Fara í efni

Bæjarstjórn

190. fundur
19. nóvember 2015 kl. 16:00 - 00:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson Forseti bæjarstjórnar
Pálína Margeirsdóttir Aðalmaður
Hulda Sigrún Guðmundsdóttir Aðalmaður
Eydís Ásbjörnsdóttir Aðalmaður
Esther Ösp Gunnarsdóttir Aðalmaður
Einar Már Sigurðarson Aðalmaður
Kristín Gestsdóttir Aðalmaður
Valdimar O Hermannsson Aðalmaður
Dýrunn Pála Skaftadóttir Varamaður
Gunnar Jónsson Embættismaður
Páll Björgvin Guðmundsson Bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 451
Málsnúmer 1511004F
Fundargerðir bæjarráðs, nr. 451 og 452, teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Páll Björgvin Guðmundsson, Valdimar O Hermannsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Dýrunn Pála Skaftadóttir, Einar Már Sigurðarson, Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð bæjarráðs frá 9. nóvember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
1.1 Fjarðabyggð til framtíðar Trúnaðarmál.
1.2 Hjúkrunarheimilin í Fjarðabyggð
1.3 Málefni Eskifjarðarvallar
1.4 Rekstur Egilsbúðar
1.5 Áfangastaðurinn Austurland - kynning
1.6 Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2015
1.7 735 Deiliskipulag Leira 1, breyting - sameining lóða
1.8 Ofanflóðavarnir Eskifirði. Verkhönnun árfarvega
2.
Bæjarráð - 452
Málsnúmer 1511010F
Fundargerðir bæjarráðs, nr. 451 og 452, teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku
Fundargerð bæjarráðsfrá 16.nóvember 2015 staðfest með 9 atkvæðum.
2.1 Rekstur málaflokka 2015 - TRÚNAÐARMÁL
2.2 Fjarðabyggð til framtíðar - Trúnaðarmál
2.3 Gjaldskrár í íþróttamannvirkjum Fjarðabyggðar 2016
2.4 Starfs- og fjárhagsáætlun 2016 í íþrótta- og tómstundamálum
2.5 Gjaldskrár í fræðslumálum 2016
2.6 Starfs- og fjárhagsáætlun 2016 í fræðslumálum
2.7 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016
2.8 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017 - 2019
2.9 Umsókn um styrk til flutnings tónlistar fyrir aldraða á aðventunni
2.10 Aðstöðuhús við smábátahafnir
2.11 Gjaldskrá safna 2016
2.12 Sóknaráætlun Austurlands 2015 - 2019
2.13 Þjónustusamningur milli Austurbrúar og Fjarðabyggðar 2015
2.14 Fundargerðir barnaverndarnefndar 2015
2.15 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 131
2.16 Hafnarstjórn - 156
2.17 Fræðslunefnd - 22
2.18 Menningar- og safnanefnd - 18
2.19 Íþrótta- og tómstundanefnd - 16
3.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 131
Málsnúmer 1511003F
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson, Kristín Gestsdóttir, Dýrunn Pála Skaftadóttir.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 9. nóvember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
3.1 735 Ofanflóðvarnir í Hlíðarendaá
3.2 Breyting á áningastað við Kirkjuból
3.3 Ofanflóðavarnir, Nesgil og Bakkagil - Norðfjörður. Beiðni um umsögn
3.4 Ofanflóðavarnir, Urðarbotn og Sniðgil - Norðfjörður - beiðni um umsögn
3.5 Skilti og merkingar
3.6 Skipulags- og öryggismál á Heiðarvegi 7
3.7 Steypuveggur við Kvíabólsstíg 4
3.8 Stofnun starfshóps um göngu- og hjólreiðastíga
3.9 Umsókn um leyfi til að setja upp minigolfvöll
3.10 Þjónustuhús við Sómastaði
3.11 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016
4.
Hafnarstjórn - 156
Málsnúmer 1511005F
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 10. nóvember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
4.1 Umhverfisstefna hafna
4.2 Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2015
4.3 Fundargerðir CI á árinu 2015
4.4 Aðalfundur Fiskmarkaður Austurlands 2015
4.5 Ósk um að gerður verði rampur fyrir neðan húsnæði Sjósportsklúbbs Austurlands
4.6 Áætlun hafnaryfirvalda um móttöku úrgangs og farmleifa frá skipum.
4.7 Verkefnastjóri í atvinnumálum í Fjarðabyggð
4.8 Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2016 ásamt langtímaáætlun
4.9 Kynning á Bláfánaverkefni Landverndar
4.10 Norðfjörður - Fylling og stálþil á þróunarsvæði
4.11 Umsókn um styrk til endurgerðar sjóhússbryggjunnar við Kaupvang - Fáskrúðsfirði
4.12 Uppbygging sýningarsvæðis í útbæ Eskifjarðar
4.13 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016
5.
Fræðslunefnd - 22
Málsnúmer 1511006F
Til máls tóku: Pálína Margeirsdóttir, Einar Már Sigurðarson.
Fundargerð fræðslunefndar frá 11. nóvember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
5.1 Kynning skólastjórnenda
5.2 Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 2015
5.3 Samstarf skóla á Austurlandi um bættan námsárangur nemenda í læsi og stærðfræði
5.4 Dagur leikskólans 6. febrúar 2016
5.5 Breytingar á aðalnámskrá grunnskóla, kaflar 9.4, 9.5 og 18.4
5.6 Breyting á aðalnámskrá framhaldsskóla
5.7 Ungt fólk 2015 - Grunnskólar 5-7.bekk
5.8 Framlög vegna sérþarfa fatlaðra nemenda 2016
5.9 Framlög vegna nýbúafræðslu 2016
5.10 Gjaldskrár í fræðslumálum 2016
5.11 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016
5.12 Starfs- og fjárhagsáætlun 2016 í fræðslumálum
6.
Menningar- og safnanefnd - 18
Málsnúmer 1511007F
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Dýrunn Pála Skaftadóttir.
Fundargerð menningar- og safnanefndar 12. nóvember s.l. staðfest með 9 atkvæðum utan liðar 7 sem bæjarstjórn vísar til bæjarráðs.
6.1 Menningarstefna
6.2 East Iceland Summer Academy 2016
6.3 Áfangastaðurinn Austurland - kynning
6.4 Menningarlandið 2015 - málþing um tölfræði menningar og skapandi greina
6.5 Minjar úr Norðfjarðargöngum
6.6 Stuðningur við Snorraverkefnið 2016
6.7 Styrkbeiðni - Leikfélag Norðfjarðar
6.8 Beiðni um að halda hátíð 1-3.júlí
6.9 Umsókn um styrk til að halda hernámsdaginn 2016
6.10 Uppgröftur í Stöð
6.11 Aðalfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga 2015 - 24.nóvember
6.12 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016
6.13 Íbúafundur á Eskifirði 9.október
7.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 16
Málsnúmer 1511008F
Til máls tóku: Kristín Gestsdóttir, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Páll Björgvin Guðmundsson, Jón Björn Hákonarson.
Hulda Sigrún Guðmundsdóttir yfirgaf fund bæjarstjórnar kl. 17:45
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 12. nóvember s.l. staðfest með 8 atkvæðum.
7.1 Ungt fólk 2015 - Grunnskólar 5-7.bekk
7.2 Akstur milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar vegna sundæfinga
7.3 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016
7.4 Gjaldskrár í íþróttamannvirkjum Fjarðabyggðar 2016
7.5 Starfs- og fjárhagsáætlun 2016 í íþrótta- og tómstundamálum
8.
Fundargerðir barnaverndarnefndar 2015
Málsnúmer 1501273
Enginn tók til máls.
Fundargerð barnaverndarnefndar frá 2.nóvember s.l. staðfest með 8 atkvæðum.
9.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016
Málsnúmer 1506139
Seinni umræða um fjárhags- og starfsáætlun 2016.
Bæjarstjóri fylgdi úr hlaði fjárhags- og starfsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2016 og breytingum milli umræðna.
Til máls tóku: Valdimar O Hermannsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson.
Niðurstöður fjárhagsáætlunar 2016 fyrir Fjarðabyggð og stofnanir með áorðnum breytingum eru eftirfarandi:
Tölur í þús.kr.
Rekstrarniðurstaða Fjárfestingar Afborganir langtímalána og leiguskuldbindinga
Samstæða A -hluta 96.936 336.000 1.023.612
Samstæða B-hluta 317.545 444.500 289.223
Samstæða A B hl 414.481 810.500 1.312.835
Bókun Fjarðalistans á fundi bæjarstjórnar nr. 190, liður 9.
Bæjarfulltrúar Fjarðalistans samþykkja fjárhagsáætlun fyrir árið 2016 en vekja athygli á mörgun óvissuþáttum bæði hvað varðar tekjur og útgjöld. Þar vega mest afleiðingar af innfluttningsbanni Rússa hvað varðar tekjur og hinsvegar ófrágengnir kjarasamningar við hluta af starfsfólki sveitarfélaga.
Þá vekja bæjarfulltrúar Fjarðalistans athygli á að enn er að mestu ólokið vinnu við tillögur sem framkomu í skýrslu KPMG Fjarðabyggð til framtíðar.
Það er ljóst að endurskoða þarf áætlunina og er æskilegt að það gerist sem fyrst þegar fyrir liggja nauðsynlegar upplýsingar varðandi óvissuþætti og samþykktir í framhaldi af tillögum KPMG.

Bæjarstjórn samþykkir fjárhags- og starfsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2016 með 8 atkvæðum.
10.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017 - 2019
Málsnúmer 1506140
Seinni umræða um þriggja ára fjárhagsáætlun 2017-2019.
Bæjarstjóri fylgdi úr hlaði þriggja ára áætlun Fjarðabyggðar og stofnana.
Til máls tóku: Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson.
Bókun Fjarðalistans á fundi bæjarstjórnar nr. 190, liður 10.
Bæjarfulltrúar Fjarðalistans samþykkja fjárhagsáætlun næstu þriggja ára en vekja athygli á mörgum óvissuþáttum bæði hvað varðar tekjur og útgjöld. Þar vega mest afleiðingar af innfluttningsbanni Rússa hvað varðar tekjur og hinsvegar ófrágengnir kjarasamningar við hluta af starfsfólki sveitarfélaga.
Þá vekja bæjarfulltrúar Fjarðalistans athygli á að enn er að mestu ólokið vinnu við tillögur sem framkomu í skýrslu KPMG Fjarðabyggð til framtíðar.
Það er ljóst að endurskoða þarf áætlunina og er æskilegt að það gerist sem fyrst þegar fyrir liggja nauðsynlegar upplýsingar varðandi óvissuþætti og samþykktir í framhaldi af tillögum KPMG.

Bæjarstjórn samþykkir þriggja ára áætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árin 2017 - 2019 með 8 atkvæðum.
11.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016 - fasteignagjaldaálagning
Málsnúmer 1510113
Bæjarstjóri fylgdi tillögu að álagningarstofnum fasteignagjalda 2016 og afsláttum af fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 8 atkvæðum að fasteignagjöld ársins 2016 verði sem hér segir:

Fasteignaskattur A verði 0,50 % af húsmati og lóðarhlutamati.
Fasteignaskattur B verði 1,32 % af húsmati og lóðarhlutamati.
Fasteignaskattur C verði 1,65 % af húsmati og lóðarhlutamati.
Lóðarleiga íbúðarhúsnæðis verði 0,70 % af lóðarhlutamati.
Lóðarleiga atvinnuhúsnæðis verði 3,00% af lóðarhlutamati.
Vatnsgjald verði 0,28 % af húsmati.
Holræsagjald verði 0,32 % af húsmati.
Sorphreinsunargjald verði 23.788 kr. á heimili.
Sorpeyðingargjald verði 11.290 kr.á heimili.
Fjöldi gjalddaga verði átta, mánaðarlega frá 1. febrúar.
Eindagi fasteignagjalda verður síðasti virki dagur gjalddagamánaðar.

Jafnframt samþykkir bæjarstjórn samhljóða með 8 atkvæðum að afsláttur á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega verði sem hér segir:

a) Hámarks afsláttur af fasteignaskatti fylgi breytingum fasteignamatsstofns og verði kr. 55.431 á árinu 2016.
b) Afsláttur fasteignaskatts er tekjutengdur og miðast við árstekjur ársins 2015 samanber álagningu skattstjóra á árinu 2016 og skulu tekjumörk vera sem hér segir:.
Einstaklingar:
Brúttótekjur allt að kr. 2.879.126 100 % afsláttur
Brúttótekjur yfir
3.807.578 0 % afsláttur
Hjón og samskattað sambýlisfólk:
Brúttótekjur allt að kr. 4.373.026 100 % afsláttur
Brúttótekjur yfir
5.226.532 0 % afsláttur
12.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016 - útsvarsálagning
Málsnúmer 1510112
Forseti bæjarstjórnar fylgdi tillögu að álagningarhlutfalli útsvars úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Lagt er til að álagningarhlutfall útsvars verði hámarksútsvar, þ.e. 14,48% af útsvarsstofni, að viðbættri hækkun sem kveðið verður á um í lögum um tekjustofna sveitarfélaga á grundveli fyrirhugaðs samkomulags milli ríkis og sveitarfélaga um endurmat á yfirfærslu þjónusta við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga. Gengið er út frá að lagabreyting þessa efnis verði afgreidd fyrir lok haustþings.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 8 atkvæðum.
13.
Breytingar á gjaldskrám Fjarðabyggðar
Málsnúmer 1506139
Forseti bæjarstjórnar fylgdi úr hlaði tillögu bæjarráðs um gjaldskrárbreytingar.
Enginn tók til máls.
Tillaga bæjarráðs frá fundi 16. nóvember sl., um hækkun á gjaldskrám þjónustugjalda Fjarðabyggðar um 3,2% í stað 4,3%, þar sem það á við, staðfest með 8 atkvæðum af bæjarstjórn.