Fara í efni

Bæjarstjórn

401. fundur
4. september 2025 kl. 16:00 - 17:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar
Þuríður Lillý Sigurðardóttir aðalmaður
Birgir Jónsson aðalmaður
Arndís Bára Pétursdóttir varamaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Sigurjón Rúnarsson varamaður
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir 1. varaforseti bæjarstjórnar
Jóhanna Sigfúsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Þórður Vilberg Guðmundsson sviðsstjóri mannauðs- og umbótasviðs
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 908
Málsnúmer 2508017F
Fundargerðir bæjarráðs nr. 908 og 909 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

Jóhanna Sigfúsdóttir vakti athygli á vanhæfi sínu varðandi lið 9 í fundargerð 908 og Þuríður Lillý Sigurðardóttir vakti athygli á vanhæfi sínu í lið 10 í sömu fundargerð. Voru þeir liðir því teknir fyrir sérstaklega.

Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson og Jón Björn Hákonarson.

Fundargerð bæjarráðs nr. 908 og 909 utan liða 9 og 10 í fundargerð 908. eru staðfestar með 9 atkvæðum.
1.1 Greinargerð um framkvæmdir ársins
1.2 Vatnsveita Stöðvarfjarðar
1.3 Ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf fyrir árið 2024
1.4 Ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar 2024
1.5 Áhrif kjarasamninga á launaáætlun 2025
1.6 Fjárhagsáætlun 2025 - viðauki 1
1.7 Rekstur skíðasvæðisins í Oddsskarði
1.8 Málefni Skólavegar 98-112
1.9 Aðgengismál Lundargötu 4
1.10 Ágangsfé í landi Áreyja
1.11 Reglur Fjarðabyggðar um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra
1.12 Reglur Fjarðabyggðar um stoðþjónustu
1.13 Reglur Fjarðabyggðar um notendasamninga
1.14 Fjármálaráðstefna 2025
1.15 Tillaga um flokkun Hamarsvirkjunar í biðflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar
1.16 Tjaldsvæði Norðfjörður 2025 - hönnun og framkvæmdir
1.17 Fjölskyldunefnd - 36
1.18 Stjórn menningarstofu - 20
2.
Bæjarráð - 909
Málsnúmer 2508022F
Fundargerðir bæjarráðs nr. 908 og 909 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

Jóhanna Sigfúsdóttir vakti athygli á vanhæfi sínu varðandi lið 9 í fundargerð 908 og Þuríður Lillý Sigurðardóttir vakti athygli á vanhæfi sínu í lið 10 í sömu fundargerð. Voru þeir liðir því teknir fyrir sérstaklega.

Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson og Jón Björn Hákonarson.

Fundargerð bæjarráðs nr. 908 og 909 utan liða 9 og 10 í fundargerð 908. eru staðfestar með 9 atkvæðum.
2.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2026
2.2 Umsókn um stofnframlög á árinu 2025
2.3 Rekstur skíðasvæðisins í Oddsskarði
2.4 Verkefnið Sterkur Stöðvarfjörður
2.5 Skýring málefna Golfklúbbs Eskifjarðar
2.6 Landamerkjamál Stuðla
2.7 Hjólarampar á Reyðarfjörð
2.8 Samstarf í öldrunarmálum milli Fjarðabyggðar og Heilbrigðisstofnunar
2.9 Samningur við Píeta samtökin
2.10 Skipulags- og framkvæmdanefnd - 39
3.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 39
Málsnúmer 2508019F
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar nr. 39 frá 27. ágúst lögð fram til staðfestingar.

Engin tók til máls.

Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar nr. 39 staðfest með 9 atkvæðum.
3.1 Ný heimasíða fyrir Fjarðabyggð 2023
3.2 Deiliskipulag efri byggð Stöðvarfjarðar
3.3 Óveruleg breyting á deiliskipulagi smábátahöfn Bankastræti 5
3.4 Þórhólsgata 1a óveruleg breyting dsk miðbæjar Neskaupstaðar
3.5 Byggingarleyfi Búðargata 5
3.6 Umsókn um lóð Nesgata 34
3.7 Umsókn um lóð Víðimýri 15 Norðfjörður
3.8 Neðri Skálateigur L158164 uppskipting lands
3.9 Villikettir Fjarðabyggð
3.10 Umsókn um stöðuleyfi
3.11 Umsókn um stöðuleyfi
3.12 Forkaupsréttur fasteigna
3.13 Fundaáætlun SFN 2025
3.14 Fiskeldissjóður - umsóknir 2024
3.15 Streitishvarf - uppbygging ferðamannastaðar
3.16 Óveruleg breyting á deiliskipulagi Melur 1
4.
Fjölskyldunefnd - 36
Málsnúmer 2508008F
Fundargerð fjölskyldunefndar nr. 36 frá 18. ágúst lögð fram til staðfestingar.

Engin tók til máls.

Fundargerð fjölskyldunefndar nr. 36 er staðfest með 9 atkvæðum.
4.1 Húsnæði Nesskóla 2025
4.2 Fundaáætlun fjölskyldunefndar haust 2025
4.3 Aðalfundur SUM 2025
4.4 Stofnun undirbúningshóp fyrir stofnun farsældarráðs á Austurlandi
4.5 Beiðni um rekstrarstyrk til Þúfunnar áfangaheimili fyrir konur
4.6 Reglur Fjarðabyggðar um stoðþjónustu
4.7 Reglur Fjarðabyggðar um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra
4.8 Reglur Fjarðabyggðar um notendasamninga
5.
Stjórn menningarstofu - 20
Málsnúmer 2508005F
Fundargerð stjórnar menningarstofu nr. 20 frá 18. ágúst lögð fram til staðfestingar.

Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson og Arndís Bára Pétursdóttir.

Fundargerð stjórnar menningarstofu nr. 20 er staðfest með 9 atkvæðum.
5.1 Verkefni menningarstofu 2025
5.2 Skjalasafn Fjarðabyggðar
5.3 Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins
5.4 Yfirferð og uppsetning fræðsluskilta
5.5 Skipun stjórnar Tónlistarmiðstöðvar
5.6 Bæjarhátíðir í Fjarðbyggð
5.7 Kynningarfundur nýrrar gjaldskrá Þjóðskjalasafns
6.
Fjárhagsáætlun 2025 - viðauki 1
Málsnúmer 2508144
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir viðauka.

Vísað frá bæjarráð til afgreiðslu bæjarstjórnar viðauka 1 við fjárhagsáætlun ársins 2025.
Viðaukinn felur í sér breytingu á fjárhagsáætlun ársins 2025 vegna áhrifa af kjarasamningum á gildandi launaáætlun fyrir árið 2025.

a)
Úthlutun fjármagns vegna kjarasamninga til deilda í a- og b- hluta að fjárhæð 479,4 m.kr. af sameiginlegum kostnaði, fjárliður 21690.

Breytingar á fjárhagsáætlun ársins 2025 eru að rekstrarniðurstaða a-hluta batnar um 25,3 m.kr. en lækkar um sömu fjárhæð í b-hluta og niðurstaða samstæðunnar er óbreytt.

Enginn tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2025.
7.
Reglur Fjarðabyggðar um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra
Málsnúmer 2508022
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir drögum að regum um stuðning við börn og fjölskyldur.

Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar drögum að reglum um stuðning við börn og fjölskyldur.

Enginn tók til máls.

Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum reglur um stuðning við börn og fjölskyldur.
Viðhengi
Minnisblað
8.
Reglur Fjarðabyggðar um stoðþjónustu
Málsnúmer 2508048
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir reglum um stoðþjónustu.

Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar drögum að reglum um stoðþjónustu.

Enginn tók til máls.

Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum reglur um stoðþjónustu.
9.
Reglur Fjarðabyggðar um notendasamninga
Málsnúmer 2508021
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir drögum að reglum um notendasamninga.

Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar drögum að reglum um notendasamninga.

Enginn tók til máls.

Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum reglur um notendasamninga.
Viðhengi
Minnisblað
10.
Deiliskipulag efri byggð Stöðvarfjarðar
Málsnúmer 2302013
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir uppfærðu deiliskipulagi.

Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar uppfærðri greinagerð vegna deiliskipulags efri byggðar á Stöðvarfirði í samræmi við umsögn Minjastofnunar. Bæjarstjórn staðfesti skipulagið áður á fundi sínum 5. júní 2025.

Enginn tók til máls

Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum deiliskipulag efri byggðar á Stöðvarfirði.
11.
Grenndarkynning vegna Blómsturvalla 31
Málsnúmer 2505144
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir staðfestingu grenndarkynningar

Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til staðfestingar bæjarstjórnar grenndarkynningu vegna Blómsturvalla 31 Norðfirði. Engar athugugasemdir voru gerðar.

Enginn tók til máls.

Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum grenndarkynningu vegna Blómsturvalla 31.
12.
Grenndarkynning vegna Kvíabrekkur 1a
Málsnúmer 2505197
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir staðfestingu grenndarkynningar

Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til staðfestingar bæjarstjórnar grenndarkynningu vegna óverulegrar breytingu á deiliskipulaginu Melur 1 á Reyðarfirði vegna Kvíabrekku 1a. Engar athugugasemdir voru gerðar.

Enginn tók til máls.

Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum grenndarkynningu og óverulega breytingu á deiliskipulaginu.
13.
Óveruleg breyting á deiliskipulagi smábátahöfn Bankastræti 5
Málsnúmer 2506082
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir óverulegri breytingu á deiliskipulagi.

Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til staðfestingar bæjarstjórnar óverulegri breyting á deiliskipulagi smábátahafnar að Bankastræti 5 á Stöðvarfirði. Breyting er ekki talin hafa grenndaráhrif.

Enginn tók til máls.

Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum óverulega breytingu á deiliskipulagi smábátahafnar á Stöðvarfirði.
14.
Óveruleg breyting deiliskipulags miðbæjar Neskaupstaðar
Málsnúmer 2508151
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir óverulegri breytingu á deiliskipulagi.

Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til staðfestingar bæjarstjórnar óverulegri breytingu deiliskipulags miðbæjar Neskaupstaðar vegna Þórhólsgötu 1a . Breyting er ekki talin hafa grenndaráhrif.

Enginn tók til máls.

Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum óverulega breytingu á deiliskipulagi miðbæjar í Neskaupstað.