Fara í efni

Bæjarstjórn

414. fundur
21. apríl 2026 kl. 15:00 - 16:05
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar
Tinna Hrönn Smáradóttir
Birgir Jónsson aðalmaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir 2. varaforseti bæjarstjórnar
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Kristinn Þór Jónasson aðalmaður
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir 1. varaforseti bæjarstjórnar
Jóhanna Sigfúsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 940
Málsnúmer 2604006F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Jón Björn Hákonarson, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir, Kristinn Þór Jónasson og Þórdís Mjöll Benediktsdóttir.
Fundargerð bæjarráðs frá 13. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
1.1 Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður
1.2 Íþróttahús Reyðarfjarðar: aðstaða og áhöld
1.3 Gamli barnaskólinn á Eskifirði
1.4 Byggingar á þekktum flóðasvæðum
1.5 Greining á vef Fjarðabyggðar
1.6 Tæknidagur Fjölskyldunnar 2026
1.7 Styrktarsjóður EBÍ-umsóknir
1.8 Málefni Sjóminjasafns Austurlands, slit félagsins
1.9 Umsókn um lóð Búðareyri 12, 730 Reyðarfjörður
1.10 Stjórnsýslukæra vegna ágangsfjár í landi Áreyja
1.11 Stjórnsýslukæra vegna ágangsfjár í landi Óseyrar
1.12 Umsókn um styrk - Stríðsárasafnið II áfangi
1.13 Umsókn um styrk - Fjarðabyggðahöllin
1.14 Umsókn um styrk - Nýr slökkvibíll
1.15 Aðalfundarboð Leigufélagsins Bríetar
1.16 Ársfundur 2026
1.17 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026
1.18 Útboð á dýpkun Frystihússbryggja Eskifjarðarhöfn
1.19 Gjaldskrár 2026
2.
Bæjarráð - 941
Málsnúmer 2604014F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og atkvæðagreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 20. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
2.1 Breytingar á stofnsamningi Héraðsskjalasafns Austfirðinga bs.
2.2 Beiðni um styrk til kaups á björgunardróna
2.3 Ferðakostnaðar vegna íþróttaiðkunar
2.4 Forkaupsréttur að Gullveri NS-12
2.5 Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins
2.6 Samskiptastefna 2026
2.7 Ósk um kaup á Gilsárstekk í Breiðdal
2.8 Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026
2.9 Sveitarstjórnarkosningar 2026
2.10 Sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðisleg þátttaka barna
2.11 Gjaldskrá stuðningsþjónustu 2026
2.12 Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 2026
2.13 Gjaldskrá leikskóla 2026
2.14 Gjaldskrá grunnskóla 2026
2.15 Gjaldskrá tónlistarskóla 2026
2.16 Gjaldskrá bókasafna 2026
2.17 Gjaldskrá safna 2026
2.18 Gjaldskrá félagsheimila 2026
2.19 Gjaldskrá frístundaheimila 2026
2.20 Gjaldskrá félagsmiðstöðva 2026
2.21 Gjaldskrá sundlauga 2026
2.22 Gjaldskrá líkamsræktarstöðva 2026
2.23 Gjaldskrá íþróttahúsa 2026
2.24 Gjaldskrá íþróttahúsa - stórviðburðir 2026
2.25 Gjaldskrá skíðasvæðis 2026
2.26 Gjaldskrá hunda- og kattahald 2026
2.27 Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2026
2.28 Fundarboð frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, þriðjudaginn 21. apríl
2.29 Aukaaðalfundur Samtaka orkusveitarfélög
2.30 Ársfundur 2026
2.31 Útboð á dýpkun Frystihússbryggja Eskifjarðarhöfn
2.32 Greinargerð um framkvæmdir ársins
2.33 Framkvæmdir við miðbæ Neskaupstaðar
2.34 Nefndaskipan Framsóknarflokks 2022-2026
2.35 Skipulags- og framkvæmdanefnd - 57
2.36 Stjórn menningarstofu - 35
2.37 Hafnarstjórn - 337
2.38 Öldungaráð - 25
3.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 57
Málsnúmer 2604011F
Enginn tók til máls.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 15. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
3.1 Niðurgreiðslur á raforku
3.2 Hjólabraut á Norðfirði
3.3 Verðkönnun uppsetning á nýjum ljósum í Fjarðabyggðarhöllina
3.4 Refa- minkaveiði 2026
3.5 Umsókn um styrk - Stríðsárasafnið II áfangi
3.6 Umsókn um styrk - Nýr slökkvibíll
3.7 Umsókn um styrk - Fjarðabyggðahöllin
3.8 Byggingarleyfi Búðareyri 12 mhl01
3.9 Byggingarleyfi Búðareyri 12 mhl02
4.
Hafnarstjórn - 337
Málsnúmer 2604007F
Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 13. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
4.1 Útboð á dýpkun Frystihússbryggja Eskifjarðarhöfn
5.
Hafnarstjórn - 338
Málsnúmer 2604016F
Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 20. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
5.1 Útboð á dýpkun Frystihússbryggja Eskifjarðarhöfn
6.
Fjölskyldunefnd - 56
Málsnúmer 2603028F
Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku Birgir Jónsson, Stefán Þór Eysteinsson, Ragnar Sigurðsson og Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 13. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
6.1 Verkefni með skólasamfélaginu við Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla
6.2 Skólavogin 2025-2026
6.3 Öldungaráð - 25
7.
Fjölskyldunefnd - 57
Málsnúmer 2604013F
Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 20. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
7.1 Verkefni með skólasamfélaginu við Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla
7.2 Úthlutunarlíkan grunnskóla 2026-2027
7.3 Úthlutun til leikskóla 2026-2027
7.4 Beiðni um kaup á stólum
7.5 Nauðsynlegar framkvæmdir við knattspyrnuvöllinn á Búðagrund á Fáskrúðsfirði.
7.6 Skýrsla stjórnenda - félagsþjónusta og barnavernd
8.
Stjórn menningarstofu - 35
Málsnúmer 2604010F
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 15. apríl utan liðar 3 staðfest með 9 atkvæðum.
8.1 Verkefni menningarstofu 2026
8.2 Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins
8.3 Bæjarhátíðir í Fjarðabyggð
8.4 Varðveisluhúsnæði fyrir söfn
8.5 Umsókn um styrk - Stríðsárasafnið II áfangi
8.6 Styrktarsjóður EBÍ-umsóknir
9.
Öldungaráð - 25
Málsnúmer 2603014F
Enginn tók til máls.
Fundargerð öldungaráðs frá 16. mars staðfest með 9 atkvæðum.
9.1 Kynning á starfsemi og hlutverki heimahjúkrunar
9.2 Dagur öldrunar 2026
9.3 Fræðsluheimsókn Netvís
10.
Málefni Sjóminjasafns Austurlands, slit félagsins
Málsnúmer 2510038
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir máli.
Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar slitum á sjálfseignarstofnuninni Sjóminjasafni Austurlands sem bæjarráð hafði samþykkt 17. nóvember sl. og bæjarstjórn staðfesti þann 20. nóvember sl. Búið er að ganga frá öllum formsatriðum vegna yfirfærslu rekstrarins og eigna til sveitarfélagsins.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum yfirtöku eigna og reksturs Sjóminjasafns Austurlands og þeim skuldbindingum sem hvíla á félaginu og felur bæjarstjóra undirritun nauðsynlegra gagna vegna yfirfærslunnar.
11.
Samskiptastefna 2026 - fyrri umræða
Málsnúmer 2604082
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir stefnu.
Vísað frá bæjarráði til fyrri umræðu í bæjarstjórn endurskoðaðri samskiptastefnu fyrir Fjarðabyggð og stofnanir.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa stefnunni til síðari umræðu í bæjarstjórn.
12.
Meðmæli vegna kaupa á Gilsárstekk í Breiðdal
Málsnúmer 2604092
Forseti mælti fyrir beiðni ábúanda Gilsárstekks í Breiðdal um umsögn.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar meðmælum vegna fyrirhugaðra kaupa ábúenda á jörðinni Gilsárstekk í Breiðdal. Landnúmer eignar er L158957 og eigandi er Ríkissjóður Íslands. Bæjarráð hefur samþykkt jákvæða umsögn vegna fyrirhugaðra kaupa, sbr. 36. gr. jarðalaga nr. 81/2004 með síðari breytingum.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að mæla með kaupum ábúanda jarðarinnar Gilsárstekks í Breiðdal á grundvelli 3 mgr. 36. gr. laga nr. 81/2004, jarðalögum og er bæjarstjóra falið að veita meðmælin.