Fara í efni

Bæjarstjórn

210. fundur
3. nóvember 2016 kl. 16:00 - 17:05
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson Forseti bæjarstjórnar
Pálína Margeirsdóttir Aðalmaður
Hulda Sigrún Guðmundsdóttir Aðalmaður
Elvar Jónsson Aðalmaður
Eydís Ásbjörnsdóttir Aðalmaður
Esther Ösp Gunnarsdóttir Aðalmaður
Valdimar O Hermannsson Aðalmaður
Dýrunn Pála Skaftadóttir Aðalmaður
Starfsmenn
Gunnlaugur Sverrisson Embættismaður
Páll Björgvin Guðmundsson Bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 495
Málsnúmer 1610012F
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson og Valdimar O. Hermannsson.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 495 frá 31.október 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.
1.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017
1.2 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2018 - 2020
1.3 10.000 tonna laxeldi í Mjóafirði og Norðfjarðarflóa - beiðni um umsögn
1.4 10.000 tonna framleiðsla á laxi í Stöðvarfirði - beiðni um umsögn
1.5 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - eigna-,skipulags og umhverfisnefndar
1.6 Leyfi til afnota af íþróttahúsi á Reyðarfirði fyrir þorrablót Reyðfirðinga 2017
1.7 Girðing(steinhleðsla) og frágangur milli Skólavegs og Fáskrúðsfjarðakirkjugarðs
1.8 Fundagerðir framkvæmdastjórnar Skólaskrifstofu Austurlands 2016
1.9 Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 4. nóvember
1.10 Europa Nostra menningarverðlaun ESB
1.11 Fundargerðir stjórnar SSA 2016
1.12 Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2016
1.13 Ósk um opinn fund vegna deiliskipulags við Hlíðarenda á Eskifirði
1.14 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 157
2.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 157
Málsnúmer 1610010F
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 157 frá 31.október 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.
2.1 Aðgerðaráætlun um aukna úrgangsflokkun
2.2 Tillaga að fyrirkomulagi jarðgerðar
2.3 Gjaldskrá Sorpmiðstöðvar - meðhöndlun úrgangs
2.4 755 Heiðmörk 12 Byggingarleyfi - breyting á húsnæði
2.5 750 Hafnargata 1 - byggingarleyfi, rífa niður geyma og byggja upp á nýtt
2.6 735 Strandgata 78 - Byggingarleyfi, breytt notkun
2.7 755 Sævarendi - umsókn um lóð undir jarðspennistöð
2.8 740 Eyrargata 5 - umsókn um framlengingu á stöðuleyfi vinnubúða
2.9 Stöðuleyfi fyrir gám - beiðni um upplýsingar um úthlutun leyfa
2.10 Geymslusvæði og stöðuleyfi fyrir gáma og lausafé í Fjarðabyggð
2.11 Endurskoðun á umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar
2.12 Gjaldskrá gatnagerðagjalda í Fjarðabyggð 2017
2.13 Gjaldskrá framkvæmdaleyfis- og þjónustugjalda skipulagsfulltrúa 2017
2.14 Gjaldskrá byggingarleyfis- og þjónsutugjalda byggingafulltrúa 2017
2.15 Gjaldskrá félagsheimila 2017
2.16 Gjaldskrá fráveitu Fjarðabyggðar 2017
2.17 Gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Fjarðabyggð 2017
2.18 Gjaldskrá tjaldsvæða í Fjarðabyggð 2017
2.19 Gjaldskrá hitaveitu Fjarðabyggðar 2017
2.20 Gjaldskrá vatnsveitu Fjarðabyggðar 2017
2.21 Verkefni framkvæmda- umhverfis- og veitusviðs 2016
2.22 Eftirlitsskýrsla með opnum leiksvæðum á Reyðarfirði, Eskifirði, og Neskaupstað
2.23 Gangbrautir og hraðahindrun í Hæðargerði á Reyðarfirði
2.24 Lagfæring á veg frá Viðfirði út að Barðsnesi sunnan Norðfjarðar
2.25 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - eigna-,skipulags og umhverfisnefndar
3.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017
Málsnúmer 1605024
Fyrri umræða um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2017.
Bæjarstjóri fylgdi fjárhagsáætlun og starfsáætlun úr hlaði með greinargerð.
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Valdimar O. Hermannsson og Elvar Jónsson.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2017, auk starfsáætlunar, til síðari umræðu í bæjarstjórn.
4.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2018 - 2020
Málsnúmer 1610152
Fyrri umræða um þriggja ára fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árin 2018 til 2020.
Bæjarstjóri fylgdi fjárhagsáætluninni úr hlaði.
Enginnn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa þriggja ára fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árin 2018 til 2020 til síðari umræðu í bæjarstjórn.
5.
755 Sævarendi - umsókn um lóð undir jarðspennistöð
Málsnúmer 1609105
Grenndarkynningu, vegna lóðarumsóknar Guðmundar Hólm Guðmundssonar fh. RARIK ohf, dagsett 13. september 2016, þar sem sótt var um lóð undir jarðspennistöð yst við Sævarenda á Stöðvarfirði, er lokið.
Ein athugasemd barst. Lagt fram bréf eiganda Fjarðarbrautar 15, dagsett 16. október 2016. Lögð fram umsögn skipulags- og byggingarfulltrúa, dagsett 24. október 2016.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að athugasemd sé ekki þess eðlis að hafna beri lóðarúthlutuninni.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir úthlutun lóðar með 9 atkvæðum.