Fara í efni

Bæjarstjórn

365. fundur
14. desember 2023 kl. 16:00 - 16:40
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Birgir Jónsson aðalmaður
Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar
Þuríður Lillý Sigurðardóttir aðalmaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir 1. varaforseti bæjarstjórnar
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Kristinn Þór Jónasson aðalmaður
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir aðalmaður
Benedikt Jónsson varamaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Þórður Vilberg Guðmundsson forstöðumaður stjórnsýslu- og upplýsingamála
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 825
Málsnúmer 2311026F
Fundargerðir bæjarráðs nr. 825 og 826 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

Til máls tók: Stefán Þór Eysteinsson

Fundargerð 825. fundar bæjarráðs frá 4. desember er staðfest með 9 atkvæðum
1.1 Tjaldsvæði 2022
1.2 Viljayfirlýsing HÍ og Hallormsstaðaskóla um uppbyggingu Háskólanáms
1.3 Íbúafundir í janúar 2024
1.4 Frágangur á Haga
1.5 Breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga - í samráðsgátt
1.6 Til umsagnar 509. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
1.7 Til umsagnar 82. mál "Uppbygging Suðurfjarðarvegar".
1.8 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023
1.9 Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2023
1.10 Fundargerðir stjórnar Austurbrúar
1.11 Fundargerðir stjórnar SSA
2.
Bæjarráð - 826
Málsnúmer 2312007F
Fundargerðir bæjarráðs nr. 825 og 826 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

Til máls tók:Stefán Þór Eysteinsson

Fundargerð 826. fundar bæjarráðs frá 11. desember er staðfest með 9 atkvæðum
2.1 Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar - breytingar 2022 og 2023
2.2 Erindisbréf fjölskyldunefndar
2.3 Erindisbréf skipulags- og framkvæmdanefndar
2.4 Umsókn um lán frá Ofanflóðasjóði 2023
2.5 Málefni fjölskyldusviðs
2.6 Starfshópur fræðslumála 2023
2.7 Málefni framkvæmda- og umhverfissviðs 2023
2.8 Úthlutun byggðakvóta 2023 og 2024
2.9 Íbúafundir í janúar 2024
2.10 Endurnýjun á samningi um Náttúrustofu Austurlands 2023
2.11 Erindi vegna gjaldfrjálsra afnota af eldhúsi grunnskólans á Stöðvarfirði
2.12 Aðgerðerðaáætlun í kjölfar haustþings SSA
2.13 Frumvarp til laga um lagareldi
2.14 Sjávarútvegsstefna og frumvarp til laga um sjávarútveg
2.15 Samningur við Orkusöluna fyrir skerðanlegt rafmagn
2.16 Starfshópur um skipulagsmál vegna ofanflóðavarna
2.17 Erindi frá forstöðumönnum bókasafna í Fjarðabyggð - desember 2023
2.18 Jafnlaunastefna endurskoðun
2.19 Umsókn um lóð Bakkagerði 11
2.20 Umsókn um lóð Strandgata 12 Nesk
2.21 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023
2.22 Jólasjóður 2023
2.23 Umhverfis- og skipulagsnefnd - 40
2.24 Hafnarstjórn - 305
2.25 Fjallskilanefnd - 5
3.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 40
Málsnúmer 2311024F
Fundargerð 40. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar lögð fram til staðfestingar

Engin tók til máls.

Fundargerð 40. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 5. desember er samþykkt með 9 atkvæðum
3.1 Beiðni um uppsetningu hraðhleðslustöðva
3.2 Umsókn um lóð Bakkagerði 11
3.3 Umsókn um lóð Strandgata 12 Nesk
3.4 Umsókn um lóð Nesgata 34
3.5 Umsókn um lóð Hlíðargata 7-9, Fásk
3.6 Framkvæmdaleyfi bryggja við minningarreit SVN í Neskaupstað
3.7 Stækkun lóða við Hjallaleiru
3.8 Uppbygging Suðurfjarðarvegar.
3.9 Kostnaður og tekjur sveitarfélaga af úrgangsmálum
3.10 Fjallskilanefnd - 5
3.11 Sólbakki 2 lokun götu og byggingareitir bílskúrar
4.
Fjallskilanefnd - 5
Málsnúmer 2311005F
Fundargerð 5. fundar fjallskilanefndar lögð fram til staðfestingar

Engin tók til máls.

Fundargerð 5. fundar fjallskilanefndar frá 23. nóvember er samþykkt með 9 atkvæðum
4.1 Erindi til sveitarfélaga frá Bændasamtökum Íslands lausagangaágangur búfjár
4.2 Fjallskil og gangnaboð 2023
4.3 Styrkur til garnaveikiólusetningar í Fjarðabyggð
4.4 Úrgangsmál, dýrahræ og alm. úrgangur í dreifbýli
4.5 Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði
5.
Hafnarstjórn - 305
Málsnúmer 2312002F
Fundargerð 305. fundar hafnarstjórnar lögð fram til staðfestingar

Engin tók til máls.

Fundargerð 305. fundar hafnarstjórnar frá 4. desember er samþykkt með 9 atkvæðum
5.1 Rex NS 3 endurgerð og ástandsmat
5.2 Beiðni um nýja flotbryggju
5.3 Framkvæmdaleyfi fyrir lagningu rafstrengs í jörð
5.4 Sérstakt strandveiðigjald til hafna 2023
5.5 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2023
6.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar - breytingar 2022 og 2023
Málsnúmer 2205294
Forseti mælti fyrir tillögu að breytingum á samþykktum um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar við fyrri umræðu.

Vísað frá bæjarráði til fyrri umræðu í bæjarstjórn tillögu Framsóknarflokks og Fjarðalista að breytingum á 62. gr. samþykktar, auk viðauka, um stjórn og fundarsköp Fjarðabyggðar nr. 252/2022 með síðari breytingum. Um er að ræða breytingar sem fela í sér að núverandi umhverfis- og skipulagsnefnd og mannvirkja- og veitunefnd verði sameinaðar undir heitinu Skipulags- og framkvæmdanefnd. Mun sú breyting taka gildi við síðari umræðu og að fenginni staðfestingu innviðaráðuneytisins á samþykktum sveitarfélagisns vegna þessa. Þá verði fræðslunefnd, félagsmálanefnd og íþrótta- og tómstundanefnd sameinaðar í eina Fjölskyldunefnd og taki sú breyting gildi 1. maí 2024. Báðar þessar nefndir verða, eftir breytinguna skipaðar 7 aðalfulltrúum og 7 til vara. Þá verði stjórn menningarstofu- og safnastofnunar breytt í stjórn Menningarstofu og verði sú stjórn skipu þremur fulltrúum og þrem til vara.

Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Ragnar Sigurðsson, Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Stefán Þór Eysteinsson og Birgir Jónsson,

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir með 9 atkvæðum að vísa tillögu að breytingum á samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar til síðari umræðu.
7.
Erindisbréf fjölskyldunefndar
Málsnúmer 2312054
Forseti mælti fyrir erindisbréfi fjölskyldunefndar við fyrri umræðu.

Vísað frá bæjarráði til fyrri umræðu í bæjarstjórn drögum að erindsbréfi nýrrar fjölskyldunefndar.

Engin tók til máls.

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir með 9 atkvæðum að vísa erindsbréfinu til síðari umræðu í bæjarstjórn
8.
Erindisbréf skipulags- og framkvæmdanefndar
Málsnúmer 2312053
Forseti mælti fyrir erindsbréfi að skipulags- og framkvæmdanefndar við fyrri umræðu

Vísað frá bæjarráði til fyrri umræðu í bæjarstjórn drögum að erindsbréfi nýrrar skipulags- og framkvæmdanefndar.

Engin tók til máls.

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir með 9 atkvæðum að vísa erindsbréfinu til síðari umræðu í bæjarstjórn
9.
Umsókn um lán frá Ofanflóðasjóði 2023
Málsnúmer 2311139
Bæjarstjóri mælti fyrir lántökunni.

Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar lántöku að fjárhæð 27.687.000 kr. hjá Ofanflóðasjóði vegna hlutdeildar Fjarðabyggðar í framkvæmdum við ofanflóðavarnir á árinu.

Enginn tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum lántöku hjá Ofanflóðasjóði að fjárhæð 27.687.000 kr. og felur bæjarstjóra undirritun skuldabréfsins og frágang lánaskjala.
10.
Jafnlaunastefna endurskoðuð
Málsnúmer 2102122
Forseti mælti fyrir endurskoðaðri jafnlaunastefnu Fjarðabyggðar við fyrri umræðu.

Vísað frá bæjarráði til fyrri umræðu í bæjarstjórn drögum að endurskoðaðri jafnlaunastefnu Fjarðabyggðar. Í drögunum er gert ráð fyrir að gera breytingar á jafnlaunastefnu til einföldunnar hennar. Þá eru ábyrgðarsvið vegna framfylgdar hennar skýrð betur og orðalag einfaldað og gert markvissara.

Til máls tók: Birgir Jónsson

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir með 9 atkvæðum að vísa endurskoðaðri jafnalaunastefnu til síðari umræðu.
11.
Fundaáætlun bæjarstjórnar
Málsnúmer 2210125
Forseti mælti fyrir tillögu að fundaáætlun bæjarstjórnar Fjarðabyggðar fyrir fyrri hluta árs 2024.

Fundardagar bæjarstjórnar verða sem hér segir:

11. janúar - fundur með ungmennaráði
25. janúar
1. febrúar
15. febrúar
7. mars
21. mars
11. apríl - fyrri umræða um ársreikning
2. maí - síðari umræða um ársreikning
16. maí - kjörskrá fyrir forsetakosningar tekin fyrir
6.júní
20.júní

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar staðfestir með 9 atkvæðum fundaáætlun bæjarstjórnar.