Fara í efni

Bæjarstjórn

367. fundur
11. janúar 2024 kl. 16:00 - 18:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar
Birgir Jónsson aðalmaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir aðalmaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir 1. varaforseti bæjarstjórnar
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Kristinn Þór Jónasson aðalmaður
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir aðalmaður
Jóhanna Sigfúsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 827
Málsnúmer 2312012F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson, Ragnar Sigurðsson, Birgir Jónsson, Jón Björn Hákonarson Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.
Fundargerð bæjarráðs frá 18. desember utan liðar 10 staðfest með 9 atkvæðum.
1.1 Útsvar 2024
1.2 Útboð almenningssamgangna í Fjarðabyggð 2024-2027
1.3 Starfshópur fræðslumála 2023
1.4 Aðafundur Héraðsskjalasafns Austurlands 2023
1.5 Forvarnateymi Fjarðabyggðar 2023-2024
1.6 Reglur um stuðningsþjónustu - uppfærsla 2023
1.7 Gjaldskrá leikskóla 2024
1.8 Fiskeldissjóður - umsóknir 2023
1.9 Sjávarútvegsstefna og frumvarp til laga um sjávarútveg
1.10 Frumvarp til laga um lagareldi
1.11 Ísland ljóstengt 2022 ljósleiðaralagning Fáskrúðsfjörður - norður
1.12 Erindi frá Íbúasamtökum Stöðvarfjarðar - desmber 2023
1.13 3.Stjórnarfundur Náttúrustofu Austurlands
1.14 Endurnýjun á samningi um Náttúrustofu Austurlands 2023
1.15 Auka aðalfundur Leigufélagsins Bríetar 2023
1.16 Fræðslunefnd - 134
1.17 Félagsmálanefnd - 174
1.18 Íþrótta- og tómstundanefnd - 128
2.
Bæjarráð - 828
Málsnúmer 2401004F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 8. janúar utan liðar 12 staðfest með 9 atkvæðum.
2.1 Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL
2.2 Útboð almenningssamgangna í Fjarðabyggð 2024-2027
2.3 Húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2024
2.4 Skerðing á rafmagni til fjarvarmaveitna
2.5 Framlög í þágu farsældar barna
2.6 Íbúafundir í janúar 2024
2.7 Erindi varðandi nýja opnunartíma móttökustöðva
2.8 Erindi frá íbúasamtökum Fáskrúðsfjarðar vegna sundlaugar
2.9 Erindi til sveitarstjórnar
2.10 Forvarnateymi Fjarðabyggðar 2023-2024
2.11 Sjávarútvegsstefna og frumvarp til laga um sjávarútveg
2.12 Frumvarp til laga um lagareldi
2.13 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023
2.14 Aðafundur Héraðsskjalasafns Austurlands 2023
2.15 Hafnarstjórn - 306
3.
Fræðslunefnd - 134
Málsnúmer 2312005F
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar frá 12. desember staðfest með 9 atkvæðum.
3.1 Gjaldfrjálsar skólamáltíðir og umgjörð þeirra.
3.2 Rekstrarkostnaður leikskóla 2022
3.3 Sumarlokun leikskóla 2024
3.4 Rekstrarkostnaður grunnskólanna 2022
3.5 9 mánaða rekstraryfirlit 04
3.6 Erindi frá forstöðumönnum bókasafna í Fjarðabyggð - desember 2023
3.7 Forvarnateymi Fjarðabyggðar 2023-2024
3.8 Forvarnateymi Fjarðabyggðar 2023-2024
3.9 Fundaáætlun fræðslunefndar vor 2024
3.10 Skýrsla stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu
4.
Félagsmálanefnd - 174
Málsnúmer 2312008F
Enginn tók til máls.
Fundargerð félagsmálanefndar frá 13. desember staðfest með 9 atkvæðum.
4.1 Íslenska æskulýðsrannsóknin 2023
4.2 Forvarnateymi Fjarðabyggðar 2023-2024
4.3 Forvarnateymi Fjarðabyggðar 2023-2024
4.4 Reglur um stuðningsþjónustu - uppfærsla 2023
4.5 9 mánaða rekstraryfirlit 02
4.7 Skýrsla stjórnenda - félagsmálanefnd
5.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 128
Málsnúmer 2312004F
Enginn tók til máls.
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 11. desember staðfest með 9 atkvæðum.
5.1 Samstarf Fjarðabyggðar við Eyrina Heilsurækt
5.2 Forvarnateymi Fjarðabyggðar 2023-2024
5.3 Forvarnateymi Fjarðabyggðar 2023-2024
5.4 Fundaáætlun íþrótta- og tómstundanefndar vor 2024
5.5 Níu mánaða rekstraryfirlit íþrótta- og tómstundadeildar 2023
5.6 Íþróttamanneskja Fjarðabyggðar 2023
5.7 Breyting á helgaropnun yfir vetrartímabil sundlaug Eskifjarðar og Norðfjarðar
6.
Hafnarstjórn - 306
Málsnúmer 2312014F
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 18. desember staðfest með 9 atkvæðum.
6.1 Rekstur Fjarðabyggðarhafna
6.2 Skemmtiferðaskip fundur um tekjur 2023
6.3 Úthlutun byggðakvóta 2023 og 2024
6.4 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2023
7.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar - síðari umræða
Málsnúmer 2205294
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytinum á samþykkt Fjarðabyggðar við síðari umræðu.
Vísað til síðari umræðu breytingum á 62. gr. og viðaukum samþykktar um stjórn- og fundarsköp bæjarstjórnar Fjarðabyggðar. Breytingar frá fyrri umræðu felast í að skipt er upp breytingum sem boðaðar hafa verið á nefndaskipan. Breytingar vegna skipulags- og framkvæmdanefndar ásamt stjórn menningarstofu eru lagðar fram til staðfestingar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum uppfærðar breytingar á samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar Fjarðabyggðar.
8.
Erindisbréf skipulags- og framkvæmdanefndar - síðari umræða
Málsnúmer 2312053
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir nýju erindisbréfi við síðari umræðu.
Vísað til síðari umræðu staðfestingu erindisbréfs skipulags- og framkvæmdanefndar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum erindisbréf skipulags- og framkvæmdanefndar. Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að erindisbréf umhverfis- og skipulagsnefndar og mannvirkja- og veitunefndar falli úr gildi.
9.
Erindisbréf stjórnar menningarstofu - fyrri umræða
Málsnúmer 2205296
Forseti bæjarstjórnar mælti við fyrri umræðu fyrir breytingum á erindisbréfi.
Framlagt endurskoðað erindisbréf fyrir stjórn menningarstofu með vísan til breytinga sem bæjarstjórn samþykkti þann 30. nóvember og 14. desember á heiti, hlutverki og skipan nefndarinnar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa erindisbréfi stjórnar menningarstofu til síðari umræðu í bæjarstjórn.
10.
Erindisbréf fræðslunefndar - fyrri umræða
Málsnúmer 1805117
Forseti bæjarstjórnar mælti við fyrri umræðu fyrir breytingum á erindisbréfi.
Framlagt endurskoðað erindisbréf fyrir fræðslunefnd vegna breytinga sem gerðar voru á stjórnkerfi Fjarðabyggðar 30. nóvember sl. þar sem hlutverk bókasafna var fært til fræðslunefndar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa breytingum á erindisbréfi fræðslunefndar til síðari umræðu í bæjarstjórn.
11.
Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026
Málsnúmer 2205172
Kosning fulltrúa í nýja skipulags- og framkvæmdanefnd.
Tilnefnd eru sem aðalfulltrúar í skipulags- og framkvæmdanefnd. Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður (B), Stefán Þór Eysteinsson varaformaður (L), Jón Björn Hákonarson (B), Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir (L),
Kristinn Þór Jónasson (D), Heimir Snær Gylfason (D), Þórdís Mjöll Benediktsdóttir (D)
Tilnefnd eru sem varafulltrúar í skipulags- og framkvæmdanefnd. Elís Pétur Elísson (B),Pálína Margeirsdóttir (B), Birkir Guðjónsson (L), Esther Ösp Gunnarsdóttir (L), Ingunn Eir Andrésdóttir (D), Bryngeir Margeirsson (D), Benedikt Jónsson (D).
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 9 atkvæðum kosningu fulltrúanna.
12.
Jafnlaunastefna endurskoðuð
Málsnúmer 2102122
Forseti mælti fyrir staðfestingu jafnlaunastefnu Fjarðabyggðar við síðari umræðu.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar staðfestir með 9 atkvæðum endurskoðaða jafnalaunastefnu.
13.
Kosning bæjarráðs kjörtímabilið 2022 - 2026
Málsnúmer 2205293
Forseti bæjarstjórnar lagði fram tillögu að breytingu á skipan bæjarráðs Fjarðabyggðar. Lagt er til að Jón Björn Hákonarson taka sæti sem aðalmaður í bæjarráð í stað Þuríðar Lillý Sigurðardóttur.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum tillögu forseta bæjarstjórnar.
Forseti bæjarstjórnar lýsti yfir vilja bæjarstjórnar Fjarðbyggðar til að endurskoða gjaldskrár ársins 2024 ef til þjóðarsáttar kemur við gerð kjarasamningagerð. Að afloknum hefbundnum fundi bæjarstjórnar hófst sameiginlegur fundur bæjarstjórnar og ungmennaráðs.