Fara í efni

Bæjarstjórn

207. fundur
29. september 2016 kl. 16:00 - 17:15
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson Forseti bæjarstjórnar
Pálína Margeirsdóttir Aðalmaður
Esther Ösp Gunnarsdóttir Aðalmaður
Valdimar O Hermannsson Aðalmaður
Dýrunn Pála Skaftadóttir Aðalmaður
Starfsmenn
Páll Björgvin Guðmundsson Bæjarstjóri
Valur Sveinsson Ritari
Fundargerð ritaði:
Valur Sveinsson
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 489
Málsnúmer 1609013F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Valdimar Hermansson, Einar Már Sigurðarson.
Einar Már Sigurðarson lagði fram tillögu Fjarðalistans vegna liðar 9 í fundargerð.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 489 frá 19.september 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.
1.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017
1.2 Forsendur fyrir vinnslu fjárheimilda fyrir árið 2017 og fjárhagsáætlun til þriggja ára
1.3 Rekstur málaflokka 2016 - TRÚNAÐARMÁL
1.4 Eignasjóður - fjárhagsleg staða 2016
1.5 Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2017 ásamt langtímaáætlun
1.6 Gjaldskrá hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2017
1.7 Norðfjörður - Fylling og stálþil á þróunarsvæði
1.8 Rekstur hjúkrunarheimilisins Hulduhlíðar
1.9 Tillaga frá Jyväskylä um samstarf í tengslum við vinabæjarsamskipti
1.10 Skuggakosningar
1.11 Beiðni um endurnýjun á auglýsingasamningi við KFF
1.12 Uppgröftur í Stöð
1.13 Kortlagning beitarsvæða í Fjarðabyggð
1.14 Búlandsborgir Norðfirði
1.15 Aðalfundur SSA 2016
1.16 10.000 tonna laxeldi í Mjóafirði og Norðfjarðarflóa - beiðni um umsögn
1.17 10.000 tonna framleiðsla á laxi í Stöðvarfirði - beiðni um umsögn
1.18 Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2016/2017
1.19 Alþingiskosningar 2016
1.20 Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum 23.9.2016
1.21 Ósk um greiðslu aksturspeninga til og frá vinnu
1.22 Alþjóðaþing Hringborðs Norðurslóða - Arctic Circle 7-9.október 2016
1.23 Fundargerðir barnaverndarnefndar 2016
1.24 Íþrótta- og tómstundanefnd - 25
1.25 Hafnarstjórn - 167
1.26 Heimsókn frá Fljótsdalshéraði
2.
Bæjarráð - 490
Málsnúmer 1609020F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 28. september 2016, staðfest með 9 atkvæðum.
2.1 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - Bæjarráð
2.2 Starfs- og fjárhagsáætlun 2017 í íþrótta- og tómstundamálum
2.3 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - fræðslunefnd
2.4 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - félagsmálanefnd
2.5 Áhrif nýrrar húsnæðislöggjafar gagnvart sveitarfélögum
2.6 Viðmiðunarreglur um úthlutun stöðugilda til leikskóla í Fjarðabyggð.Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi viðmiðunarreglur og vísar þeim til bæjarráðs til frekari umræðu og samþykktar.
2.7 Ábendingar og óskir golfklúbbana í Fjarðabyggð til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar
2.8 Ósk um greiðslu aksturspeninga til og frá vinnu
2.9 Framkvæmdaráð hjúkrunarheimila í Fjarðabyggð
2.10 Byggðaáætlun 2017 - 2023
2.11 735 Strandgata 12 - lóðamál
2.12 Ársreikningur 2015 - Veturhús
2.13 Nefndaskipan Sjálfstæðisflokks 2014 - 2018
2.14 Menningar- og safnanefnd - 25
2.15 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 154
2.16 Fræðslunefnd - 31
2.17 Íþrótta- og tómstundanefnd - 26
2.18 Fundargerðir félagsmálanefndar 2016
3.
Hafnarstjórn - 167
Málsnúmer 1609011F
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 167 frá 13.september 2016, staðfest með 9 atkvæðum.
3.1 Fiskmarkaður Austurlands - Ársreikningur 2015
3.2 Norðfjörður - Fylling og stálþil á þróunarsvæði
3.3 Gjaldskrá hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2017
3.4 Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2017 ásamt langtímaáætlun
4.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 25
Málsnúmer 1609002F
Enginn tók til máls.
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 25 frá 8.september 2016, lögð fram til samþykktar. Staðfest með 9 atkvæðum.
4.1 Endurnýjun á rekstrar- og uppbyggingarsamningum við íþróttafélög í Fjarðabyggð sem reka eigin íþróttaaðstöðu
4.2 Endurskoðun samnings um útvistun rekstrar Skíðasvæðisins í Oddsskarði
4.3 Starfs- og fjárhagsáætlun 2016 í íþrótta- og tómstundamálum
4.4 Starfs- og fjárhagsáætlun 2017 í íþrótta- og tómstundamálum
5.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 154
Málsnúmer 1609016F
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson, Pálína Margeirsdóttir.
Fundargerð staðfest með 9 atkvæðum utan liða 4 og 8 í fundargerð.
5.1 Tillaga að fyrirkomulagi jarðgerðar
5.2 Ábendingar og óskir golfklúbbana í Fjarðabyggð til ESU
5.3 740 Eyrargata 5 - umsókn um framlengingu á stöðuleyfi vinnubúða
5.4 Beiðni um framlengingu á stöðuleyfi starfsmannabúða að Haga 2016-2017
5.5 Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna lagningar 66 kV strengs um Norðfjarðarós.
5.6 730 Vallargerði 7 - umsókn um byggingarleyfi, breytt notkun
5.7 755 Sævarendi - umsókn um lóð undir jarðspennistöð
5.8 740 Urðarteigur 23 - byggingarleyfi, klæðning utanhús
5.9 735 Strandgata 12 - lóðamál
5.10 740 Hólsgata 6 - byggingarleyfi, svalir
5.11 735 Bleiksárhlíð 18, endurn. lóðarleigus. og afm. bílastæða
5.12 750 Skólavegur 14 - Framkvæmdir á lóðmörkum
5.13 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - eigna-,skipulags og umhverfisnefndar
5.14 755 - Deiliskipulag Saxa
6.
Fræðslunefnd - 31
Málsnúmer 1609017F
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 31 frá 21.september 2016, staðfest með 9 atkvæðum.
6.1 Kosningavakning ungs fólks
6.2 Starfsleyfi fyrir nýja leikskólann Eyrarvellir
6.3 Framlög vegna stuðnings við tónlistarnám og jöfnun á aðstöðumun nemenda
6.4 Jafnréttisáætlun í Fjarðabyggð 2013 - 2016
6.5 Viðmiðunarreglur um úthlutun stöðugilda til leikskóla í Fjarðabyggð
6.6 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - fræðslunefnd
7.
Menningar- og safnanefnd - 25
Málsnúmer 1609014F
Enginn tók til máls
Fundargerð menningar- og safnanefndar, nr. 25 frá 19.september 2016, staðfest með 9 atkvæðum.
7.1 Umhverfismál á Fáskrúðsfirði
7.2 Kaup á myndefni úr Fjarðabyggð
7.3 Uppgröftur í Stöð
7.4 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - Menningar- og safnanefnd
8.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 26
Málsnúmer 1609019F
Enginn tók til máls.
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 26 frá 19.september 2016, staðfest með 9 atkvæðum.
8.1 Málþing um geðheilbrigðisþjónustu á Austurlandi
8.2 Endurskoðun samnings um útvistun rekstrar Skíðasvæðisins í Oddsskarði
8.3 Endurnýjun á rekstrar- og uppbyggingarsamningum við íþróttafélög í Fjarðabyggð sem reka eigin íþróttaaðstöðu
8.4 Starfs- og fjárhagsáætlun 2017 í íþrótta- og tómstundamálum
9.
Fundargerðir félagsmálanefndar 2016
Málsnúmer 1601210
Enginn tók til máls.
Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 87 frá 20.september 2016, staðfest með 9 atkvæðum.
10.
Kortlagning beitarsvæða í Fjarðabyggð
Málsnúmer 1502072
Forseti bæjarstjórnar fylgdi reglum úr hlaði.
Framlagðar reglur um leigulönd í Fjarðabyggð.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt drög að reglum og drög að samningi um beitar- og slægjulönd fyrir búfé í landi Fjarðabyggðar sem landbúnaðarnefnd hefur unnið. Nefndin vísaði málinu áfram til bæjarráðs. Bæjarráð samþykkti reglurnar og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
Reglur samþykktar með 9 atkvæðum.
11.
730 Vallargerði 7 - umsókn um byggingarleyfi, breytt notkun
Málsnúmer 1607089
Forseti bæjarstjórnar fylgdi máli úr hlaði.
Grenndarkynningu er lokið. Athugasemdir bárust frá þremur nágrönnum. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að tekið sé tillit til þeirra athugasemda sem borist hafa þar sem bílastæði eru ekki nægilega mörg og umferð ferðamanna og fólksflutningabíla um Vallagerði er þegar orðin mikil vegna þeirrar gistingar sem boðið er upp á við götuna í dag og synjar umsókn.Endanlegri afgreiðslu vegna grenndarkynningar er vísað til bæjarstjórnar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir samþykkt eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar með 9 atkvæðum.
12.
755 - Deiliskipulag Saxa
Málsnúmer 1208097
Forseti bæjarstjórnar fylgdi lýsingunni úr hlaði.
Lögð fram lýsing vegna skipulagsáætlunar, dagsett 16. september 2016, unnin af Landmótun.
Enginn tók til máls.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt lýsinguna fyrir sitt leyti og vísar endanlegri afgreiðslu til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfesti lýsingu skipulags fyrir Söxu með 9 atkvæðum.