Fara í efni

Bæjarstjórn

341. fundur
8. nóvember 2022 kl. 16:15 - 17:32
í Fræðslumolanum Austurbrú
Nefndarmenn
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir forseti bæjarstjórnar
Arndís Bára Pétursdóttir varamaður
Sigurjón Rúnarsson varamaður
Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm varamaður
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir aðalmaður
Jóhanna Sigfúsdóttir aðalmaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir aðalmaður
Birgir Jónsson aðalmaður
Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri
Starfsmenn
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023 og 2024 til 2026, fyrri umræða
Málsnúmer 2205271
Bæjarstjóri mælti fyrir fjárhagsáætlun.
Lögð fram til fyrri umræðu tillaga að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2023 ásamt þriggja ára fjárhagsáætlun fyrir árin 2024 til 2026.
Til máls tóku: Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, Jón Björn Hákonarson, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2023 og 3ja ára áætlun fyrir árin 2024 til 2026 til síðari umræðu í bæjarstjórn.
2.
Bæjarráð - 770
Málsnúmer 2210016F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir.
Fundargerð bæjarráðs frá 24. október staðfest með 9 atkævðum.
2.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023 - 2026
2.2 Rekstur málaflokka 2022 - TRÚNAÐARMÁL
2.3 Opinber heimsókn forsetahjónanna til Fjarðabyggðar 2022
2.4 Aðalfundur Heilbrigðiseftilits Austurlands
2.5 Íþrótta- og tómstundanefnd - 107
3.
Bæjarráð - 771
Málsnúmer 2210020F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 31. október staðfest með 9 atkvæðum.
3.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023 - 2026
3.2 Aðalfundur Héraðsskjalasafn Austfirðinga bs. 2021 - staðfesting stofnsamnings
3.3 Persónuverndarfulltrúi Fjarðabyggðar
3.4 Greiðsla stofnframlaga vegna Hafnarbraut Neskaupstað
3.5 Kaupsamningur um Búðarmel 6a-e f.h. óstofnaðs hses félags
3.6 Gjaldskrá slökkviliðs 2023
3.7 Gjaldskrá fasteignagjalda 2023
3.8 Gjaldskrá frístundaheimila 2023
3.9 Gjaldskrá leikskóla 2023
3.10 Gjaldskrá tónlistarskóla Fjarðabyggðar 2023
3.11 Gjaldskrá húsnæðis Grunnskóla 2023
3.12 Gjaldskrá bókasafna 2023
3.13 Gjaldskrá safna í Fjarðabyggð 2024
3.14 Gjaldskrá félagsheimila
3.15 Gjaldskrá vatnsveitu Fjarðabyggðar 2023
3.16 Gjaldskrá hitaveitu Fjarðabyggðar 2023
3.17 Gjaldskrá fjarvarmaveitu 2023
3.18 Gjaldskrá fráveitu 2023
3.19 Gjaldskrá gatnagerðargjalda 2023
3.20 Gjaldskrá hunda og kattahald 2023
3.21 Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2023
3.22 Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 2023
3.23 Gjaldskrá íþróttahúsa 2023
3.24 Gjaldskrá íþróttahúsa - stórviðburðir 2023
3.25 Gjaldskrá sundlauga 2023
3.26 Gjaldskrá líkamsræktarstöðva 2023
3.27 Gjaldskrá skíðasvæðis 2023
3.28 Útsvar 2023
3.29 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2022
3.30 Umhverfis- og skipulagsnefnd - 10
3.31 Fræðslunefnd - 117
3.32 Hafnarstjórn - 286
4.
Fræðslunefnd - 117
Málsnúmer 2210019F
Til máls tóku: Birgir Jónsson, Jóhanna Sigfúsdóttir, Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð fræðslunefndar frá 26. október staðfest með 9 atkvæðum.
4.1 Starfsáætlanir og skólanámskrár 2022-2023
4.2 Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2023
4.3 Ytra mat leikskóla 2023
4.4 Skólamáltíðir grunnskóla
5.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 10
Málsnúmer 2210011F
Fundargerðir umhverfis- og skipulagsnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Sigurjón Rúnarsson, Jón Björn Hákonarson, Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 25. október staðfest með 9 atkvæðum.
5.1 Deiliskipulag Skíðasvæðisins í Oddsskarði
5.2 Breytingar á deiliskipulagi Mjóeyrarhafnar
5.3 Strandgata 14 - 740 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
5.4 Stekkjarholt 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
5.5 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Selnes 42
5.6 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sólheimar 12
5.7 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Melagata 14
5.8 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sólvellir 4
5.9 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hátún 16
5.10 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sæberg 4
5.11 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sólheimar 6
5.12 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sæberg 13
5.13 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Strandgata 6 ESK
5.14 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Strandgata 8 ESK
5.15 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sólheimar 8
5.16 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sólheimar 2
5.17 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamning Sólbakka 2
5.18 Umsókn um lóð Strandgata 28 Nesk
5.19 Umsókn um lóð Strandgata 12 Nesk
5.20 Umsókn um stöðuleyfi
5.21 Umsókn um stöðuleyfi
5.22 Beiðni um framkvæmdir
5.23 Áætlun um loftgæði 2022-2033 - Drög til haghafa
5.24 Uppfæra umferðarsamþykkt Lambeyrarbraut
5.25 Gjaldskrá gatnagerðargjalda 2023
5.26 Skýrsla um starfsemi Ofanflóðanefndar 20018 - 2021
5.27 Beiðni um umsögn vegna umsóknar Laxa Fiskeldis ehf. um breytingar á eldisfyrirkomulagi í Reyðarfirði
5.28 Ný staðsetning gámasvæða
5.29 Stöðvun óleyfisframkvæmdar
5.30 Umsókn um framkvæmdarleyfi
5.31 Ljósmyndasýning Ægisgötu 6
5.32 Páskahellir fyrirspurn
5.33 Hraðahindrun Bakkagerði
5.34 Boð um þátttöku í samráði Þjóðgarðar og önnur friðlýst svæði - lykilþættir
6.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 11
Málsnúmer 2210021F
Fundargerðir umhverfis- og skipulagsnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndara frá 7. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.
6.1 Hafnarbraut 38 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
6.2 Strandgata 68 - 735 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
6.3 Hraun 1 - Umsókn um byggingarleyfi, 315 varaaflsbygging
6.4 Hrauntún 7-9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
6.5 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hátún 11
6.6 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sæberg 12
6.7 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Strandgata 14
6.8 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hlíðargata 18
6.9 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sólvellir 2
6.10 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Austurvegur 1
6.11 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sólvellir 6
6.12 Nýting á lóðinni Ægisgötu 6 - 730 til sýninga
6.13 Nytjamarkaður, Fjb.
6.14 Ormahreinsun 2022
6.15 Boð um þátttöku í samráði Þjóðgarðar og önnur friðlýst svæði - lykilþættir
6.16 Umsókn um lóð Strandgata 28 Nesk
6.17 Breytingar á deiliskipulagi Mjóeyrarhafnar
7.
Hafnarstjórn - 286
Málsnúmer 2210018F
Fundargerðir hafnarstjórnar lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 24. október staðfest með 9 atkvæðum.
7.1 Til umsagnar 9. mál frá nefndasviði Alþingis
7.2 Beiðni um umsögn vegna umsóknar Laxa Fiskeldis ehf. um breytingar á eldisfyrirkomulagi í Reyðarfirði
7.3 Sjóvarnir við Egilsbraut 26, Neskaupstað
7.4 Umsókn um undanþágu frá hafnsöguskyldu - Samskip Hoffell
7.5 Reglur um undanþágu frá hafnsöguskyldu í Fjarðabyggðarhöfnum
8.
Hafnarstjórn - 287
Málsnúmer 2211003F
Fundargerðir hafnarstjórnar lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 7. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.
8.1 Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2023
8.2 Breytingar á deiliskipulagi Mjóeyrarhafnar
8.3 Stækkun Mjóeyrarhafnar - annar áfangi, umhverfismat
8.4 Sjóvarnir við Egilsbraut 26, Neskaupstað
8.5 Óhirt og munaðarlaus veiðarfæri
8.6 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2022
8.7 Hafnasambandsþing 2022
9.
Útsvar 2023
Málsnúmer 2210206
Bæjarstjóri mælti fyrir álagningu útsvars.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögum um að álagningarhlutfall útsvars árið 2023 verði hámarksútsvar, þ.e. 14,52% af útsvarsstofni í Fjarðabyggð. Tillaga þessi er í samræmi við 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum að álagningarhlutfall útsvars árið 2023 verði hámarksútsvar 14,52% af útsvarsstofni í Fjarðabyggð.
10.
Gjaldskrá fasteignagjalda 2023
Málsnúmer 2210053
Bæjarstjóri mælti fyrir reglum um afslætti og gjaldskrá fasteignagjalda árið 2023.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar gjaldskrá fasteignagjalda 2023 ásamt reglum um afslátt fyrir elli- og örorkulífeyrisþega fyrir árið 2023. Gjaldskráin og reglurnar taka gildi þann 1. janúar 2023.
Fasteignaskattur A verði 0,424 % af húsmati og lóðarhlutamati
Fasteignaskattur B verði 1,320 % af húsmati og lóðarhlutamati
Fasteignaskattur C verði 1,650 % af húsmati og lóðarhlutamati
Lóðarleiga íbúðarhúsnæðis verði 0,70 % af lóðarhlutamati.
Lóðarleiga atvinnuhúsnæðis verði 3,00 % af lóðarhlutamati.
Vatnsgjald skv. gjaldskrá 5.500 kr. á veitu og 415 kr. pr. fermetra húsnæðis.
Fráveitugjald skv. gjaldskrá 0,275 % af húsmati.
Sorphreinsunargjald skv. gjaldskrá 33.446 kr. á heimili.
Sorpeyðingargjald skv. gjaldskrá 23.000 kr. á heimili.
Fjöldi gjalddaga verði tíu, mánaðarlega frá 1. febrúar. Eindagi fasteignagjalda er síðasti virki dagur gjalddagamánaðar.
Afsláttur til eldri borgara og örorkulífeyrisþega er framreiknaður frá fyrra ári m.v. breytingar á launavísitölu og meðalbreytingu fasteignamats íbúðarhúsnæðis.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum álagningarstuðla fasteignagjalda í gjaldskrá fasteignagjalda 2023 og reglur um afslátt til eldri borgara og örorkulífeyrisþega 2023.
11.
Breytingar á deiliskipulagi Mjóeyrarhafnar
Málsnúmer 2010159
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir auglýsingu deiliskipulags.
Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu um að deiliskipulag Mjóeyrarhafnar verði auglýst sbr. 41. gr. skipulagslaga.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum að auglýsa deiliskipulagið Mjóeyrarhöfn sbr. 41. gr. skipulagslaga.