Fara í efni

Bæjarstjórn

376. fundur
2. maí 2024 kl. 16:00 - 17:55
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar
Birgir Jónsson aðalmaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir aðalmaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir 2. varaforseti bæjarstjórnar
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Kristinn Þór Jónasson aðalmaður
Heimir Snær Gylfason varamaður
Benedikt Jónsson varamaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Haraldur Líndal Haraldsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Ársreikningur Fjarðabyggðar árið 2023
Málsnúmer 2403162
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir ársreikningi.
Vísað til síðar umræðu bæjarstjórnar ársreikningi Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2023.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson og Stefán Þór Eysteinsson.

Bókun Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins við seinni umræðu um ársreikning Fjarðabyggðar og stofnana 2023.
Ársreikningur Fjarðabyggðar árið 2023 endurspeglar hvorutveggja, fjárhagslegan styrkleika sveitarfélagsins en um leið þungan rekstur A-hluta sveitarsjóðs. Áskoranir Fjarðabyggðar, eins og annara sveitarfélaga speglast í hárri verðbólgu, vaxtabyrgði og auknum lífeyrisskuldbindingum. Rekstrarniðurstaða A-hlutans er neikvæð um 100 m.kr. en gert var ráð fyrir 20.m.kr neikvæðri niðurstöðu. Það er áhyggjuefni að A-hlutinn nái ekki, þrátt fyrir tekjuaukningu, endum saman og þarf það að vera markmið áfram að bæta rekstur sveitarfélagsins með hagræðingu að leiðarljósi um leið og staðinn verður vörður um þjónustu þess við íbúa.
Þrátt fyrir þungan rekstur A-hlutans eru jákvæð teikn til staðar ef horft er til heildarniðurstöðu ársreikningsins en rekstur samstæðunnar var jákvæður um 400 m.kr. sem er talsverð aukning á milli ára. Það sýnir mátt samfélagsins og sterka stöðu til framtíðar að niðurstaðan sé jákvæð þrátt fyrir háar afborganir lána og aukinna lífeyrisskuldbindinga.
Áfram er því mikilvægt að lögð sé áhersla á að rekstur Fjarðabyggðar haldi sig innan útgefinna fjárhagsramma. Þá er það ljóst að tekjustofnar sveitarfélaga haldast ekki í hendur við aukna þjónustu (sem þau sinna) við íbúa sína og mikilvægt að leiða þau mál til lykta með ríkisvaldinu hið fyrsta til að tryggja sjálfbæran rekstur sveitarfélaga til framtíðar.

Bókun Fjarðalistans við seinni umræðu um ársreikning Fjarðabyggðar og stofnana 2023.
Jafnt og síðustu ár voru háir vextir og há verðbólga að mörgu leyti einkennandi fyrir árið 2023 og hafði það áhrif á heimili landsins sem og sveitarfélög þess. Þrátt fyrir fyrirliggjandi ástæður í efnahagsumhverfinu var rekstrarniðurstaða í samstæðu Fjarðabyggðar jákvæð um 409 milljón kr. Neikvæð niðurstaða á rekstrarreikningi í A-hluta skýrist að miklu leyti af reiknuðum stærðum svo sem lífeyrisskuldbindingu og vaxtakostnaði sökum hárri verðbólgu.
Áfram var fjárfest í mikilvægum innviðum og á sama tíma jókst veltufé frá rekstri umtalsvert bæði í samstæðu Fjarðabyggðar sem og í A-hluta, skuldahlutfall og skuldaviðmið sveitarfélagsins lækkar en heildarskuldir Fjarðabyggðar lækkuðu að raunvirði um 630 millj.kr. á milli ára og á sama tíma hækkar framlegð. Einnig má nefna að hlutfallslegur launakostnaður af tekjum sveitarfélagsins hefur farið lækkandi síðustu ár og sömuleiðis fækkaði stöðugildum á milli ára. Það er ljóst að rekstur sveitarfélagsins verður áfram krefjandi en ársreikningur ársins 2023 er þó til marks um að vel hafi tekist þrátt fyrir krefjandi umhverfi.

Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum ársreikning Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2023 og áritar hann.
2.
Bæjarráð - 843
Málsnúmer 2404013F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Jón Björn Hákonarson, Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.
Fundargerð bæjarráðs frá 15. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
2.1 Rekstur málaflokka 2024
2.2 Tilboð í tjaldstæði Fjarðabyggðar
2.3 Umsókn um stofnframlög á árinu 2024
2.4 Ársfundur Lífeyrissjóðs Stapa 2.maí 2024
2.5 Beiðni um uppsetningu hraðhleðslustöðva
2.6 Málefni Auturbrúar - Eyglóarverkefni
2.7 Samtal um nátturustofu
2.8 Aðstoðuleysi í Oddskarði
2.9 Skólafrístund
2.10 Verkefnið Sterkur Stöðvarfjörður
2.11 Þjóðlendumál kröfur óbyggðanefndar eyjar og sker
2.12 Fjölskyldunefnd - 2
2.13 Stjórn menningarstofu - 3
3.
Bæjarráð - 844
Málsnúmer 2404019F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 22. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
3.1 Samningur Norðfjarðarflugvöll - árleg yfirferð
3.2 Úrsögn úr undirkjörstjórn á Reyðarfirði
3.3 Landsmót Harmonikkuunnenda sumar 2025
3.4 Uppbygging hleðsluinnviða í Fjarðabyggð
3.5 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Brekkugerði 18
3.6 Breiðablik þjónustuíbúðir aldraðra - ástand húsnæðis
3.7 Slökkvilið Fjarðabyggðar - málefni
3.8 Aðalfundur Sparisjóðs Austurlands hf. 2024
3.9 Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 2024
3.10 Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður
3.11 Hringferð Neytandasamtakanna
3.12 Umsögn stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga um vindorkuskýrsluna
3.13 Stjórnsýslukæra
3.14 Til umsagnar 900.mál
3.15 Til umsagnar 899.mál
3.16 Fundargerðir Austurbrúar og SSA
3.17 Fundargerðir Austurbrúar og SSA
3.18 Fjölskyldunefnd - 3
3.19 Skipulags- og framkvæmdanefnd - 7
3.20 Starfshópur um nýtingu mannvirkja í rekstri Fjarðabyggðar - 1
4.
Bæjarráð - 845
Málsnúmer 2404027F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 29. apríl utan liðar 4 staðfest með 9 atkvæðum.
4.1 Tilkynning og kvörtun vegna fyrirhugaðra skipulagsbreytinga á skólastarfi
4.2 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2025
4.3 Fiskeldissjóður - umsóknir 2024
4.4 Kennslutímamagn grunnskóla Fjarðabyggðar 2024-2025
4.5 Vallavinnusamningur 2023-2025
4.6 Forsetakosningar 1. júní 2024
4.7 Reglur Fjarðabyggðar um þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk
4.8 Breyting á samþykkt um fiðurfé
4.9 Drög að breytingum á reglum um stöðuleyfi lausafjármuna
4.10 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Skólavegur 56
4.11 Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026
4.12 Landshlutafundur
4.13 Formleg boðun aðalfundar SSA fimmtudaginn 23. maí
4.14 Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2024
4.15 Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2024
4.16 Æðavarp í landi Fjarðabyggðar
4.17 Aðalfundarboð - Leigufélagið Bríet ehf.
4.18 Frumvarp til laga um lagareldi
4.19 Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 2024
4.20 Skipulags- og framkvæmdanefnd - 8
4.21 Hafnarstjórn - 310
4.22 Stjórn menningarstofu - 4
4.23 Fjölskyldunefnd - 4
4.24 Ungmennaráð - 12
4.25 Ungmennaráð - 13
4.26 Hafnarstjórn - 311
5.
Fjölskyldunefnd - 2
Málsnúmer 2404008F
Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Enginn tók til máls.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 5. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
5.1 Skólafrístund
5.2 Fjölþætt heilsuefling fyrir eldri aldurshópa
5.3 Gott að eldast-samþætting þjónustu Fjarðabyggð og HSA
5.4 Erindisbréf fjölskyldunefndar
5.5 Búsetukjarni og skammtímavistun
6.
Fjölskyldunefnd - 3
Málsnúmer 2404010F
Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 10. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
6.1 Aðstoðuleysi í Oddskarði
6.2 Beiðni um styrk til reksturs Bjarmahlíðar
6.3 Landshlutafundur
6.4 Einangrun og kynding í Fjarðabyggðarhöllina
6.5 Reglur Fjarðabyggðar um þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk
6.6 Kuldaboli 2024
6.7 Fundaáætlun fjölskyldunefnd vor 2024
7.
Fjölskyldunefnd - 4
Málsnúmer 2404018F
Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 22. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
7.1 Fjárhagsáætlunar vinna 2025
7.2 Kennslutímamagn grunnskóla Fjarðabyggðar 2024-2025
7.3 Mönnun leikskóla 2024
7.4 Vorráðstefnu Ráðgjafar- og greiningarstöðvar
7.5 Vallavinnusamningur 2023-2025
7.6 Aðalfundur Landskerfis bókasafna 2024
7.7 Ungmennaráð - 13
7.8 Ungmennaráð - 12
8.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 7
Málsnúmer 2404015F
Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Enginn tók til máls.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 17. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
8.1 Lóðarmál við Hjallaleiru 13 til 19
8.2 Mógerði 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
8.3 Bakkabakki 2b - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
8.4 Brekkugata 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
8.5 Bakkavegur 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
8.6 Austurvegur 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
8.7 Svarthamrar - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
8.8 Sæbakki 17 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
8.9 Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Reyðarfirði
8.10 Aðalskipulag óverulegbreyting á aðalskipulagi Stöðvarfjörður tjaldsvæði
8.11 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Brekkugerði 18
8.12 Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar
8.13 Breyting á samþykkt um fiðurfé
8.14 Drög að breytingum á reglum um stöðuleyfi lausafjármuna
8.15 Óskum eftir að fá að setja bekk við Barkinn á Reyðarfirði
8.16 IMaR 2024 ráðstefnan
8.17 Umsagnarbeiðni um stækkun á athafna- og hafnasvæði Djúpavogs
8.18 Saman gegn sóun - tækifæri til að hafa áhrif á nýja stefnu um úrgangsforvarnir
8.19 Vor í Fjarðabyggð - bæklingur
9.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 8
Málsnúmer 2404023F
Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman. Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 24. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
9.1 Æðavarp á Reyðarfirði
9.2 Ný staðsetning gámasvæða
9.3 Breiðablik þjónustuíbúðir aldraðra - ástand húsnæðis
9.4 Tilkynning um úrskurð v/ Hafnargötu 36
9.5 Leirubakki 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
9.6 Deiliskipulag breyting Leira 1
9.7 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Skólavegur 56
9.8 Egilsbraut 22 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
9.9 Fjárréttir í Fjarðabyggð
9.10 Mógerði 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
10.
Stjórn menningarstofu - 3
Málsnúmer 2404004F
Fundargerðir stjórnar menningarstofu teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 8. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
10.1 Umsókn um leigu ( Skrúður )
10.2 Styrktarsjóður EBÍ 2024
10.3 80 ára afmæli lýðveldisins
10.4 Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins
10.5 Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 2024
10.6 Verkefni menningarstofu 2024
10.7 17. júní 2024
11.
Stjórn menningarstofu - 4
Málsnúmer 2404020F
Fundargerðir stjórnar menningarstofu teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 22. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
11.1 Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 2024
11.2 Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 2024
11.3 Framlag til reksturs 2024
11.4 Sómastaðir, samningur um umsjón húss.
12.
Hafnarstjórn - 310
Málsnúmer 2404021F
Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tók Heimir Snær Gylfason.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 22. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
12.1 Rekstur Fjarðabyggðarhafna
12.2 Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2024
12.3 Eskifjarðarhöfn - stækkun
12.4 Sævarendi 2, Stöðvarfirði
12.5 Öryggismál hafna
12.6 Styrkir til Orkuskipta
12.7 Aðstöðuhús við Stöðvarfjarðarhöfn
12.8 Löndun meltu í Fjarðabyggðarhöfnum
12.9 Leyfi fyrir viðbótar hafnarkrana við Mjóeyrarhöfn - Eimskip
12.10 Ósk um flotbryggjur við Bæjarbryggjuna á Norðfirði
12.11 Ársreikningur Hafnasambands Íslands 2023
13.
Hafnarstjórn - 311
Málsnúmer 2404026F
Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 26. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
13.1 Þjónustusamningur um Vött
13.2 Bakvaktafyrirkomulag Fjarðabyggðarhafna
14.
Ungmennaráð - 12
Málsnúmer 2403007F
Fundargerðir ungmennaráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Enginn tók til máls.
Fundargerð ungmennaráðs frá 13. mars staðfest með 9 atkvæðum.
14.1 Erindi til ungmennaráðs vegna fræðslu og forvarna
15.
Ungmennaráð - 13
Málsnúmer 2403020F
Fundargerðir ungmennaráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð ungmennaráðs frá 3. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
15.1 Umræðupunktar til ungmennaráðs frá skólaþingi Grunnskóla Reyðarfjarðar
16.
Skipan undirkjörstjórnar á Reyðarfirði
Málsnúmer 2402258
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir skipan í undirkjörstjórn.
Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar tillögu að skipan Láru Björnsdóttur sem aðalmanns í undirkjörstjórn á Reyðarfirði í stað Aðalheiðar Vilbergsdóttur ásamt skipun Andreu Borgþórsdóttur sem formanns kjörstjórnarinnar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 tillögur um skipan kjörstjórnar.
17.
Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026
Málsnúmer 2205172
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingu á nefndaskipan.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu að skipan fulltrúa öldungaráðs.
Tilnefnd eru sem aðalmenn Ólafur Helgi Guðmundsson formaður, Árni Þórhallur Helgason varaformaður og Arndís Bára Pétursdóttir. Varamenn Ragnar Sigurðsson, Pálína Margeirsdóttir og Einar Már Sigurðarson.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum tillögu að skipan fulltrúa öldungaráðs.
18.
Reglur Fjarðabyggðar um þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk
Málsnúmer 2404011
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingum á reglum.
Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar tillögu að breytingu á reglum um þjónustuíbúðir
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum breytingar á reglum um þjónustuíbúðir.
19.
Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Reyðarfirði
Málsnúmer 2402273
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir óverulegri breytingu á deiliskipulagi.
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar óverulegri breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar á Reyðarfirði vegna byggingar búsetukjarna. Auglýsingartíma lokið og engar athugasemdir bárust.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum breytingar á deiliskipulagi Miðbæjar á Reyðarfirði.
20.
Aðalskipulag óverulegbreyting á aðalskipulagi Stöðvarfjörður tjaldsvæði
Málsnúmer 2403082
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir óverulegri breytingu á aðalskipulagi.
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar óverulegri breytingu á aðalskipulagi Stöðvarfjarðar vegna tjaldsvæðis á Stöðvarfirði. Um er að ræða óverulega breytingu á gildandi aðalskipulagi vegna áforma um staðsetningu tjaldsvæðis á Stöðvarfirði en felld er út fyrirhuguð staðsetning tjaldsvæðis í gildindi aðalskipulagi og staðsetning þess verður sú sem hefur verið síðustu ár. Málsmeðferð er í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Enginn tók til máls.
Bæjarráð samþykkir með 9 atkvæðum óverulega breytingu á aðalskipulagi.
21.
Sæbakki 17 - Grenndarkynning
Málsnúmer 2402175
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir grenndarkynningu.
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar grenndarkynningu vegna fjölbýlishúss á Sæbakka 17 á Norðfirði. Engar athugasemdir bárust.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum niðurstöðu grenndarkynningar.
22.
Bakkavegur 5 - grenndarkynning
Málsnúmer 2402155
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir niðurstöðu grenndarkynningar.
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til staðfestingar bæjarstjórnar grenndarkynningu vegna Bakkavegar 5, stækkun lóðar og viðbyggingar á tveim hæðum.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum niðurstöður grenndarkynningar.
23.
Brekkugata 4 - grenndarkynning
Málsnúmer 2403188
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir grenndarkynningu.
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar grenndarkynningu vegna breytina á bílskúrsþaki að Brekkugötu 4 á Reyðarfirði
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum niðurstöður grenndarkynningar.