Fara í efni

Bæjarstjórn

209. fundur
27. október 2016 kl. 16:00 - 18:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Hulda Sigrún Guðmundsdóttir Aðalmaður
Elvar Jónsson Aðalmaður
Eydís Ásbjörnsdóttir Aðalmaður
Valdimar O Hermannsson Aðalmaður
Dýrunn Pála Skaftadóttir Aðalmaður
Starfsmenn
Gunnlaugur Sverrisson Embættismaður
Páll Björgvin Guðmundsson Bæjarstjóri
Kolbrún S Þrastardóttir Embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 493
Málsnúmer 1610005F
Fundargerðir bæjarráðs nr. 493 og 494, teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Valdimar O. Hermannsson, Einar Már Sigurðarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Elvar Jónsson og Ragnar Sigurðsson.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 493 frá 17.október 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.
1.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017
1.2 Form og efni viðauka við fjárhagsáætlun
1.3 Kaupréttarákvæði 2016 um Melgerði 13 Reyðarfirði
1.4 Svæðisskipulag fyrir Austurland
1.5 Alþingiskosningar 2016
1.6 Lagfæring á veg frá Viðfirði út að Barðsnesi sunnan Norðfjarðar
1.7 Hækkun mótframlags launagreiðenda i A deild Brúar lífeyrissjóðs
1.8 Fundargerðir Héraðsskjalasafns Austfirðinga 2016
1.9 Aðalfundur SSA 2016
1.10 Byggðaáætlun 2017 - 2023
2.
Bæjarráð - 494
Málsnúmer 1610008F
Fundargerðir bæjarráðs nr. 493 og 494, teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tók Valdimar O. Hermannsson.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 494 frá 24.október 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.
2.1 Raforkusölusamningar við Fjarðabyggð og Hafnarsjóð
2.2 Aðalfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga 2016 - 3.nóvember
2.3 Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum 2016
2.4 Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2016
2.5 Áfangastaðurinn Austurland - kynning
2.6 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017
2.7 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 156
2.8 Íþrótta- og tómstundanefnd - 28
3.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 156
Málsnúmer 1610006F
Til máls tóku Ragnar Sigurðsson, Einar Már Sigurðarson, Eydís Ásbjörnsdóttir og Valdimar O. Hermannsson.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 156 frá 17.október 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.
3.1 Ljósá - ofanflóðaframkvæmdir
3.2 Skólabrekka 9 - aukið vindálag
3.3 Tillaga að fyrirkomulagi jarðgerðar
3.4 Garð- og malarefni
3.5 Framkvæmdasjóður ferðamannastaða, umsóknir, framvinda og framkvæmd 2017
3.5 Umhverfisviðurkenning 2016
3.6 Aðgerðaráætlun um aukna úrgangsflokkun
3.7 Tillaga að breytingu á gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs
3.9 755 Fjarðarbraut 1 - niðurrif Fjós - byggingarleyfi
3.10 755 Fjarðarbraut 1 - umsókn um stöðuleyfi
3.11 730 Hraun 1 Byggingarleyfi - Reyndarteikningar fyrir deigluhreinsun,steypuskáli og málmblöndugeymslu
3.12 Efnistaka úr námu við Hvalnes í Stöðvarfirði
4.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 28
Málsnúmer 1610007F
Enginn tók til máls.
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 28 frá 20.október 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.
4.1 Endurnýjun á rekstrar- og uppbyggingarsamningum við íþróttafélög í Fjarðabyggð sem reka eigin íþróttaaðstöðu
4.2 Starfsemi Ungmenna og íþróttasambands Austurlands, UÍA 2017
4.3 Gjaldskrá sundlauga 2017
4.4 Gjaldskrá líkamsræktarstöðva 2017
4.5 Gjaldskrá íþróttahúsa 2017
4.6 Íþróttamál í Fjarðabyggð
5.
Alþingiskosningar 2016
Málsnúmer 1609096
Bæjarráð fól bæjarstjóra á fundi sínum 3. október sl. að semja kjörskrá vegna forsetakosninganna 29.október 2016. Jafnframt veitti bæjarráð bæjarstjóra, fullnaðarheimild til að fjalla um athugasemdir, gera nauðsynlegar leiðréttingar og úrskurða um ágreiningsmál sem kunna að vera gerðar fram að kjördegi vegna Alþingiskosninga 29. október nk. í samræmi við 27. gr. laga um kosningar til Alþingis.
Bæjarstjóri getur ávallt vísað úrskurðum um ágreiningsmál til bæjarráðs. Kjörskrárstofn Fjarðabyggðar er sem hér segir:
Mjóifjörður - 18
Neskaupstaður - 1005
Eskifjörður - 649
Reyðarfjörður - 870
Fáskrúðsfjörður - 475
Stöðvarfjörður - 145
Enginn tók til máls
Kjörskrárstofn og umboð bæjarstjóra samþykkt með 9 atkvæðum.
6.
Skuggakosningar
Málsnúmer 1606039
Bæjarstjóri fylgdi reglum úr hlaði. Enginn tók til máls.
Reglur um skuggakosningar ungmenna í Fjarðabyggð samþykktar með 9 atkvæðum.