Fara í efni

Bæjarstjórn

246. fundur
8. júní 2018 kl. 16:00 - 16:35
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar
Pálína Margeirsdóttir aðalmaður
Hulda Sigrún Guðmundsdóttir aðalmaður
Eydís Ásbjörnsdóttir aðalmaður
Dýrunn Pála Skaftadóttir aðalmaður
Einar Már Sigurðarson aðalmaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Esther Ösp Gunnarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Gunnlaugur Sverrisson embættismaður
Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 565
Málsnúmer 1805011F
Fundargerðir bæjarráðs nr. 565 og 566 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson og Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 565 frá 21.maí 2018, samþykkt með 9 atkvæðum.
1.1 Eistnaflug 2018
1.2 Kaup á fasteignum á Eskifirði vegna frummats ofanflóðavarna.
1.3 Fjárlög 2017 - Ofanflóðavarnir
1.4 Fjarðafasteignir slf - slit á felaginu 2018
1.5 Sala á eignarlóð - Strandgata 19
1.6 Forkaupsréttur að Eyrargötu 9 og 11 Neskaupstað
1.7 Varðar úthlutaðan byggðakvóta á Auði Vésteins SU-88 2017-2018
1.8 Ný bæjarskilti
1.9 Víkingarhótel í Fjarðabyggð
1.10 Styrkur til glímudeildar vegna góðs árangurs
1.11 Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2018
1.12 Fundargerðir Héraðsskjalasafns Austurlands 2018
1.13 Fundargerðir stjórnar SSA 2018
2.
Bæjarráð - 566
Málsnúmer 1805015F
Fundargerðir bæjarráðs nr. 565 og 566 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson og Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 566 frá 29.maí 2018, samþykkt með 9 atkvæðum.
2.1 Upplýsingaöryggismál - öryggisnefnd og persónuverndarfulltrúi
2.2 Beiðni um afnot af íþróttahúsinu á Stöðvarfirði fyrir dansleik vegna afmælishátíðar Súlunnar
2.3 Leiga á snjóbíl
2.4 Sameiginlegur starfsmaður Place-EE og Menningarstofu
2.5 Frístundaakstur
2.6 Jafnlaunavottun
2.7 730 Fagradalsbraut 7 - umsókn um lóð, hesthús
2.8 740 Kirkjuból - taka lands undan ábúð
2.9 Stjórnarfundur SvAust 2018
2.10 Hafnarstjórn - 198
2.11 Íþrótta- og tómstundanefnd - 48
2.12 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 205
3.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 205
Málsnúmer 1805014F
Enginn tók til máls.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 205 frá 28.maí 2018, utan 18.liðar, samþykkt með 9 atkvæðum.
Forseti vék af fundi undir 18.lið fundargerðar, efnistaka úr Norðfjarðará, en liðurinn var tekinn sérstaklega til afgreiðslu.
Einar Már Sigurðarson aldursforseti tók við stjórn fundarins og bar 18.lið í fundargerð undir atkvæði.
18.liður í fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 205 frá 28.maí 2018, samþykktur með 8 atkvæðum.
3.1 Veittur styrkur til viðgerðar á Lúðvíkshúsi
3.2 Úttekt og aðgerðir á söfnunar- og móttökustöðum í Fjarðabyggð
3.3 Varðar umsókn um minkaleitir 2018
3.4 Eyðing Lúpínu í Fjarðabyggð
3.5 Rótarýklúbbur Neskaupstaðar - fuglaskilti í Neskaupstað
3.6 Veðurfar í Fjarðabyggð
3.7 740 Kirkjuból - taka lands undan ábúð
3.8 740 Deiliskipulag Kirkjubóls, hesthúsa- og búfjársvæði - óveruleg breyting
3.9 755 Tjaldsvæði- umsókn um stöðuleyfi á salernisgám
3.10 730 Fagradalsbraut 7 - umsókn um lóð, hesthús
3.11 730 Austurvegur 9 - Byggingarleyfi, varmadæla
3.12 750 Hafnargata - Fyrirspurn um lóð fyrir sjódælistöð
3.13 750 Hlíðargata 55 - byggingarleyfi
3.14 Umsókn um styrk til fornleifaskráningar í Vöðlavík, á Krossanesi og Útsveit
3.15 735 Deiliskipulag Dalur 2 - sameining lóða
3.16 735 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027. - breyting, stækkun hafnarsvæðis á Eskifirði
3.17 740 Dalland - byggingarleyfi, viðbygging
3.18 740 Efri-Miðbær - Efnistaka úr Norðfjarðará
3.19 750 Hlíðargata 8 - umsókn um rekstrarleyfi
3.20 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2018
3.21 Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2018
4.
Hafnarstjórn - 198
Málsnúmer 1805012F
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 198 frá 22.maí 2018, samþykkt með 9 atkvæðum.
4.1 Fundargerðir CI á árinu 2018
4.2 750 Hafnargata - Fyrirspurn um lóð fyrir sjódælistöð
4.3 735 Aðstöðuhús fyrir ferðamenn Eskifirði
4.4 735 Tilraunaboranir við Eskifjarðarhöfn
4.5 Aðstöðuhús við smábátahafnir
5.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 48
Málsnúmer 1805013F
Enginn tók til máls.
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 48 frá 24.maí 2018, samþykkt með 9 atkvæðum.
5.1 Fundagerðir Stýrihóps um Heilsueflandi Samfélag í Fjarðabyggð 2018
5.2 Hreyfivika UMFÍ
5.3 Landsmót UMFÍ 50 árið 2019 í Neskaupstað
5.4 Aðstaða fyrir Karateiðkun á Eskifirði
6.
Stjórn til undirbúnings sameiningar sveitarfélaga - 5
Málsnúmer 1806001F
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð stjórnar til undirbúnings sameiningar sveitarfélaga, nr. 5 frá 6.júní 2018, samþykkt með 9 atkvæðum.
7.
Allt að 21.000 tonna framleiðsla á laxi í Berufirði og Fáskrúðsfirði - beiðni um umsögn
Málsnúmer 1709077
Bæjarstjóri fylgdi máli úr hlaði. Erindi hefur borist frá Skipulagsstofnun þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna nýrra tillagna að eldissvæðum Fiskeldis Austfjarða í Fáskrúðsfirði. Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að ganga frá umsögn Fjarðabyggðar til Skipulagsstofnunar.
8.
735 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027. - breyting, stækkun hafnarsvæðis á Eskifirði
Málsnúmer 1701099
Forseti fylgdi máli úr hlaði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, stækkun hafnarsvæðis á Eskifirði til auglýsingar. Tillagan er sett fram á uppdrætti og greinargerð dagsett 28. maí 2018. Tillagan verði auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, stækkun hafnarsvæðis á Eskifirði til auglýsingar, með 9 atkvæðum.
9.
740 Kirkjuból - taka lands undan ábúð
Málsnúmer 1711163
Bæjarstjóri fylgdi máli úr hlaði.
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd drögum að viðauka við ábúðasamning um jörðina Kirkjuból í Norðfjarðarsveit. Bæjarráð fól bæjarstjóra að útfæra efni viðauka við ábúðasamning um Kirkjuból og leggja hann fyrir að nýju.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir viðauka við ábúðarsamning með 9 atkvæðum og felur bæjarstjóra undirritun hans. Bæjarstjórn samþykkir jafnframt að Vegagerðin geti hafið framkvæmdir, m.a. við vegalagningu samkvæmt skipulagi, er undirritun samnings og deiliskipulags liggur fyrir.
10.
740 Deiliskipulag Kirkjubóls, hesthúsa- og búfjársvæði - óveruleg breyting
Málsnúmer 1805227
Forseti fylgdi máli úr hlaði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, ef samningar nást, að gerð verði óveruleg breyting á deiliskipulagi Kirkjubóls, hesthúsa- og búfjársvæðis.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum breytingu á deiliskipulagi Kirkjubóls, hestahúsa- og búfjársvæðis, þannig að þrjár vestustu lóðirnar verði felldar út.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar lýsir yfir miklum vonbrigðum með þá ákvörðun Landsbankans að segja upp starfsfólki og stytta ennfrekar opnunartíma útibúa sinna í sveitarfélaginu. Bæjastjórn ætlar ekki að draga í efa að hagræðingar sé þörf í bankakerfinu hér á landi en finnst skjóta skökku við að fara í þessar aðgerðir á landsbyggðinni þar sem Landsbankinn hefur fækkað útibúum sínum, fækkað störfum og skert þjónustu verulega á síðustu árum. Á sama tíma hafa verkefni sem óháð eru staðsetningu ekki verið færð til Fjarðabyggðar. Með þessum síðustu aðgerðum Landsbankans er þjónusta hans við íbúa Fjarðabyggðar enn minni en hún var og það átelur bæjarstjórn harðlega og telur einsýnt að Landsbankinn er ekki lengur banki allra landsmanna heldur einungis höfuðborgarsvæðisins. Slíkt verður að teljast mikil afturför. Bæjarstjóri færði fráfarandi bæjarstjórn þakkir fyrir ánægjulegt samstarf á liðnum árum. Forseti bæjarstjórnar þakkaði bæjarstjórn samstarfið og færði bæjarstjóra sérstakar þakkir fyrir samstarfið síðustu átta ár.