Fara í efni

Bæjarstjórn

292. fundur
28. maí 2020 kl. 16:00 - 17:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar
Pálína Margeirsdóttir aðalmaður
Magni Þór Harðarson varamaður
Sigurður Ólafsson aðalmaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir aðalmaður
Einar Már Sigurðarson aðalmaður
Dýrunn Pála Skaftadóttir aðalmaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Lára Elísabet Eiríksdóttir varamaður
Starfsmenn
Karl Óttar Pétursson bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 663
Málsnúmer 2005002F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Sigurður Ólafsson, Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.
Fundargerð bæjarráðs frá 11. maí sl. staðfest með 9 atkvæðum.
1.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2021 - 2024
1.2 Samruni Rafveitu Reyðarfjarðar og Orkusölunnar
1.3 Reglur um félagslegt leiguhúsnæði
1.4 Menningarverkefni - QueerNes
1.5 Markaðsátak og sýnileiki 2020
1.6 Sumarfrístund 2020
1.7 Ungt fólk - 8.-10.bekkur könnun
1.8 734.mál til umsagnar frumvarp til laga um svæðisbundna flutningsjöfnun (niðurlagning flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara),
1.9 662.mál til umsagnar frumvarp til laga um samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir
1.10 Aðalfundarboð 2020 - Olíusamlagið
1.11 Stefnudagur starfsfólks Fjarðabyggðar
1.12 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2020
1.13 Hafnarstjórn - 242
1.14 Fræðslunefnd - 83
2.
Bæjarráð - 664
Málsnúmer 2005007F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 18. maí sl. staðfest með 9 atkvæðum.
2.1 Rekstur málaflokka 2020 - Trúnaðarmál
2.2 Ársreikningur Rafveitu Reyðarfjarðar 2019
2.3 Forsetakosningar 2020
2.4 Skerðing framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga 2020
2.5 Kaup á hljóðkerfi fyrir félagsheimili
2.6 Erindi frá sóknarnefnd Norðfjarðarkirkju
2.7 Breytingar á samþykktum um stjórn og fundarsköp vegna laga og reglugerða um mat á umhverfisáhrifum
2.8 Reglur um meðferð brota í starfi áminningar, frávikningar og uppsagnir
2.9 Lýsing fyrir gerð strandsvæðisskipulags á Austfjörðum til umsagnar
2.10 Ísland ljóstengt: Aukaúthlutun 2020 og áhugi kannaður vegna lokaúthlutunar 2021
2.11 Bæjarhátíðir 2020
2.12 17. júní 2020
2.13 Ferðamálastefna Fjarðabyggðar 2020 - 2021
2.14 Starfshópur um nýsköpun og atvinnuþróun
2.15 Starfshópur um málefni aldraðs- og fatlaðs fólks
2.16 Sumarlokun bæjarskrifstofu
2.17 715.mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á ymsum lögum er varðar eignarráð og nýtingu fasteigna
2.18 Kauptilboð í Sólvelli 10A Breiðdalsvík
2.19 730 Hraun 9a - Umsókn um lóð
2.20 730 Öldugata 3 - umsókn um lóð
2.21 740 Naustahvammur 64 - Umsókn um lóð
2.22 Fundarboð Stapa 2.júní 2020
2.23 Ársfundur Starfsendurhæfingar Austurlands 2020
2.24 Aðalfundur Sparisjóðs Austurlands hf - 27.maí 2020
2.25 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2020
2.26 Fundagerðir stjórnar SSA 2020
2.27 Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2018-2020
2.28 750 Stekkholt Fáskrúðsfirði
2.29 Íþrótta- og tómstundanefnd - 73
2.30 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 259
2.31 Menningar- og nýsköpunarnefnd - 25
2.32 Barnaverndarfundargerðir 2020
3.
Bæjarráð - 665
Málsnúmer 2005015F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 25. maí sl. staðfest með 9 atkvæðum.
3.1 Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2021
3.2 Framkvæmda- og viðhaldsáætlun 2020
3.3 Málefni hjúkrunarheimila, fundur Sambands ísl. sveitarfélaga
3.4 Umsóknir um framlög úr framkvæmdasjóði aldraðra 2020
3.5 Fjármál sveitarfélaga í kjölfar Covid-19
3.6 Bæjarhátíðir 2020
3.7 Dalborg, hönnun á viðbyggingu
3.8 Sorpmál í Fjarðabyggð
3.9 Reglur um meðferð brota í starfi áminningar, frávikningar og uppsagnir
3.10 Starfshópur um tjaldsvæði
3.11 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2020
3.12 Nefndaskipan Sjálfstæðisflokks 2018 - 2022
3.13 Styrkbeiðni til handa Knattspyrnufélagi Fjarðabyggðar
3.14 Félagsmálanefnd - 134
3.15 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 260
3.16 Hafnarstjórn - 243
3.17 Fræðslunefnd - 84
4.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 259
Málsnúmer 2005004F
Fundargerðir eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tók Einar Már Sigurðarson.
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 11. maí sl. staðfest með 9 atkvæðum.
4.1 Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar 2021
4.2 Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 2019
4.3 Umsókn um garðefnasvæði á Reyðarfirði
4.4 Sorpmál í Fjarðabyggð
4.5 Dýraeftirlit 2020 - gæludýr
4.6 Refa- og minkaveiðar 2020
4.7 Vorbæklingur Fjarðabyggðar 2020
4.8 760 Ásvegur 7 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
4.9 730 Öldugata 3 - umsókn um lóð
4.10 740 Naustahvammur 64 - Umsókn um lóð
4.11 730 Hraun 9a - Umsókn um lóð
4.12 740 Egilsbraut 1 - byggingarleyfi, breyting innanhúss
4.13 730 Hafnargata 2 - byggingarleyfi, breyting innanhúss
4.14 730 Heiðarvegur 37 - byggingarleyfi, niðurrif skemmu
4.15 Eskifjarðarhöfn - stækkun
4.16 Skipulagsmál í Stöðvarfirði - beitiland og friðun svæða
4.17 Frágangur gatna og umhverfi á Fáskrúðsfirði
4.18 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2020
4.19 Ársreikningur - Náttúrustofa Austurlands 2019
4.20 Ársskýrsla Náttúrustofu Austurlands 2019
5.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 260
Málsnúmer 2005011F
Fundargerðir eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 18. maí sl. staðfest með 9 atkvæðum.
5.1 776.mál til umsagnar frumvarp til laga um um breytingu á lögum um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009, með síðari breytingum (átak í fráveitumálum),
5.2 Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027
5.3 Lýsing fyrir gerð strandsvæðisskipulags á Austfjörðum til umsagnar
5.4 755 Heyklif, ferðaþjónusta - beiðni um umsögn vegna matsskyldu
5.5 755 Heyklif - breyting á aðalskipulagi, ferðaþjónusta
5.6 755 Deiliskipulag Heyklif
5.7 750 Búðavegur 35 - Fyrirspurn um breytingu á skipulagi
5.8 730 Óseyri 1 - byggingarleyfi, fjölgun fasteigna
5.9 740 Hafnarbraut 15 - byggingarleyfi, viðbygging
5.10 740 Egilsbraut 26 - Umsókn um stöðuleyfi, torgsöluhús við beituskúrinn
5.11 735 Strandgata 9A - Umsókn um stækkun lóðar
5.12 Umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar
5.13 715.mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á ymsum lögum er varðar eignarráð og nýtingu fasteigna
5.14 750 Stekkholt Fáskrúðsfirði
6.
Hafnarstjórn - 242
Málsnúmer 2004024F
Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 4. maí sl. staðfest með 9 atkvæðum.
6.1 Umsókn um styrk úr Hafnarsjóði vegna dagskrár sumar 2020
6.2 Viðspyrna af hálfu sveitarfélaga fyrir íslenskt atvinnulíf
6.3 Umhverfismat fyrir efnistökusvæði í Norðfjarðarflóa og innfjörðum
6.4 740 Naustahvammur 64 - Umsókn um lóð
6.5 Eskifjarðarhöfn - stækkun
7.
Hafnarstjórn - 243
Málsnúmer 2005008F
Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 18. maí sl. staðfest með 9 atkvæðum.
7.1 Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnarstjórnar 2021
7.2 Lýsing fyrir gerð strandsvæðisskipulags á Austfjörðum til umsagnar
7.3 Umsókn um rannsóknarleyfi í Reyðarfirði
7.4 Umsókn um rannsóknarleyfi í Norðfjarðarflóa
7.5 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2020
7.6 Framkvæmdir hafnarsjóðs 2020
7.7 Eskifjarðarhöfn - stækkun
7.8 Erindi frá Siglingaklúbbi Austurlands
7.9 Orkuskipti í höfnum
8.
Fræðslunefnd - 83
Málsnúmer 2004023F
Fundargerðir fræðslunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar frá 6. maí sl. staðfest með 9 atkvæðum.
8.1 Samráðsfundir og viðbrögð vegna coronaveiru COVID19
8.2 Viðspyrna af hálfu sveitarfélaga fyrir íslenskt atvinnulíf
8.3 Ósk um flutning á skipulagsdegi
8.4 Ungt fólk - 8.-10.bekkur könnun
8.5 Niðurstöður úr Skólavoginni
8.6 Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2021
9.
Fræðslunefnd - 84
Málsnúmer 2005013F
Fundargerðir fræðslunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð fræðslunefndar frá 20. maí sl. staðfest með 9 atkvæðum.
9.1 Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2021
10.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 73
Málsnúmer 2005005F
Til máls tók Pálína Margeirsdóttir.
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 13. maí sl. staðfest með 9 atkvæðum.
10.1 Sumarfrístund 2020
10.2 Fjölþætt heilsuefling fyrir eldri aldurshópa
10.3 Ungt fólk - 8.-10.bekkur könnun
10.4 Skipulag málaflokks íþrótta- og tómstunda
10.5 Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundanefndar 2021
11.
Menningar- og nýsköpunarnefnd - 25
Málsnúmer 2005003F
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 11. maí sl. staðfest með 9 atkvæðum.
11.1 Menningarverkefni - QueerNes
11.2 Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2021
11.3 Nýsköpun og atvinnuþróun
11.4 Gamla sýningarvélin og önnur tæki í Valhöll Eskifirði
11.5 Markaðsátak og sýnileiki 2020
12.
Félagsmálanefnd - 134
Málsnúmer 2005012F
Enginn tók til máls.
Fundargerð félagsmálanefndar frá 19. maí sl. staðfest með 9 atkvæðum.
12.1 Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2021
13.
Barnaverndarfundargerðir 2020
Málsnúmer 2003129
Enginn tók til máls.
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 115. frá 14. maí sl. staðfest með 9 atkvæðum.
14.
Reglur um félagslegt leiguhúsnæði
Málsnúmer 2004147
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir reglum.
Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar reglum um félagslegt leiguhúsnæði.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum reglur um félagslegt leiguhúsnæði.
15.
Reglur um viðbrögð við brotum í starfi
Málsnúmer 1805186
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingum á reglum um viðbrögð við brotum í starfi.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar breytingum á reglum um viðbrögð við brotum í starfi. Um er að ræða uppfærsla 12. gr. reglna og breyting á heiti þeirra en fyrra heiti var Reglur um meðferð brota í starfi, áminningar, frávikningar og uppsagnir.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum breytingar á reglum um viðbrögð við brotum í starfi.
16.
755 Deiliskipulag Heyklif
Málsnúmer 1904069
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir afgreiðslu deiliskipulags.
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til staðfestingar bæjarstjórnar deiliskipulagi Heyklifs. Lagt er til að deiliskipulag Heyklifs, uppdráttur, greinargerð og umhverfisskýrsla, dagsett 7. febrúar 2020 verði staðfest. Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum deiliskipulag Heyklifs ásamt meðfylgjandi gögnum.
17.
755 Heyklif - breyting á aðalskipulagi, ferðaþjónusta
Málsnúmer 1909021
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingu aðalskipulags.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar til staðfestingar bæjarstjórnar breytingum á aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007 til 2027 vegna uppbyggingar ferðaþjónustu við Heyklif samanber greinargerð og umhverfisskýrslu, dagsett 10. mars 2020. Málsmeðferð verði í samræmi við 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum breytingar á aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007 til 2027 vegna ferðaþjónustu við Heyklif.
18.
Tillaga vegna COVID 19 faraldurs
Málsnúmer 2002090
Forseti mælti fyrir tillögu.
Af fenginni tillögu bæjarstjóra samþykkir bæjarstjórn Fjarðabyggðar að veitt verði fé til starfsmanna sveitarfélagsins sem þakklætisvotti fyrir framlag þeirra við þær erfiðu aðstæður er sköpuðust í samfélaginu er COVID 19 faraldurinn reið yfir. Skal fjármagnið nota í samráði stjórnenda stofnana og starfsfólks með tilbreytingu í huga og efla þannig liðsheild og starfsanda. Er bæjarráði falin frekari útfærsla á aðgerð þessari.
Vill bæjarstjórn með þessu þakka starfsmönnum sínum fyrir ómetanlegt framlag, gott samstarf og ábyrgð í störfum sínum á tímum sem réttilega eru sérstakir.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum tillöguna.