Fara í efni

Bæjarstjórn

398. fundur
5. júní 2025 kl. 15:00 - 15:50
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar
Þuríður Lillý Sigurðardóttir aðalmaður
Birgir Jónsson aðalmaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir 2. varaforseti bæjarstjórnar
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Ingunn Eir Andrésdóttir varamaður
Sigurjón Rúnarsson varamaður
Starfsmenn
Gunnar Jónsson embættismaður
Haraldur Líndal Haraldsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 896
Málsnúmer 2505021F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Jón Björn Hákonarson, Birgir Jónsson,
Fundargerð bæjarráðs frá 26. maí staðfest með 8 atkvæðum.
1.1 Einangrun og kynding í Fjarðabyggðarhöllina
1.2 Greinargerð um framkvæmdir ársins
1.3 Fasteignir í eigu Fjarðabyggðar
1.4 Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar
1.5 Viðaukaframlag vegna samþykkta réttindasafna R og B deilda
1.6 Beiðni um að vinna frumathugun
1.7 Viðtalstímar 2025
1.8 Drög að frumvarpi um breytingar á lögum um veiðigjald 62 2025
1.9 Málefni laxeldis í Fjarðabyggð
1.10 Starfshópur um íþróttahúsið á Eskifirði
1.11 Aðalfundarboð 2025 - Olíusamlagið
1.12 Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2025
1.13 Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
1.14 Fundargerðir Austurbrúar og SSA 2025
1.15 Fjölskyldunefnd - 33
2.
Bæjarráð - 897
Málsnúmer 2505027F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 2. júní staðfest með 8 atkvæðum.
2.1 Viljayfirlýsing vegna samstarfs um kyndingu Fjarðabyggðarhallarinnar
2.2 Þarfagreining vegna húsnæðisuppbyggingar fyrir 60
2.3 Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður
2.4 Samstarfssamningur um rannsóknarsetur Gamli skólinn Eskifirði
2.5 Umsókn um lóð fyrir flugskýli á Norðfirði
2.6 Hringferð Sambandsins
2.7 Fiskeldissjóður - umsóknir 2025
2.8 Fundargerðir - samtaka svf á köldum svæðum 2025
2.9 Skipulags- og framkvæmdanefnd - 34
2.10 Stjórn menningarstofu - 18
2.11 Starfshópur um íþróttahús á Eskifirði - 1
3.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 34
Málsnúmer 2505019F
Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 28. maí staðfest með 8 atkvæðum.
3.1 Byggingarleyfi Skuggahlíðarháls E11
3.2 Byggingarleyfi Hafnargata 1 viðbygging Fásk
3.3 Byggingarleyfi Blómsturvellir 31
3.4 Byggingarheimild niðurrif Mýrargata 8
3.5 Byggingarheimild niðurrif Strandgata 62 Norðfirði
3.6 Deiliskipulag efri byggð Stöðvarfjarðar
3.7 Fjarskiptamastur Fárskrúðsfirði
3.8 Óveruleg breyting á deiliskipulagi Skuggahlíðarháls, frístundabyggð
3.9 Óveruleg breyting á deiliskipulagi Naust 1 - flugskýli
3.10 Umsókn í framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2025
3.11 Framkvæmdaleyfi Helgustaðanáma þjónstuhús
3.12 Umsókn um að hafa klæddan gám á íbúðarhúsalóð
3.13 Umsókn um lóð fyrir flugskýli á Norðfirði
3.14 Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 2026
3.15 Framkvæmdaleyfi Leirubakki Eskifirði
3.16 Beiðni um styrk til strandblaksvallar í Reyðarfirði
3.17 Húsnæði Nesskóla 2025
3.18 Öldugata 6 - Niðurrif Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
3.19 Óveruleg breyting á deiliskipulagi Melur 1
3.20 Byggingarleyfi Búðarmelur 1
4.
Fjölskyldunefnd - 33
Málsnúmer 2505012F
Enginn tók til máls.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 19. maí staðfest með 8 atkvæðum.
4.1 Gott að eldast-samþætting þjónustu Fjarðabyggð og HSA
4.2 Starfsáætlun fjölskyldunefndar 2026
4.3 Þjónustugjald þjónustuíbúða í Neskaupstað endurskoðun
4.4 Húsnæði Nesskóla 2025
4.5 Öldungaráð - ýmislegt
4.6 Öldungaráð - ýmislegt
4.7 Búsetukjarni og skammtímavistun
5.
Stjórn menningarstofu - 18
Málsnúmer 2505022F
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 26. maí staðfest með 8 atkvæðum.
5.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2026
5.2 Gjaldskrá safna í Fjarðabyggð 2025 2026
5.3 Dagskrá gönguvikunnar 2025
5.4 Útilistaverk á sementstanka
5.5 Flutningur muna Safnahússins úr Gylfastöðum
5.6 Umsókn um styrk vegna sóknar fyrir valdeflandi listasmiðjur í Fjarðabyggð
5.7 Verkefni menningarstofu 2025
5.8 Leikskólaverkefnið 2025
5.9 Aðalfundur Landskerfis bókasafna 2025
6.
Deiliskipulag efri byggð Stöðvarfjarðar
Málsnúmer 2302013
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir tillögu að deiliskipulagi.
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu að deiliskipulagi efri byggðar Stöðvarfjarðar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 8 atkvæðum deiliskipulag efri byggðar Stöðvarfjarðar.
7.
Grenndarkynning - fjarskiptamastur Fáskrúðsfirði
Málsnúmer 2503147
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir niðurstöðu grenndarkynningar.
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar niðurstöður grenndarkynningar vegna fjarskiptamastur á Fáskrúðsfirði.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 8 atkvæðum niðurstöðu grenndarkynningar vegna fjarskiptamasturs.
8.
Óveruleg breyting á deiliskipulagi Skuggahlíðarháls, frístundabyggð
Málsnúmer 2505133
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi.
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar óverulegri breytingu á deiliskipulagi Skuggahlíðarháls, frístundabyggð. Breytingin er ekki talin hafa grenndaráhrif.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 8 atkvæðum óverulega breytingu á deiliskipulagi Skuggahlíðarháls, frístundabyggð.
9.
Óveruleg breyting á deiliskipulagi Naust 1 - flugskýli
Málsnúmer 2505137
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi.
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar óverulegri breytingu á deiliskipulagi Naust 1 á Norðfirði. Breytingin er ekki talin hafa grenndaráhrif ásamt því að jákvæð umsögn Isavia liggur fyrir.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 8 atkvæðum óverulega breytingu á deiliskipulaginu Naust 1.
10.
Grenndarkynning - óveruleg breyting á deiliskipulagi Melur 1
Málsnúmer 2505197
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir niðurstöðu grenndarkynningar og óverulegri breytingu deiliskipulags.
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar niðurstöðu grenndarkynningar vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Melur 1, Reyðarfirði. Engar athugugasemdir voru gerðar við fyrirhugaðar framkvæmdir.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 8 atkvæðum niðurstöðu grenndarkynningar og óverulega breytingu á deiliskipulaginu Melur 1.
11.
Nefndaskipan Framsóknarflokks 2022-2026
Málsnúmer 2205170
Framlagðar tillögur um breytingar á skipan fulltrúa Framsóknarflokks í hafnarstjórn og fjölskyldunefnd.
Birgir Jónsson tekur sæti sem aðalmaður í fjölskyldunefnd í stað Pálínu Margeirsdóttur. Jón Björn Hákonarson tekur sæti sem aðalmaður í hafnarstjórn í stað Birgis Jónssonar. Pálína Margeirsdóttir tekur sæti sem varamaður í hafnarstjórn í stað Jóns Björns Hákonarsonar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillöguna.