Fara í efni

Bæjarstjórn

338. fundur
14. september 2022 kl. 16:00 - 17:15
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir forseti bæjarstjórnar
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Kristinn Þór Jónasson aðalmaður
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir aðalmaður
Jóhanna Sigfúsdóttir aðalmaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir aðalmaður
Birgir Jónsson aðalmaður
Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri
Starfsmenn
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 764
Málsnúmer 2209012F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Stefán Þór Eysteinsson, Ragnar Sigurðsson, Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.
Fundargerð bæjarráðs frá 12. septemer 2022 er staðfest með 9 atkvæðum.
1.1 Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2023
1.2 Veikindalaun 2022
1.3 Svæðisskipulag Austurlands.
1.5 Tjaldsvæði 2022
1.6 Bréf innviðaráðuneytis
1.7 Umsókn um lóð Miðdalur 18-20
1.8 Umsókn um lóð Heiðarvegur 37b
1.9 Ráðningar í störf
1.10 Umhverfis- og skipulagsnefnd - 6
1.11 Félagsmálanefnd - 156
1.12 Hafnarstjórn - 283
1.13 Fræðslunefnd - 114
1.14 Stjórn menningarstofu og safnastofnunar - 2
2.
Bæjarráð - 763
Málsnúmer 2209002F
Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umfjöllunar og afgreiðslu.
Fundargerð bæjarráðs frá 6. september 2022 er staðfest með 9 atkvæðum.
2.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023 - 2026
2.2 Stytting vinnuvikunar hjá Slökkvilið Fjarðabyggðar
2.3 Samningur um undirbúningsvinnu vegna þróunarfélags - Trúnaðarmál
2.4 Björgunarhringir við vötn í Fjarðabyggð
2.5 Fjallskilasamþykkt SSA
2.6 Endurskoðun samnings um sjúkraflutninga í Fjarðabyggð
2.7 Yfirlýsing vegna kaupréttar
2.8 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2022
3.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 6
Málsnúmer 2209003F
Til máls tóku: Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Ragnar Sigurðsson, Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 6. september er staðfest með 9 atkvæðum.
3.1 Bakkavegur við tjalds - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
3.2 Daltún 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
3.3 Hafnarbraut 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
3.4 Hafnarbraut 38 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
3.5 Hrauntún 7-9 umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
3.6 740 Blómsturvellir 33 - Umsókn um stækkun lóðar
3.7 Neseyri breyting á DSK
3.8 735 - Deiliskipulag, Dalur athafnasvæði
3.9 Umsókn um lóð Miðdalur 18-20
3.10 Umsókn um lóð Heiðarvegur 730
3.11 Umsókn um stöðuleyfi
3.12 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Urðarteigur 7
3.13 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Bleiksárhlíð 47
3.14 Framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt
3.15 Æfingasvæði slökkviliðsins
3.16 Númeralausir bílar
3.17 Ósk um umsögn um strandsvæðisskipulag Austfjarða
3.18 Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs nýáætlun 2022
3.19 Erindi vegna bryggju og frárennslisrörs á Breiðdalsvík
4.
Fræðslunefnd - 114
Málsnúmer 2209007F
Til máls tók Birgir Jónsson.
Fundarðgerð fræðslunefndar frá 7. september 2022 er staðfest með 9 atkvæðum.
4.1 Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2023
4.2 Reglur 2022
4.3 Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2022
4.4 Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð
5.
Félagsmálanefnd - 156
Málsnúmer 2209001F
Til máls tók Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.
Fundargerð félagsmálanefndar frá 6. september er staðfest með 9 atkvæðum.
5.1 Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2023
5.2 Sprettur -samþætting þjónustu
5.3 Reglur 2022
5.4 Landsfundur um jafnréttismál sveitarfélaga 15. September 2022
5.5 Rekstraryfirlit 2022
6.
Hafnarstjórn - 283
Málsnúmer 2209006F
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð Hafnarstjórnar frá 6. september er staðfest með 9 atkvæðum.
6.1 Erindi til hafnarstjórnar vegna Breiðdalsvíkurhafnar
6.2 Erindi vegna bryggju og frárennslisrörs á Breiðdalsvík
6.3 Stormpolli á Mjóeyrarhöfn
6.4 Umsókn um styrk vegna viðhalds á bryggju í Viðfirði
6.5 Fóðurprammi sekkur við Gripalda
6.6 Ósk um umsögn um strandsvæðisskipulag Austfjarða
6.7 Ráðstefnan Lagarlíf
6.8 Sjávarútvegsskólinn á Austurlandi 2022
7.
Stjórn menningarstofu og safnastofnunar - 2
Málsnúmer 2209008F
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð stjórnar menningarstofu og safnastofnunar frá 7. september er staðfest með 9 atkvæðum.
7.1 Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 2023
7.2 Starfshópur um framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins
7.3 Nesskóli - Tónskóli - bókasafn viðhaldsverkefni
7.4 Konur, draumar og brauð
7.5 Söguritun í Fjarðabyggð
7.6 Drög að stefnu um verndun og rannsóknir á fornleifum og byggingararfi
7.7 Menningarverðlaun SSA - Óskað eftir tilnefningum 2022
7.8 Uppsetning sýningar um starfsemi
8.
Svæðisskipulag Austurlands
Málsnúmer 2102084
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir svæðisskipulagi.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu að Svæðisskipulagi Austurlands 2022-2044 og tilheyrandi umhverfismatsskýrsla, ásamt fundargerð svæðisskipulagsnefndar dags. 2.9.2022. Fundargerðinni fylgir minnisblað þar sem nefndin svarar athugasemdum sem bárust við svæðisskipulagstillögu og umhverfismatsskýrslu sem auglýstar voru skv. 24. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 15. gr. laga um umhverfismat áætlana og framkvæmda nr. 111/2021, þann 7.7.2022. Í fundargerðinni leggur svæðisskipulagsnefnd til að sveitarstjórnir á Austurlandi samþykki svæðisskipulagstillöguna með þeim lagfæringum sem lýst er í fylgiskjali fundargerðar og færðar hafa verið inn í svæðisskipulagstillögu og umhverfismatsskýrslu.
Til máls tóku: Birgir Jónsson, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir,
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir með 9 atkvæðum framlagða tillögu að Svæðisskipulagi Austurlands 2022-2044 og tilheyrandi umhverfismatsskýrslu, með vísan í 2. mgr. 25. gr. skipulagslaga og 16. gr. laga um umhverfismat áætlana. Jafnframt felur sveitarstjórn svæðiskipulagsnefnd að vinna málið áfram í samræmi við fyrirmæli 3. mgr. 25. gr. skipulagslaga.
9.
Samningur um sameiginlegt umdæmisráð barnaverndar á landsvísu
Málsnúmer 2209032
Bæjarstjóri mælti fyrir samningi.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar drögum að samningi um aðild Fjarðabyggðar að sameiginlegu umdæmisráði barnaverndar sveitarfélag utan höfuðborgarsvæðisins.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum aðild Fjarðabyggðar að sameiginlegu umdæmisráði barnaverndar sveitarfélaga utan höfuðborgarsvæðisins og samning þar að lútandi og felur bæjarstjóra undirritun samnings ásamt því að hefja undirbúningi að breytingum á samþykktum sveitarfélagsins vegna nýrra barnaverndarlaga.