Fara í efni

Bæjarstjórn

217. fundur
16. febrúar 2017 kl. 16:00 - 18:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson Forseti bæjarstjórnar
Pálína Margeirsdóttir Aðalmaður
Hulda Sigrún Guðmundsdóttir Aðalmaður
Elvar Jónsson Aðalmaður
Eydís Ásbjörnsdóttir Aðalmaður
Esther Ösp Gunnarsdóttir Aðalmaður
Valdimar O Hermannsson Aðalmaður
Dýrunn Pála Skaftadóttir Aðalmaður
Starfsmenn
Páll Björgvin Guðmundsson Bæjarstjóri
Gunnar Jónsson Embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 508
Málsnúmer 1702001F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Esther Ösp Gunnarsdóttir.
Fundargerð bæjarráðs frá 6. febrúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
1.1 Starfslíðan starfsmanna Fjarðabyggðar 2016
1.2 Fjárlög 2017 - Ofanflóðavarnir
1.3 Bréf foreldrafélaga leikskólanna í Fjarðabyggð
1.4 Lánasamningur um 400 m.kr. við Íslandsbanka 2017 nr.
1.5 Málefni flóttafólks 2017
1.6 Uppbygging ljósleiðaraneta í Fjarðabyggð og ríkisaðstoðarreglur EES
1.7 Framtíðarmöguleikar Sköpunarmiðstöðvarinnar
1.8 Erindi frá Esbjerg vegna jólatrésgjafar
1.9 Kjarasamningur KÍ vegna FG - Vegvísir samstarfsnefndar SNS
1.10 Afnot af gömlu Hulduhlíð
1.11 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2017
1.12 Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2017
1.13 Hafnarstjórn - 173
2.
Bæjarráð - 509
Málsnúmer 1702005F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Dagskrárlið 7 í fundargerð um staðfestingu samnings við Orkufjarskipti vísað til bæjarráðs til frekari skoðunar og úrvinnslu.
Fundargerð bæjarráðs frá 13. febrúar s.l. utan dagskrárliðar 7 staðfest með 9 atkvæðum.
2.1 Rekstur málaflokka 2016 - TRÚNAÐARMÁL
2.2 Skýrsla um endurskoðun fjármálakafla sveitarstjórnarlaga
2.3 Menningarstefna
2.4 Endurskoðun samninga við Fjölís
2.5 Frá foreldrafélögum leikskólana í Fjarðabyggð - hækkun mótmælt
2.6 Drög að reglugerð um útlendingamál til umsagnar
2.7 Uppbygging ljósleiðaraneta í Fjarðabyggð og ríkisaðstoðarreglur EES
2.8 Ósk um greiðslu aksturspeninga til og frá vinnu
2.9 Beiðni um rekstrarstyrk - Tryggvasafn
2.10 Drög að reglugerð um eldvarnir og eldvarnareftirlit
2.11 Búðavegur 35 - stefna
2.12 Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga
2.13 Fiskeldi í Fjarðabyggð
2.14 Ljósá - ofanflóðaframkvæmdir
2.15 128.mál til umsagnar frumvarp til laga um farþegaflutninga og farmflutninga
2.16 Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2017
2.17 Menningar- og safnanefnd - 29
2.18 Fræðslunefnd - 37
2.19 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 168
3.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 168
Málsnúmer 1702004F
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 9. febrúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
3.1 Leigulönd í Fjarðabyggð
3.2 Landbrot - gömlu ruslahaugarnir í Hólmanesi
3.3 Landsáætlun og Framkvæmdasjóður ferðamannastaða
3.4 Tjaldsvæði Fjarðabyggð 2017
3.5 Ljósá - ofanflóðaframkvæmdir
3.6 Ljósleiðaralagning í dreifbýli - Vatnsveita Fannardalur
3.7 Ljósleiðaralagning í dreifbýli - Vatnsveita Eskifjarðardalur
3.8 Ljósleiðaralagning í dreifbýli - Kirkjumelur
3.9 Samningur Veraldarvinir í Fjarðabyggð
3.10 Gjaldskrá 2017 samþykkt - Strætisvagnar Austurlands
3.11 Varðar auknar sýnatökur af neysluvatni sem er geislað
3.12 Skipulagslýsing Breiðdalshrepps
3.13 755 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027 breyting, þéttbýlisuppdráttur fyrir Stöðvarfjörð, reitur I1
3.14 735 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027. - breyting, stækkun hafnarsvæðis á Eskifirði
3.15 Deiliskipulag Leira 1, iðnaðar- og hafnarsvæði sunnan Strandgötu - breyting, stækkuna hafnarsvæðis
3.16 740 Nesbakki 3, Byggingarleyfi - Svalalokun
3.17 735 Strandgata 88 - byggingarleyfi - sjóhús
3.18 735 Strandgata 122 - byggingarleyfi - utanhúss klæðning
3.19 735 Strandgata 12 - stálgrindarhús - byggingarleyfi
3.20 740 Marbakki 5, Byggingarleyfi - garðhús
3.21 735 Bleiksárhlíð 56 - Endurnýjun á lóðarleigusamning
3.22 740 Blómsturvellir 26-32 - Endurnýjun á lóðaleigusamning
3.23 755 Hvalnes við Stöðvarfjörð - Beiðni um framkvæmdarleyfi v. grjótnáms
3.24 Ný reglugerð um heimagistingu, gististaði og skemmtanahald - verkferlar ofl.
3.25 Drög að reglugerð um eldvarnir og eldvarnareftirlit
3.26 Búðavegur 35 - stefna
3.27 Kauptilboð - Skólavegur 98-112 grunnur Fáskrúðsfirði.
4.
Hafnarstjórn - 173
Málsnúmer 1701017F
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórar frá 1.febrúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
4.1 Skoðun á möguleikum á aðstöðu í landi vegna laxeldis
5.
Fræðslunefnd - 37
Málsnúmer 1702003F
Til máls tóku: Pálína Margeirsdóttir, Elvar Jónsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Valdimar O Hermannsson, Jón Björn Hákonarson, Eydís Ásbjörnsdóttir.
Fundargerð fræðslunefndar frá 8. febrúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
5.1 Heimsókn í skólastofnanir
5.2 Kjarasamningur KÍ vegna FG - Vegvísir samstarfsnefndar SNS
5.3 Frá foreldrafélögum leikskólana í Fjarðabyggð - hækkun mótmælt
5.4 Málefni flóttafólks 2015
6.
Menningar- og safnanefnd - 29
Málsnúmer 1702002F
Til máls tóku: Esther Ösp Gunnarsdóttir, Jón Björn Hákonarson, Dýrunn Pála Skaftadóttir, Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 8. febrúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
6.1 Menningarstefna Fjarðabyggðar
6.2 Framtíðarmöguleikar Sköpunarmiðstöðvarinnar
6.3 Eistnaflug 2017
6.4 Bætt tónlistaraðstaða fyrir ungmenni
6.5 Umsókn um styrk vegna húsaleigu í tengslum við leiksýningu í Egilsbúð
7.
Viðauki við lánasamning Íslandsbanka nr. 106527.
Málsnúmer 1701210
Bæjarstjóri fylgdi viðauka úr hlaði.
Viðauka er vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar.
Viðaukinn felur í sér breytingu á fjárhagsskilyrðum í viðauka við eldri lánasamning við Íslandsbanka, nr. 106527. Breytingin í viðaukanum við lánasamninginn felst í rýmkuðum fjárhagsskilyrðum þannig að út fellur krafa um að veltu fé frá rekstri sem hlutfall heildartekna A hluta skuli vera hærra en 9%. Niðurfelling skilyrðisins rýmkar stöðu Fjarðabyggðar. Allir lánasamningar við Íslandsbanka eru þá með sömu fjárhagslegu skilyrðin.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum viðauki við lánsamning nr. 106527 við Íslandsbanka.
8.
735 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027. - breyting, stækkun hafnarsvæðis á Eskifirði
Málsnúmer 1701099
Forseti fylgdi skipulags- og matslýsingu úr hlaði.
Engin tók til máls.
Lögð fram skipulags- og matslýsing vegna breytingar á þéttbýlisuppdrætti aðalskipulags fyrir Eskifjörð. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar skipulags- og matslýsingu til staðfestingar bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum skipulags- og matslýsingu fyrir þéttbýli aðalskipulags fyrir Eskifjörð.
9.
Deiliskipulag Leira 1, iðnaðar- og hafnarsvæði sunnan Strandgötu - breyting, stækkuna hafnarsvæðis
Málsnúmer 1701100
Forseti bæjarstjórnar fylgdi skipulags- og matslýsingu úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Lögð fram skipulags- og matslýsing vegna breytingar á deiliskipulagi Leiru 1, iðnaðar og hafnarsvæðis sunnan Strandgötu á Eskifirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar skipulags- og matslýsingu til staðfestingar bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum skipulags og matslýsingu vegna deiliskipulags Leiru 1.
10.
735 Strandgata 12 - stálgrindarhús - byggingarleyfi
Málsnúmer 1701186
Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði.
Fyrir liggur umsókn Egersund hf., frá 17. janúar 2017, þar sem sótt er um leyfi til að reisa dúkklætt stálgrindarhús á lóð fyrirtækisins að Strandgötu 12 á Eskifirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir áformaða 6 metra vegghæð byggingar en vísar til bæjararstjórnar staðfestingu þeirra ákvörðunar sbr. 4. gr. almennra skipulags- og byggingarskilmála þar sem hún er 4,5, metrar.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum heimild fyrir aukinni vegghæð í 6 metra.
11.
Menningarstefna
Málsnúmer 1306017
Bæjarstjóri fylgdi menningarstefnu Fjarðabyggðar og samstarfssamningi milli Fjarðabyggðar og Tónlistarmiðstöðvar Austurlands úr hlaði.
Menningar- og safnanefnd og bæjarráð hafa samþykkt Menningarstefnu Fjarðabyggðar og samstarfssamning milli Tónlistarmiðstöðvar Austurlands og Fjarðabyggðar ásamt starfslýsingu starfsmanns Menningarstofu. Stefnu og samstarfssamningi er vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
Til máls tóku: Valdimar O Hermannsson,Jón Björn Hákonarson.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa samstarfssamningi og menningarstefnu Fjarðabyggðar til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Vakti Esther Ösp Gunnarsdóttir athygli á því að Eistnaflugshátíðin hefði hlotið Eyrarrósina. Bæjarstjórn sendir bestu hamingjuóskir til aðstandenda Eistnaflugshátíðarinnar í tilefni af því að hátíðin hlaut Eyrarósina 2017.