Fara í efni

Bæjarstjórn

294. fundur
25. júní 2020 kl. 16:00 - 16:55
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar
Jón Kristinn Arngrímsson varamaður
Eydís Ásbjörnsdóttir aðalmaður
Sigurður Ólafsson aðalmaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir aðalmaður
Einar Már Sigurðarson aðalmaður
Dýrunn Pála Skaftadóttir aðalmaður
Heimir Snær Gylfason varamaður
Rúnar Már Gunnarsson aðalmaður
Starfsmenn
Karl Óttar Pétursson bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 667
Málsnúmer 2006010F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson.
Fundargerð bæjarráðs frá 15.júní sl. utan liðar 13, kauptilboð í Egilsbraut 6, staðfest með 9 atkvæðum.
1.1 Rekstur málaflokka 2020 - Trúnaðarmál
1.2 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2021 - 2024
1.3 Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2021
1.4 Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2021
1.5 Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2021
1.6 Starfs- og fjárhagsáætlun barnaverndarnefndar 2021
1.7 Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundanefndar 2021
1.8 Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2021
1.9 Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar 2021
1.10 Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnarstjórnar 2021
1.11 Starfshópur um tjaldsvæði
1.12 Tölvur í skólum Fjarðabyggðar
1.13 Kauptilboð í Egilsbraut 6 Neskaupstað
1.14 Ársfundur Austurbrúar 2020
1.15 Ísland ljóstengt: Aukaúthlutun 2020 og 2021 vegna ljósleiðaralagningar
1.16 Krafa um miskabætur - TRÚNAÐARMÁL
1.17 Krafa um viðurkenningu á skaðabótaábyrgð og aðgang að upplysingum - TRÚNAÐARMÁL
1.18 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 262
1.19 Íþrótta- og tómstundanefnd - 75
1.20 Menningar- og nýsköpunarnefnd - 27
1.21 Safnanefnd - 15
1.22 Félagsmálanefnd - 135
1.23 Öldungaráð - 3
1.24 Barnaverndarfundargerðir 2020
2.
Bæjarráð - 668
Málsnúmer 2006017F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 22.júní sl., staðfest með 9 atkvæðum.
2.1 Fasteignamat 2021
2.2 Fjármál sveitarfélaga í kjölfar Covid-19
2.3 Kauptilboð í Búðareyri 21
2.4 Endurnýjun húsnæðis Uppsala
2.5 Markaðsátak og sýnileiki 2020
2.6 Samingur um þjónustu
2.7 Hálendi Austurlands - ályktun aðalfundar Landverndar 2020
2.8 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2020
2.9 Skipan varafulltrúa í svæðisráð um gerð strandsvæðisskipulags fyrir Austfirði
2.10 Hafnarstjórn - 245
2.11 Hafnarstjórn - 246
2.12 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 263
3.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 262
Málsnúmer 2006006F
Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 8. júní sl., staðfest með 9 atkvæðum.
3.1 Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar 2021
3.2 Fólkvangur Neskaupstaðar - styrkfé, hönnun, framkvæmdir
3.3 Ferðamálastefna Fjarðabyggðar 2020 - 2021
3.4 Aðgerðir 2020 - umhverfisátak
3.5 Umhverfisstefna Fjarðabyggðar
3.6 C.9 Byggðaáætlun
3.7 730 Heiðarvegur 19 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
4.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 263
Málsnúmer 2006012F
Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 15. júní sl., staðfest með 9 atkvæðum.
4.1 735 - Deiliskipulag, Eskifjörður-miðbær
4.2 740 Naustahvammur 67-69, óveruleg breyting á deiliskipulagi
4.3 Deiliskipulag Hlíðarenda - óveruleg breyting, safnasvæði
4.4 Mánagata 3 - byggingarleyfi, nýb. á bílskúr, breyting úti og á lóð
4.5 715 Mjóafjarðarvegur - byggingarleyfi, niðurrif olíutanks
4.6 730 Hafnargata 1 - byggingarleyfi, uppsetning á skilti
4.7 Umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar
4.8 Fólkvangur Neskaupstaðar - styrkfé, hönnun, framkvæmdir
4.9 Umhverfisstefna Fjarðabyggðar
4.10 Uppbygging á æfingasvæði á Eskifirði
4.11 Átak í fráveitumálum
4.12 Samingur um dælubíl og tengda þjónustu
4.13 Snjómokstur í Fjarðabyggð
4.14 Opin leiksvæði í Fjarðabyggð
5.
Hafnarstjórn - 245
Málsnúmer 2006013F
Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tók Sigurður Ólafsson.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 15. júní sl., staðfest með 9 atkvæðum.
5.1 Verkefni hafnarsjóðs
5.2 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2020
5.3 Ósk um leyfi til notkunar vita Fjarðabyggðar
5.4 Beiðni um styrk vegna hátíðahalda á sjómannadaginn 2020
5.5 Umsókn um styrk vegna Franskra daga 2020
5.6 Sorphirða og endurvinnsla á höfnum
5.7 Umsókn um rannsóknarleyfi í Norðfjarðarflóa
5.8 Umsókn um leitarleyfi í Norðfjarðarflóa
5.9 Eskifjarðarhöfn - stækkun
6.
Hafnarstjórn - 246
Málsnúmer 2006014F
Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 19. júní sl., staðfest með 9 atkvæðum.
6.1 Eskifjarðarhöfn - stækkun
7.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 75
Málsnúmer 2006008F
Enginn tók til máls.
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 10. júní sl., staðfest með 9 atkvæðum.
7.1 Ferðamálastefna Fjarðabyggðar 2020 - 2021
7.2 Uppbygging á æfingasvæði á Eskifirði
7.3 Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundanefndar 2021
8.
Menningar- og nýsköpunarnefnd - 27
Málsnúmer 2006004F
Enginn tók til máls.
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 28. júní sl., staðfest með 9 atkvæðum.
8.1 Starfshópur um nýsköpun og atvinnuþróun
8.2 Ferðamálastefna Fjarðabyggðar 2020 - 2021
8.3 Safnanefnd - 15
9.
Safnanefnd - 15
Málsnúmer 2006001F
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð safnanefndar frá 4. júní sl., staðfest með 9 atkvæðum.
9.1 Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2021
9.2 Fyrirhuguð uppbygging Íslenska stríðsárasafnsins.
9.3 Stríðsárasafn á Reyðarfirði - Grundvöllurinn
9.4 Stjórn Sjóminjasafns Austurlands.
9.5 Egilsbraut 4 - skjalasafn
9.6 Fundagerðir Héraðsskjalasafns Austurlands 2020
9.7 Þjónustusamningur við eldri borgara á Reyðarfirði 2020
9.8 Þjónustusamningur við félag eldri borgarar í Neskaupstað 2020
9.9 Þjónustusamningur við eldri borgara á Eskifirði 2020
10.
Félagsmálanefnd - 135
Málsnúmer 2006005F
Enginn tók til máls.
Fundargerð félagsmálanefndar frá 9. júní sl., staðfest með 9 atkvæðum.
10.1 Ungt fólk - 8.-10.bekkur könnun
10.2 Frumvarp til laga um breytingu á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018 (notendaráð), 838. mál
10.3 Ferðamálastefna Fjarðabyggðar 2020 - 2021
10.4 Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2021
11.
Öldungaráð - 3
Málsnúmer 2002001F
Enginn tók til máls.
Fundargerð öldungaráðs frá 4. febrúar sl., staðfest með 9 atkvæðum.
11.1 Öldungaráð 2018 - ný og breytt ákvæði
11.2 Framtíðarþing um farsæla öldrun - Beiðni um styrk
11.3 Starfsáætlun öldungaráðs 2020
12.
Barnaverndarfundargerðir 2020
Málsnúmer 2003129
Enginn tók til máls.
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 117 frá 11. júní sl., staðfest með 9 atkvæðum.
13.
Kosning forseta bæjarstjórnar
Málsnúmer 1806022
Kosning forseta bæjarstjórnar til eins árs. Jón Björn Hákonarson er tilnefndur sem forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar og komu ekki fram önnur framboð. Jón Björn Hákonarson er því kjörinn forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar samhljóða til eins árs.
14.
Kosning 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar
Málsnúmer 1806023
Kosning 1. og 2.varaforseta bæjarstjórnar til eins árs. Tilnefnd eru sem 1. varaforseti Eydís Ásbjörnsdóttir og 2. varaforseti Einar Már Sigurðarson. Aðrar tilnefningar eru ekki bornar fram og eru þau kjörin varaforsetar samhljóða til eins árs.
15.
Kosning bæjarráðs
Málsnúmer 1806024
Kosning bæjarráðs til eins árs. Tillaga er borin fram um að aðalmenn bæjarráðs verði Eydís Ásbjörnsdóttir formaður, Jón Björn Hákonarson varaformaður og Dýrunn Pála Skaftadóttir. Rúnar Gunnarsson verði áheyrnarfulltrúi í bæjarráði með málfrelsis og tillögurétt. Aðrar tillögur voru ekki lagðar fram og eru tilnefndir fulltrúar bæjarráðs kosnir samhljóða til eins árs.
16.
Kosning fulltrúa á aðalfund SSA
Málsnúmer 1806029
Kosning skv. 62. gr. samþykkta Fjarðabyggðar, iii, a-hluti, skipan til 1 árs, þriðji liður. Fulltrúar á aðalfund SSA.
Samkvæmt samþykkt aðalfundar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi þann 23. júní sl. þá eru kjörnir aðalmenn í bæjarstjórn fulltrúar sveitarfélagsins á aðalfundi þess og kjörnir varamenn bæjarstjórnar varafulltrúar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tilnefningu samkvæmt breyttum samþykktum sambandsins.
17.
Breytingar á samþykktum um stjórn og fundarsköp vegna laga og reglugerða um mat á umhverfisáhrifum
Málsnúmer 1912021
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingum á samþykkt.
Vísað til síðari umræða bæjarstjórnar breytingum á viðauka við samþykkta um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar. Bætist við liður við viðauka 1.1. í samþykkt nr. 736/2019, er varðar fullnaðarafgreiðslur eigna- skipulags- og umhverfisnefndar er varðar ákvörðun um hvort framkvæmd skuli háð mati á umhverfisáhrifum þegar sveitarfélagið er sjálft framkvæmdaraðili. Jafnframt fellur út úr viðauka 1.1. í sömu samþykkt 2. töluliður sem fjallar um starfsemi Rafveitu Reyðarfjarðar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum breytingar.
18.
Erindisbréf eigna-,skipulags- og umhverfisnefndar
Málsnúmer 1805115
Forseti mælti fyrir breytingum á erindisbréfi. Seinni umræða bæjarstjórnar um breytingar á erindisbréfi eigna- skipulags- og umhverfisnefndar. Bætt er við ákvæði um fullnaðarafgreiðslur um ákvarðanir þegar framkvæmd skal háð mati á umhverfisáhrifum þegar sveitarfélagið er sjálft framkvæmdaraðili og felld eru út ákvæði um Rafveitu Reyðarfjarðar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir breytingar á erindisbréfi eigna- skipulags- og umhverfisnefndar með 9 atkvæðum.
19.
Forsetakosningar 2020
Málsnúmer 2004024
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir kjörskrárstofni og umboði til bæjarstjóra. Bæjarráð fól bæjarstjóra á fundi sínum 18. maí sl. að semja kjörskrá vegna forsetakosninga 27. júní 2020. Jafnframt veitti bæjarráð bæjarstjóra, fullnaðarheimild til að fjalla um athugasemdir, gera nauðsynlegar leiðréttingar og úrskurða um ágreiningsmál sem kunna að vera gerðar fram að kjördegi. Bæjarstjóri getur ávallt vísað úrskurðum um ágreiningsmál til bæjarráðs.
Kjörskrárstofn Fjarðabyggðar er sem hér segir:

Mjóifjörður - 12
Neskaupstaður - 1.037
Eskifjörður - 654
Reyðarfjörður - 880
Fáskrúðsfjörður - 467
Stöðvarfjörður - 137
Breiðdalur - 139
Samtals - 3.326

Til máls tóku: Einar Már Sigurðarson, Jón Björn Hákonarson.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum kjörskrárstofn Fjarðabyggðar og umboð bæjarstjóra.
20.
Umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar - fyrri umræða.
Málsnúmer 1805134
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingum á umferðarsamþykkt við fyrri umræðu.
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar uppfærðri umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa umferðarsamþykkt til síðari umræðu bæjarstjórnar.
21.
740 Naustahvammur 67-69, óveruleg breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 2006013
Forseti mælti fyrir óverulegri breytingu deiliskipulags.
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Naust 1 - Norðfjarðarhöfn og nágrenni, dagsett 10. júní 2020. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun lóðarinnar við Naustahvamm 67 til 69. Tillagan var ekki grenndarkynnt þar sem hún hefur bara áhrif á lóðarhafa og Fjarðabyggð Enginn tók til máls.
Breyting á deiliskipulagi Naust 1 - Norðfjarðarhöfn og nágrenni, samþykkt með 9 atkvæðum.
22.
Sumarleyfi bæjarstjórnar
Málsnúmer 1606067
Forseti mælti fyrir sumarleyfi bæjarstjórnar 2020.
Tillaga forseta bæjarstjórnar.
Lagt er til að bæjarstjórn taki sumarfrí í júlí og hluta ágústmánaðar sbr. 7. gr. samþykkta Fjarðabyggðar og komi saman að nýju eftir sumarfrí, fimmtudaginn 20. ágúst 2020. Einnig er lagt til að bæjarráði verði falið ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðsla mála bæjarstjórnar meðan á sumarfríi stendur sbr. 46. gr samþykkta Fjarðabyggðar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum tillöguna.
Forseti bæjarstjórn bar upp tillögu um fundardaga bæjarstjórnar fram að áramótum. 20. ágúst 3. september 17. september 1. október 15. október 5. nóvember 19. nóvember 3. desember 17. desember Bæjarstjórn staðfestir tillögu að fundardögum samhljóða.