Fara í efni

Bæjarstjórn

192. fundur
17. desember 2015 kl. 16:00 - 00:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson Forseti bæjarstjórnar
Pálína Margeirsdóttir Aðalmaður
Hulda Sigrún Guðmundsdóttir Aðalmaður
Elvar Jónsson Aðalmaður
Ævar Ármannsson Varamaður
Kristín Gestsdóttir Aðalmaður
Valdimar O Hermannsson Aðalmaður
Ragnar Sigurðsson Varamaður
Stefán Már Guðmundsson Varamaður
Páll Björgvin Guðmundsson Bæjarstjóri
Gunnar Jónsson Embættismaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 455
Málsnúmer 1512001F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Valdimar O Hermannsson, Stefán Már Guðmundsson.
Fundargerð bæjarráðs 7. desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
2.
Bæjarráð - 456
Málsnúmer 1512008F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 14. desember s.l. utan liðar 11 staðfest með 9 atkvæðum.
Lið 11 er vísað til fullnaðarafgreiðslu bæjarráðs ásamt mati á gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð.
Samþykkt með 9 atkvæðum.
3.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 133
Málsnúmer 1512003F
Fundargerðir eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tók Jón Björn Hákonason.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar 11. desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
4.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 134
Málsnúmer 1512007F
Fundargerðir eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 14.desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
5.
Hafnarstjórn - 157
Málsnúmer 1512004F
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 8. desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
6.
Fræðslunefnd - 23
Málsnúmer 1512002F
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar frá 9. desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
7.
Menningar- og safnanefnd - 19
Málsnúmer 1511014F
Til máls tóku: Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 10.desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
8.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 17
Málsnúmer 1512005F
Til máls tóku: Kristín Gestsdóttir, Stefán Már Guðmundsson, Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson.
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 10.desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
9.
Fundargerðir félagsmálanefndar 2015
Málsnúmer 1501132
Enginn tók til máls:
Fundargerð félagsmálanefndar nr.78 frá 8. desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
10.
Fundargerðir barnaverndarnefndar 2015
Málsnúmer 1501273
Enginn tók til máls.
Fundargerð barnaverndarnefndar, nr. 60 frá 10.desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
11.
750 Deiliskipulag urðunarstaðar í Þernunesi
Málsnúmer 1509171
Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulagstillögunni úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að auglýsa tillögu að deiliskipulagi urðunarstaðar í Þernunesi.
Tillagan er sett fram á uppdrætti, greinargerð og umhverfisskýrslu, dags. 26. nóvember 2015. Deiliskipulagstillagan afmarkar um 31,1 ha svæði í landi Þernuness Þar sem gert er gert ráð fyrir urðun á allt að 4.000 tonnum á ári á tveimur urðunarsvæðum, Mýrdal annars vegar, þar sem gert er ráð fyrir að urða almennan úrgang, og Auratúni hins vegar, þar sem timbur og óvirkur úrgangur er urðaður. Urðun hefur átt sér stað á svæðinu samkvæmt starfsleyfi sem rennur út 1. júlí 2018. Tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.
12.
Reglur Fjarðabyggðar um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks
Málsnúmer 1210150
Forseti bæjarstjórnar fylgdi reglunum úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Reglur um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks samþykktar með 9 atkvæðum.
13.
Reglur um fjárhagsaðstoð
Málsnúmer 1009112
Forseti bæjarstjórnar fylgdi reglunum úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Reglur um fjárhagsaðstoð samþykktar með 9 atkvæðum.
14.
Breytingar á stjórnskipulagi Fjarðabyggðar 2015
Málsnúmer 1410097
Bæjarstjóri fylgdi tillögum að breytingum á stjórnskipulagi Fjarðabyggðar úr hlaði.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson.
Tillaga bæjarráðs til bæjarstjórnar
Lögð fram tillaga bæjarráðs í greinargerð um endurskoðað skipulag stjórnsýslu Fjarðabyggðar. Bæjarráð hefur í umboði bæjarstjórnar sem stjórnkerfisnefnd unnið að skoðun stjórnsýslunnar og komið fram með tillögur að nýju skipulagi á framkvæmdasviði sveitarfélagsins ásamt tillögum að skilgreiningum starfa er breytingunni tengjast. Bæjarráð leggur til að starfsemi sveitarfélagsins verði áfram skipt í tvö stoðsvið, tvö fagsvið og að Fjarðabyggðarhafnir verði sem fyrr sjálfstætt B-hluta fyrirtæki og hluti af yfirstjórn Fjarðabyggðar
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
1.
Lagðar eru fram breytingar á framkvæmdasviði sveitarfélagsins sem framvegis beri heitið framkvæmda-, umhverfis- og veitusvið Fjarðabyggðar. Sviðinu verði annars vegar falið að annast alla tæknilega innviði Fjarðabyggðar og hins vegar að annast, á grundvelli þjónustusamnings, rekstur, viðhald og nýframkvæmdir við Fjarða-byggðarhafnir. Starfsemi framkvæmda-, umhverfis- og veitusviðs skiptist í fjórar starfseiningar; umhverfis- og landbúnaðarmál, eignaumsjón Fjarðabyggðar, veitur og framkvæmda- og þjónustumiðstöð. Lagt er til að gerðar verði viðeigandi breytingar á starfslýsingum og störfum sviðsins sem nauðsynlegar eru til að þau markmið sem stefnt er að nái fram að ganga.

2.
Þá er lagt til að byggingar- og skipulagsfulltrúi, slökkviliðsstjóri og Slökkvilið Fjarða-byggðar heyri undir bæjarstjóra.
Markmið ofangreindra breytinga er annars vegar að nýta betur þekkingu og reynslu starfsmanna, tæki og kaupkraft sveitarfélagsins á sviði framkvæmda, eignaumsýslu og við rekstur hafna. Hins vegar að færa hrein stjórnsýsluleg verkefni eins og skipulagsmál og byggingarmál frá framkvæmdasviði til bæjarstjóra, auk umsýslu og samskipta vegna Slökkviliðs Fjarðarbyggðar. Þannig geti sviðsstjóri framkvæmda- umhverfis- og veitusviðs einbeitt sér betur að rekstri tæknilegra innviða sveitarfélagsins og hafnarinnar og leitt þá samþættingu sem að er stefnt.
Þá verði atvinnu- og þróunarstjóri framvegis í skipuriti sveitarfélagsins, en bæjarráð ákvað á fundi sínum 12. október sl. að auglýsa starfið. Er starfið á vettvangi atvinnuþróunar og tengdra verkefna talið mjög mikilvægt fyrir sveitarfélagið þó starfið kunni að þróast frekar enda sé reynsla af starfi verkefnastjóra í atvinnumálum góð.
Bæjarstjórn samþykkir tillögur stjórnkerfisnefndar eins og þær koma fram í þeirri greinagerð sem meðfylgjandi er málinu og þær breytingar sem lagðar eru til á störfum er fylgja breytingunni. Þá er bæjarstjóra falið að framkvæma þær tillögur og ráðstafanir sem fylgja samþykkt tillögunnar.
Fundardagar bæjarstjórnar á fyrrihluta ársins 2016. Forseti bæjarstjórnar lagði fram tillögu um fundardaga bæjarstjórnar Fundir á fimmtudögum. 21. janúar 4. febrúar 18. febrúar 3. mars 17. mars 7. apríl 28. apríl 12. maí 26. maí 9. júní 23. júní Bæjarstjórn samþykkir fundardagskrána.