Fara í efni

Bæjarstjórn

391. fundur
6. febrúar 2025 kl. 16:00 - 16:52
í fjarfundi
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar
Þuríður Lillý Sigurðardóttir aðalmaður
Elís Pétur Elísson aðalmaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir 2. varaforseti bæjarstjórnar
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Kristinn Þór Jónasson aðalmaður
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir 1. varaforseti bæjarstjórnar
Jóhanna Sigfúsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Haraldur Líndal Haraldsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 879
Málsnúmer 2501012F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson og Stefán Þór Eysteinsson.
Bókun Fjarðalistans vegna liðar 8.
Leikskólamál eru ein af grunnstoðum samfélagsins. Þau snúa ekki eingöngu að menntun og umönnun yngstu íbúa okkar heldur einnig að jafnrétti, atvinnuþátttöku foreldra og efnahagslegu öryggi barnafjölskyldna.
Fjarðalistinn harmar að meirihluti bæjarstjórnar hafi ekki tekið tillit til meginþorra athugasemda sem gerðar hafa verið varðandi nýja gjaldskrá leikskóla Fjarðabyggðar. Áður samþykkt hækkun felur í sér miklar álögur á fjölskyldur sem þurfa á fullri vistun að halda, sem mun hafa neikvæð áhrif á fjárhagsstöðu heimila og jafnrétti á vinnumarkaði og möguleika foreldra, sérstaklega mæðra, til atvinnuþátttöku. Því ítrekum við fyrri bókanir og tillögu um 2,5% gjaldskrárhækkun og biðlum til meirihlutans að endurskoða breytingarnar og vinna þær að nýju í nánu samráði við foreldra og starfsfólk, með gagnsæi og ábyrgð að leiðarljósi.

Fundargerð bæjarráðs frá 20. janúar utan liðar 4 er staðfest með 9 atkvæðum.
1.1 Stöðumat vegna rýminga og ofanflóðahættu
1.2 Íþróttahús á Eskifirði
1.3 Ívilnanaheimildir Menntasjóðs námsmanna
1.4 Forkaupsréttur að Áka í Brekku
1.5 Íbúakönnun 2024
1.6 Nýtt samskipta forrit
1.7 Efnahagsleg greining
1.8 Gjaldskrá leikskóla 2025
2.
Bæjarráð - 880
Málsnúmer 2501017F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 27. janúar staðfest með 9 atkvæðum.
2.1 Gott að eldast-samþætting þjónustu Fjarðabyggð og HSA
2.2 Reglur um stuðningsþjónustu 2025
2.3 Reglur um frístundastyrk Fjarðabyggðar 2025
2.4 Stöðumat vegna rýminga og ofanflóðahættu
2.5 Rýming hesthúsa á snjóflóðahættusvæði
2.6 Verkfallsboðun LSS og ályktun félagsfundar
2.7 Umsókn um afnot íþróttahús Norðfjarðar vegna þorrablóts
2.8 Yfirlýsing frá Miðstöð sjúkraflugs á Íslandi
2.9 Fundargerðir upplýsingaöryggisnefndar
2.10 Umsögn Samtaka orkusveitarfélaga um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum
2.11 Ársfundur Brákar 2025
2.12 Skammtímafjármögnun 2025
2.13 Samstarfsyfirlýsing um uppbyggingu leiguhúsnæðis
2.14 Beiðni um endurgjaldslaus afnot
2.15 Opið bréf vegna íþróttamála á Eskifirði
2.16 Íþróttahús á Eskifirði
2.17 Stefnumörkun lögreglunnar Austurlandi
2.18 Fjölskyldunefnd - 23
3.
Bæjarráð - 881
Málsnúmer 2501024F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 3. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.
3.1 Gott að eldast-samþætting þjónustu Fjarðabyggð og HSA
3.2 Umsókn um styrk til hátíðarinnar BigJump
3.3 Kauptilboð í Sólbakka 7, Breiðdalsvík
3.4 Stefnumörkun Lögreglustjórans á Austurlandi
3.5 Fræðslu fyrir foreldra um slysavarnir ungra barna
3.6 Nefndaskipan Framsóknarflokks 2022-2026
3.7 Uppbygging miðbæjarkjarna á Reyðarfirði
3.8 Endurhönnun leiðakerfis landsbyggðarstrætó
3.9 Ályktun frá skólaráði Eskifjarðarskóla
3.10 Fundargerðir - samtaka svf á köldum svæðum 2025
3.11 Fundargerðir stjórnar Orkusveitarfélaga 2025
3.12 Fjölskyldunefnd - 24
3.13 Hafnarstjórn - 321
3.14 Öldungaráð - 14
4.
Fjölskyldunefnd - 23
Málsnúmer 2501002F
Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tók Jóhanna Sigfúsdóttir.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 20. janúar staðfest með 9 atkvæðum.
4.2 Sumarlokun leikskóla 2025 og 2026
4.3 Ársuppgjör fjölskyldusviðs fyrir 2024
4.4 Fundaáætlun fjölskyldunefnda vor 2025r
4.5 Frístundastyrkur Fjarðabyggðar 2025
4.6 Reglur um stuðningsþjónustu 2025
4.7 Árangursskýrsla UNICEF á Íslandi - Árangur innanlands í 20 ár
4.8 Fjölmenningaráð
4.9 Jólasjóður 2024 - samantekt
5.
Fjölskyldunefnd - 24
Málsnúmer 2501016F
Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 27. janúar staðfest með 9 atkvæðum.
5.1 Íslenska æskulýðsrannsóknin_2024
5.2 Rannsókn á áhættuþáttum sjálfsvíga
5.3 Öldungaráð - 14
5.4 Samstarfssamningur milli Fjarðabyggðar og Múlaþings við aflið
5.5 Samningur við Píeta samtökin
6.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 25
Málsnúmer 2501020F
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 29. janúar staðfest með 9 atkvæðum.
6.1 Ofanflóðavarnir á Eskifirði - Grjótá
6.2 Umsókn um breytingu á byggingarreit við Daltún 7
6.3 Óveruleg breyting á deiliskipulagi Kirkjubólseyrar, Norðfirði
6.4 Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður
6.5 Bólsvör 5
6.6 Byggingarleyfi Stekkjargrund 11 Viðbygging
6.7 Umsókn um lóðir að Hjallaleiru 2 og 4
6.8 Mannvirki sem skylt er að vátryggja hjá NTÍ 2025
7.
Hafnarstjórn - 321
Málsnúmer 2501018F
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 20. janúar staðfest með 9 atkvæðum.
7.1 Öryggismál hafna
7.2 Eskifjarðarhöfn - stækkun
7.3 Viðgerð stálþils Bræðslubryggju Eskifirði (norðurkantur)
7.4 Landmótun og landfylling á Mjóeyrarhöfn
7.5 Vöktun í Fjarðabyggðarhöfnum
7.6 Ósk um aðgang að eftirlitskerfum við Fjarðabyggðarhafnir
7.7 Sjávarútvegssýningin 2025
7.8 Brotinn bryggjustaur
7.9 Sérstakt strandveiðigjald til hafna 2024
7.10 Beiðni um umsögn v.endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskimjölsverksmiðju
8.
Öldungaráð - 14
Málsnúmer 2411027F
Enginn tók til máls.
Fundargerð öldungaráðs frá 2. desember staðfest með 9 atkvæðum.
8.1 Starfsreglur öldungaráðs
8.2 Starfsáætlun öldungaráðs
8.3 Gagnlegar heimasíður - eldra fólk
9.
Aðalskipulag breyting tjaldsvæði Eskifirði
Málsnúmer 2401199
Forseti bæjarstjórnar lagði fram tillögu um að vísa skipulags- og matslýsingunni til skipulags- og framkvæmdanefndar til umfjöllunar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum tillögu forseta bæjarstjórnar.
10.
Húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2025 - síðari umræða
Málsnúmer 2409205
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir húsnæðisáætlun.
Vísað til síðari umræðu bæjarstjórnar endurskoðaðri húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar en ný áætlun er fyrir árin 2025 til 2034.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar.
11.
Reglur um stuðningsþjónustu 2025
Málsnúmer 2501083
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir uppfærðum reglum.
Vísað frá bæjarráð til afgreiðslu bæjarstjórnar breyttum reglum um stuðningsþjónustu í Fjarðabyggð samhliða nýjum samningi við Heilbrigðisstofnun Austurlands um verkefnið gott að eldast.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum uppfærðar reglur um stuðningsþjónustu í Fjarðabyggð.
Viðhengi
Minnisblað
12.
Frístundastyrkur Fjarðabyggðar 2025
Málsnúmer 2411050
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir uppfærðum reglum.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar uppfærðum reglum um frístundastyrk Fjarðabyggðar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum uppfærðar reglur um frístundastyrk Fjarðabyggðar.
13.
Skammtímafjármögnun 2025
Málsnúmer 2501152
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir samning um yfirdráttarheimild.
Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar tillögu um heimild til framlengingar á samning um yfirdráttarheimild hjá Íslandsbanka að fjárhæð 200 m.kr. með möguleika um 300 m.kr. viðbótarheimild.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að framlengja samning um yfirdráttarheimild hjá Íslandsbanka að fjárhæð 200 m.kr. ásamt viðbótarheimildinni og felur bæjarstjóra undirritun skjala þar um.
14.
Gott að eldast-samþætting þjónustu Fjarðabyggð og HSA
Málsnúmer 2306119
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir samningi.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar drögum að samningi Fjarðabyggðar og Heilbrigðisstofnunar Austurlands um samþættingu stuðningsþjónustu aðila í verkefninu gott að eldast.
Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson og Ragnar Sigurðsson.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.