Fara í efni

Bæjarstjórn

324. fundur
16. desember 2021 kl. 16:00 - 17:40
í fjarfundi
Nefndarmenn
Eydís Ásbjörnsdóttir forseti bæjarstjórnar
Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri
Pálína Margeirsdóttir aðalmaður
Sigurður Ólafsson aðalmaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir aðalmaður
Einar Már Sigurðarson aðalmaður
Heimir Snær Gylfason varamaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Rúnar Már Gunnarsson aðalmaður
Starfsmenn
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 735
Málsnúmer 2111015F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Sigurður Ólafsson, Ragnar Sigurðsson, Heimir Snær Gylfason, Einar Már Sigurðsson, Pálína Margeirsdóttir, Jón Björn Hákonarson,
Fundargerð bæjarráðs frá 6. desember staðfest með 9 atkvæðum.
1.1 Brunavarnir í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
1.2 Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar - endurskoðun 2021 - Nýjar leiðbeiningar og fyrirmyndir að samþykkt um stjórn sveitarfélaga í október 2021
1.3 Lántaka á árinu 2021
1.4 Minnisblað sambandsins um endurskoðaða þjóðhagsspá
1.5 Krafa vegna fasteignanna að Mánagötu 3 og 7 Reyðarfirði
1.6 Vatnstjón á Eyrarstíg 1
1.7 Aðalfundur Héraðsskjalasafn Austfirðinga bs. 2021
1.8 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2021
1.9 Hluthafafundur Raflagna Austurlands
1.10 Barnaverndarnefnd 2021
2.
Bæjarráð - 736
Málsnúmer 2112008F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 13. desember staðfest með 9 atkvæðum.
2.1 Fjárhagsáætlun 2021 - viðauki 2
2.2 Lántaka á árinu 2021
2.3 Málefni brothættra byggða
2.4 Endurnýjun á samningi við N4 vegna þáttagerðar 2022
2.5 Reglur um leikskóla
2.6 Reglur Fjarðabyggðar um frístundastyrk og úthlutun íþróttastyrkja2022
2.7 Reglur Fjarðabyggðar um frístundastyrk og úthlutun íþróttastyrkja2022
2.8 Samþykkt um hunda- og kattahald - endurskoðun 2021
2.9 Covid 19 - aðgerðir vegna smita í Fjarðabyggð og á Austurlandi
2.10 Aðalfundur Héraðsskjalasafn Austfirðinga bs. 2021
2.11 730 Stekkjarholt 19-21 - Umsókn um lóð
2.12 Sumarlokun leikskóla 2022
2.13 Fræðslunefnd - 105
2.14 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 302
2.15 Hafnarstjórn - 271
2.16 Íþrótta- og tómstundanefnd - 94
3.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 302
Málsnúmer 2112002F
Enginn tók til máls.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 6. desember staðfest með 9 atkvæðum.
3.1 730 Stekkjartún 1 - Umsókn um byggingarleyfi, einbýlishús
3.2 740 Naustahvammur 67 - Umsókn um byggingarleyfi byggja við löndunarhús, seinni hluti
3.3 730 Stekkjarholt 19-21 - Umsókn um lóð
3.4 730 Ægisgata 9 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
3.5 730 Heiðarvegur 18 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
3.6 Umsókn um framkvæmdaleyfi - sjóvarnir í Norðfirði og Eskifirði
3.7 730 Stekkjargrund - Fyrirspurn um fjölgun íbúða
3.8 750 Skólavegur 57 - Fyrirspurn um breytta notkun
3.9 Krafa um skaðabætur vegna fasteignanna að Mánagötu 3 og 7 Reyðarfirði
4.
Hafnarstjórn - 271
Málsnúmer 2112003F
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 7. desember staðfest með 9 atkvæðum.
4.1 Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnarstjórnar 2021
4.2 Endurbygging/endurnýjun stálþilja vegna tæringar
4.3 Hafnarsvæði við Landanaust
4.4 Þróun hafnarsvæða
4.5 Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Tukuma Arctica
4.6 Sérstakt strandveiðigjald til hafna 2021
5.
Fræðslunefnd - 105
Málsnúmer 2112004F
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar frá 8. desember staðfest með 9 atkvæðum.
5.1 Starfsáætlanir og skólanámskrár 2021-2022
5.2 Reglur um leikskóla
5.3 Sumarlokun leikskóla 2022
6.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 94
Málsnúmer 2111009F
Enginn tók til máls.
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 29. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.
6.1 Styrkur í sund og líkamsrækt fyrir ungt fólk með krabbamein
6.2 Innleiðing laga um farsæld barna í Fjarðabyggð
6.3 Reglur Fjarðabyggðar um frístundastyrk og úthlutun íþróttastyrkja2022
6.4 Reglur Fjarðabyggðar um frístundastyrk og úthlutun íþróttastyrkja2022
6.5 UÍA beiðni um styrk á árinu 2022
7.
Barnaverndarnefnd 2021
Málsnúmer 2101080
Enginn tók til máls.
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 134 frá 2. desember staðfest með 9 atkvæðum.
8.
Menningar- og nýsköpunarnefnd - 43
Málsnúmer 2112005F
Fundargerð tekin á dagskrá með afbrigðum.
Enginn tók til máls.
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 13. desember staðfest með 9 atkvæðum.
8.1 Styrkveitingar menningar- og nýsköpunarnefndar og hafnarstjórnar
8.2 Samantekt yfir verkefni Menningarstofu Fjarðabyggðar/Tónlistarmiðstöðvar 2021
8.3 Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 2022
8.4 Umsókn um styrk vegna fornleifarannsókna í Stöðvarfirði 2022
8.5 Umhverfis- og loftlagsstefna Fjb. 2020-2040 - innleiðing
8.6 Menningarstyrkir 2021
8.7 Erindisbréf starfshóps um framtíðarsýn Stríðsárasafns
8.8 Aðalfundur Héraðsskjalasafn Austfirðinga bs. 2021
9.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar - endurskoðun 2021, fyrri umræða
Málsnúmer 2110020
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingum á samþykkt sveitarfélagsins við fyrri umræðu.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar breytingum á samþykkt Fjarðabyggðar um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar.
Til máls tóku: Heimir Snær Gylfason, Einar Már Sigurðarson.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa samþykktinni til síðari umræðu í bæjarstjórn.
10.
Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2020-2040, síðari umræða
Málsnúmer 1810136
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir endurskoðuðu aðalskipulagi Fjarðabyggðar við síðari umræðu.
Vísað til síðari umræðu aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020 til 2040.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Ragnar Sigurðsson, Einar Már Sigurðarson, Eydís Ásbjörnsdóttir.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum aðalskipulag Fjarðabyggðar 2020-2040.
11.
Fjárhagsáætlun 2021 - viðauki 2
Málsnúmer 2112039
Bæjarstjóri mælti fyrir viðauka nr. 2
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar viðauka nr. 2 við fjárhagáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2021.
Viðauki 2 við fjárhagsáætlun ársins 2021 felur í sér breytingar á áætlunum vegna sölu eigna á Breiðdalsvík, í Neskaupstað, á Eskifirði, á Reyðarfirði og Stöðvarfirði, kaupum á hlutafé, framkvæmdum Fjarðabyggðahafna, framlags til Sköpunarmiðstöðvar, leiðrétting áætlunar félagsþjónustu, uppgjörs vatnstjóns, uppgjörs vegna hjúkrunarheimila, skiptingu potta til námstyrkja og símenntunar.

120 m.kr. lækkun eigna félagslegra íbúða vegna sölu eigna, söluhagnaður nemi um 154 m.kr. og skuldir lækki um 185 m.kr. Viðskiptastaða félagslegra íbúða hækkar um 110 m.kr. Viðskiptakröfur, sjóður og eigið fé aðalsjóðs breytist samsvarandi.

62,4 m.kr. er bætt við hlutabréfakaup í aðalsjóði vegna kaupa hluta í Bríet leigufélagi. Sjóður og eigið fé aðalssjóðs og samstæðu lækkar samsvarandi.

118 m.kr. er bætt við fjárfestingar Fjarðabyggðahafna vegna tilfærslu framkvæmda. Viðskiptastaða Fjarðabyggðahafna mun lækka sem nemur 118 m.kr. Viðskiptakröfur, sjóður og eigið fé aðalsjóðs breytist samsvarandi.

10 m.kr er bætt við framlög í menningarmálum vegna Sköpunarmiðstöðvar. Sjóður og eigið fé aðalsjóðs og samstæðu lækkar samsvarandi.

12 m.kr. verð bætt við launalið félagsþjónustu vegna leiðréttingar. Sjóður og eigið fé aðalsjóðs og samstæðu breytist samsvarandi.

109. m.kr. verði bætt við framlög félagsþjónustu vegna yfirtöku Heilbrigðisstofnunar á hjúkrunarheimilum. Sjóður og eigið fé aðalsjóðs og samstæðu breytist samsvarandi.

4,5 m.kr. verði bætt við óviss útgjöld í sameiginlegum kostnaði vegna uppgjörs vatnstjóns. Sjóður og eigið fé aðalsjóðs og samstæðu breytist samsvarandi.

2,7 m.kr. er úthluta af liðnum starfsmannakostnaður til deilda aðalsjóðs vegna námsstyrkja starfsmanna. Ráðstöfun hefur ekki áhrif á heildarniðurstöðu fjárhagsáætlunar.

3,7 m.kr. er úthluta af liðnum starfsmannakostnaður til deilda aðalsjóðs vegna endurmenntunar starfsmanna. Ráðstöfun hefur ekki áhrif á heildarniðurstöðu fjárhagsáætlunar.

Samandregnar breytingar eru að rekstrarniðurstaða í A hluta lækkar um 113 m.kr. Rekstrarniðurstaða í B hluta hækkar um 147 m.kr. Fjárfestingar í A hluta hækka um 62,4 m.kr. og í B hluta um 118 m.kr. Langtímaskuldir í B hluta lækka um 207 m.kr. Eigið fé einstakra stofnana og viðskiptareikningar þeirra við aðalsjóð breytast til samræmis. Sjóðsstaða í lok árs verður 39 m.kr.

Til máls tóku: Heimir Snær Gylfason, Jón Björn Hákonarson.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun ársins 2021.
12.
Lántaka á árinu 2021
Málsnúmer 2102119
Bæjarstjóri mælti fyrir lántöku.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögum um 100 milljóna. kr. lántöku hjá Íslandsbanka á óverðtryggðum kjörum til allt að 15 ára til samræmis við lántökuheimild í fjárhagsáætlun ársins 2021. Lagður fram lánasamningur/skuldabréf við Íslandsbanka að fjárhæð 100 milljónir króna. Skuldabréfið er óverðtryggt til 15 ára, með jöfnum afborgunum, 4,65% breytilegum vöxtum og er uppgreiðanlegt á lánstímanum.
Enginn tók til máls
Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum fyrirliggjandi skuldabréf við Íslandsbanka að höfuðstól kr. 100.000.000, til allt að 15 ára, í samræmi við skilmála skuldabréfsins sem liggur fyrir á fundinum og bæjarfulltrúar hafa kynnt sér. Lánið er með jöfnum afborgunum. óverðtryggt og á breytilegum vöxtum. Er lánið tekið til að fjármagna fjárfestingu ársins að hluta. Jafnframt er Jóni Birni Hákonarsyni bæjarstjóra Fjarðabyggðar kt. 270173-3149, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Fjarðabyggðar að undirrita lánssamning Íslandsbanka sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns. Ragnar Sigurðsson greiðir atkvæði gegn lántöku og Heimir Snær Gylfason situr hjá.
13.
Reglur um leikskóla
Málsnúmer 2110048
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir endurskoðuðum reglum.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar endurskoðuðum reglum um leikskóla.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 8 atkvæðum uppfærðar reglur um leikskóla.
14.
Reglur Fjarðabyggðar um frístundastyrk
Málsnúmer 2111076
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir reglum.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar reglum um íþrótta- og frístundastyrk Fjarðabyggðar til barna.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 8 atkvæðum reglur um íþrótta- og tómstundastyrk til barna.
15.
Reglur Fjarðabyggðar úthlutun íþróttastyrkja til félaga
Málsnúmer 2111076
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir úthlutunarreglum.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar uppfærðum úthlutunarreglum íþróttastyrkja Fjarðabyggðar til félaga.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 8 atkvæðum úthlutunarreglur íþróttastyrkja til félaga.
16.
Samþykkt um hunda- og kattahald - endurskoðun 2021, fyrri umræða
Málsnúmer 2110088
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingum á samþykkt við fyrri umræðu.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar breytingum á samþykkt um hunda- og kattahald og annað gæludýrahald. Umsögn frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands liggur fyrir.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 8 atkvæðum að vísa samþykktinni til síðari umræðu.
17.
Breyting á stofnsamningi Héraðsskjalasafns Austfirðinga, fyrri umræða
Málsnúmer 2111170
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir endurskoðuðum stofnsamningi við fyrri umræðu.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar breytingum á stofnsamningi Héraðsskjalasafns Austfirðinga en breytingar lúta aðallega á ályktunarhæfi stjórnar og aðalfundar ásamt skoðunarmönnum.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 8 atkvæðum að vísa stofnsamningi til síðari umræðu.
18.
Gjaldskrá fráveitu Fjarðabyggðar 2022
Málsnúmer 2109088
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingu á gjaldskrá um fráveitu.
Lögð er fram tillaga um breytingu á 1.gr. gjaldskrá fyrir fráveitu. Setningin verði eftirfarandi: "Álagningarstuðull fyrir fráveitugjald er 0,275% af húsmati fasteigna. Fráveitugjald er innheimt bæði af húsmati heimila og fyrirtækja. Fráveitugjald er innheimt með fasteignagjöldum." Niður falli núverandi texti greinarinnar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 8 atkvæðum breytingar á gjaldskrá fráveitu.
Tillaga forseta bæjarstjórnar um fundartíma bæjarstjórnar. 20. janúar 3. febrúar 17. febrúar 3. mars 31. mars 7. apríl 5. maí 19. maí