Fara í efni

Bæjarstjórn

390. fundur
16. janúar 2025 kl. 16:00 - 16:45
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar
Þuríður Lillý Sigurðardóttir aðalmaður
Pálína Margeirsdóttir varamaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir 2. varaforseti bæjarstjórnar
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Kristinn Þór Jónasson aðalmaður
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir 1. varaforseti bæjarstjórnar
Jóhanna Sigfúsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 876
Málsnúmer 2412013F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku. Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð bæjarráðs frá 23. desember utan liða 8. og 9. staðfest með 9 atkvæðum.
1.1 Húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2025
1.2 Kauptilboð í Sólbakka 7 Breiðdalsvík frá Sigurði og Tatiana
1.3 Niðurfelling fasteignagjalda
1.4 Ársfundur Brákar 2024
1.5 Verkefnið Sterkur Stöðvarfjörður
1.6 Flýting vegtengingar Suðurfjarðavegar
1.7 Fundargerðir Austurbrúar og SSA
1.8 Ósk um afstöðu til nýtingar forkaupsréttar Naustahvamms 20 í Neskaupstað
1.9 Ósk um afstöðu til nýtingar forkaupsréttar Egilsbrautar 26 í Neskaupstað
2.
Bæjarráð - 877
Málsnúmer 2501003F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 6. janúar utan liðar 3 staðfest með 9 atkvæðum.
2.1 Samráðsvettvangur atvinnulífsins í Fjarðabyggð
2.2 Umsókn um skrifstofurými í gömlu Eskju skrifstofunni
2.3 Ósk um styrk til kaupa á sýningarvél
2.4 Nefndaskipan Framsóknarflokks 2022-2026
2.5 Fundargerðir Austurbrúar og SSA
2.6 Fundargerðir stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2024
2.7 Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2024
2.8 Heimsókn
3.
Bæjarráð - 878
Málsnúmer 2501007F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 13. janúar staðfest með 9 atkvæðum.
3.1 Húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2025
3.2 Bréf ráðuneytisins vegna kvartana um ágangsfé
3.3 Túngata 11b breyting á lóðarmörkum
3.4 Móttaka nýrra íbúa
3.5 Ný heimasíða fyrir Fjarðabyggð 2023
3.6 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Valsmýri 6
3.7 Skipulags- og framkvæmdanefnd - 24
4.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 24
Málsnúmer 2501004F
Til máls tók Jón Björn Hákonarson,
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 8. janúar staðfest með 9 atkvæðum.
4.1 Umsókn um lóðið að Hjallaleiru 2 og 4
4.2 Umsókn um stöðuleyfi Vinnubúðir Héraðsverks v. ofanflóðavarnir Neskaupstað
4.3 Byggingarleyfi Miðdalur 18-20
4.4 Stækkun lóða við Hjallaleiru
4.5 Deiliskipulag miðbæjar Reyðarfjarðar Búðargata 3
4.6 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2024
4.7 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Valsmýri 6
4.8 Strandgata 6 Neskaupstað ásigkomulag
5.
Grenndarkynning Miðdalur 18-20
Málsnúmer 2412001
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir niðurstöðu grenndarkynningar.
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar grenndarkynningu vegna Miðdals 18 til 20 á Eskifirði. Grenndarkynningu er lokið og voru engar athugasemdir gerðar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum niðurstöðu grenndarkynningar vegna Miðdals 18 til 20.
6.
Húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2025 til 2034 - fyrri umræða
Málsnúmer 2409205
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir húsnæðisáætlun.
Vísað frá bæjarráði til fyrri umræðu bæjarstjórnar endurskoðaðri húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar en ný áætlun er fyrir árin 2025 til 2034.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar til síðari umræðu í bæjarstjórn.