvinnuástand þynst mjög með tilflutningi starfa. Bæjarstjórn Fjarðabyggðar hvetur ríkisvaldið til að horfa til slíkra þátta og vanda allan undirbúning þegar flutningur á störfum og stofnunum um landið er til skoðunar. Þá er nauðsynlegt að umræða um flutning starfa sé hófstillt og haft í huga að það er eðlilegt að almannaþjónustu ríkisvaldsins sé í boði um land allt en ekki aðeins á höfuðborgarsvæðinu. Forseti bæjarstjórnar lagði fram tillögu að fundadagskrár bæjarstjórnar á fyrri hluta ársins 2015. Bæjarstjórnarfundir á fyrri hluta ársins 2015. Bæjarstjórn samþykkir að fundir bæjarstjórnar Fjarðabyggðar verði sem hér segir. 8. janúar 22. janúar 5. febrúar 19. febrúar 5. mars 19. mars 9. apríl 30. apríl 7. maí 21. maí 4. júní 18. júní