Fara í efni

Bæjarstjórn

415. fundur
13. maí 2026 kl. 16:00 - 17:10
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar
Þuríður Lillý Sigurðardóttir aðalmaður
Birgir Jónsson aðalmaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir 2. varaforseti bæjarstjórnar
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Kristinn Þór Jónasson aðalmaður
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir 1. varaforseti bæjarstjórnar
Jóhanna Sigfúsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 942
Málsnúmer 2604017F
Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umfjöllunar og afgreiðslum.
Til máls tóku Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson og Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð bæjarráðs frá 22. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
1.1 Útboð á dýpkun Frystihússbryggja Eskifjarðarhöfn
2.
Bæjarráð - 943
Málsnúmer 2604024F
Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umfjöllunar og afgreiðslum.
Fundargerð bæjarráðs frá 27. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
2.1 Auka hluthafafundur Leigufélagsins Bríetar
2.2 Heilsugæsla og læknamál á Fáskrúðsfirði
2.3 Þjónusta ÁTVR
2.4 Starfshópur um íþróttahús á Eskifirði - 2
2.5 Starfshópur um íþróttahús á Eskifirði - 3
2.6 Starfshópur um íþróttahús á Eskifirði - 4
2.7 Starfshópur um íþróttahús á Eskifirði - 5
2.8 Starfshópur um íþróttahús á Eskifirði - 6
2.9 Starfshópur um íþróttahús á Eskifirði - 7
3.
Bæjarráð - 944
Málsnúmer 2604030F
Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umfjöllunar og afgreiðslum.
Fundargerð bæjarráðs frá 4. maí staðfest með 9 atkvæðum.
3.1 Fjárhagsáætlun 2026 - viðauki 1
3.2 Forkaupsréttur að Ljósafelli SU-90
3.3 Þakviðgerðir Grunnskóla Breiðdalsvík
3.4 Beiðni um endurskoðun álagningar sorphirðugjalda
3.5 Lækjarkanntavarnir vegna Kvíabólslækjar og Þiljuvallalækjar
3.6 Reglur fyrir íþrótta- og tómstundastyrk Fjarðabyggðar 2026
3.7 Til umsagnar 595. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
3.8 Umsóknir í framkvæmdasjóð ferðamanna 2026
3.9 Ársfundur Náttúruhamfaratryggingar Íslands 21. maí 2025
3.10 Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
3.11 Hafnarstjórn - 339
3.12 Fjölskyldunefnd - 58
3.13 Skipulags- og framkvæmdanefnd - 58
4.
Bæjarráð - 945
Málsnúmer 2605004F
Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umfjöllunar og afgreiðslum.
Fundargerð bæjarráðs frá 11. maí staðfest með 9 atkvæðum.
4.1 Fjárhagsáætlun 2026 - viðauki 1
4.2 Rafræn innkaupakort
4.3 Afnám læknaþjónustu Fáskrúðsfirði
4.4 Erindi frá Íbúasamtökum Fáskrúðsfjarðar
4.5 Kynding Fjarðabyggðarhallarinnar
4.6 Stýrihópur um framtíðarskipulag náttúrustofa
4.7 Fundargerðir Austurbrúar og SSA 2026
4.8 Ósk um viðburðarleyfi fyrir Hjólamót
4.9 Aðalfundur Breiðdalsseturs 2026
4.10 Hafnarstjórn - 340
4.11 Starfshópur um íþróttahús á Eskifirði - 8
4.12 Fjölskyldunefnd - 59
5.
Hafnarstjórn - 339
Málsnúmer 2604019F
Fundargerðir hafnarstjórnar teknar saman til umfjöllunar og afgreiðslum.
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 22. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
5.1 Útboð á dýpkun Frystihússbryggja Eskifjarðarhöfn
6.
Hafnarstjórn - 340
Málsnúmer 2605001F
Fundargerðir hafnarstjórnar teknar saman til umfjöllunar og afgreiðslum.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 4. maí staðfest með 9 atkvæðum.
6.1 Útboð - Vöttur, mönnun og viðhald
6.2 Mjóeyrarhöfn skipulagsgreining
6.3 Beiðni um leyfi fyrir slönguhúsi og löndunarbúnaði á Strandarbryggju
6.4 Fyrirhugaðar framkvæmdir Loðnuvinnslunnar
6.5 Ástand stálþilsbryggja - Fjarðabyggðarhafnir
6.6 Eskifjarðarhöfn - stækkun
6.7 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026
7.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 58
Málsnúmer 2604025F
Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar teknar saman til umfjöllunar og afgreiðslu.
Enginn tók til máls.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 29. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
7.1 Óveruleg breyting á deiliskipulagi Holtahverfi, Reyðarfirði - Garðaholt 5
7.2 Byggingarleyfi Hafnarbraut 6, 740 Norðfirði
7.3 Byggingarleyfi Heiðarvegur 37 - niðurrif
7.4 Framkvæmdaleyfi hjólabraut
7.5 Umsókn um lóð Mógerði 5
7.6 Framkvæmdaleyfi girðing Blávík
7.7 Framkvæmdaleyfi skógrækt Blávík
7.8 Grjótá, lóðir og merkjalýsing
7.9 Umsókn um beitiland - Eigendur Fálskaskjóls Kirkjubólseyrum 12 740 Nesk
7.10 Vor í Fjarðabyggð 2026
7.11 Starfshópur um íþróttahúsið á Eskifirði
7.12 Þakviðgerðir Grunnskóla Breiðdalsvík
7.13 Framkvæmdaleyfi efnistaka Norðfjarðará
8.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 59
Málsnúmer 2605006F
Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar teknar saman til umfjöllunar og afgreiðslu.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 13. maí staðfest með 9 atkvæðum.
8.1 Breyting á deiliskipulagi Sævarendi 2
8.2 Breyting á aðalskipulagi Sævarendi 2
8.3 Umsókn um lóð Mógerði 5
8.4 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
8.5 Umsókn um stækkun á lóð Strandgata 77b, 735 Eskifjörður
8.6 Framkvæmdaleyfi strenglöng í Hólsgötu og Miðstræti
8.7 Byggingarleyfi Efri miðbær 3 geymsluhús
8.8 Byggingarleyfi Skuggahlíðarháls N1
8.9 Óveruleg breyting á deiliskipulagi Stekkir 1, Reyðarfirði - Stekkjarbrekka 15
8.10 Beiðni um leyfi fyrir slönguhúsi og löndunarbúnaði á Strandarbryggju
8.11 Baðstofan í Kvíabólsfjörunni
8.12 Yfirborðsvatn. Erindi vegna Egilsbrautar 4
8.13 Umsóknir í framkvæmdasjóð ferðamanna 2026
8.14 Viðhald tækja og búnaðar í Oddskarði
8.15 Ástandsskoðun brúa við Búðaveg Fáskrúðsfirði
8.16 Umhverfismál og umbætur
8.17 Beiðni um fund vegna aðstöðu við reiðhöll og samgangna
8.18 Umsókn um stöðuleyfi
8.19 Byggingarleyfi Leirubakki 4
8.20 Byggingarleyfi Hæðargerði 39
8.21 Framkvæmdaleyfi færa farg Leirubakki 4
8.22 Grenndarkynning - Garðaholt 5
9.
Fjölskyldunefnd - 58
Málsnúmer 2604021F
Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar saman til umfjöllunar og afgreiðslum.
Til máls tók Birgir Jónsson.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 27. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
9.1 Tillögur til tilnefninga Íslensku menntaverðlaunanna
9.2 Reglur fyrir íþrótta- og tómstundastyrk Fjarðabyggðar 2026
10.
Fjölskyldunefnd - 59
Málsnúmer 2604029F
Fundargerðir fjölskyldunefndar teknar saman til umfjöllunar og afgreiðslum.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 8. maí staðfest með 9 atkvæðum.
10.1 Úthlutun til leikskóla 2026-2027
10.2 Úthlutun til grunnskóla 2026-2027
10.3 Verkefni með skólasamfélaginu við Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla
10.4 Endurskoðun samnings um barnaverndarþjónustu
10.5 Verklagsreglur um fósturráðstafanir - BFSH
10.6 Drög að reglugerð um málsmeðferð vegna ákvörðunar um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins
10.7 Húsnæðismál - Egilsbúð
10.8 Ungmennaráð - 24
10.9 Öldungaráð - 26
10.10 Upplýsingagjöf til eldra fólks
10.11 Tillögur til tilnefninga Íslensku menntaverðlaunanna
11.
Stjórn menningarstofu - 36
Málsnúmer 2605005F
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 11. maí staðfest með 9 atkvæðum.
11.1 Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins
11.2 Verkefni safnanna studd af Safnasjóði
11.3 Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar
11.4 Málefni Sjóminjasafns Austurlands, slit félagsins
11.5 Skjala- og myndasafn Fjarðabyggðar
11.6 Verkefni menningarstofu 2026
11.7 Umsókn í Bókasafnasjóð vegna fjölbreyttrar dagskrár á bókasöfnum
12.
Öldungaráð - 26
Málsnúmer 2604023F
Enginn tók til máls.
Fundargerð öldungaráðs frá 29. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
12.1 Kynning á fyrirkomulagi námskeiða fyrir eldra fólk
12.2 Beiðni um fund með öldungaráði
12.3 Starfsáætlun öldungaráðs
12.4 Samfylkingin og annað félagshyggjufólk óskar eftir fundi með Öldungaráði í Fjarðabyggð
13.
Ungmennaráð - 24
Málsnúmer 2604022F
Enginn tók til máls.
Fundargerð ungmennaráðs frá 28. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
13.1 umhverfismál og umbætur
13.2 kynningar til ungmennaráðs
13.3 Sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðisleg þátttaka barna
14.
Fjárhagsáætlun 2026 - viðauki 1
Málsnúmer 2604239
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir viðauka.
Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar viðauka I við fjárhagsáætlun 2026.

Viðauki 1 við fjárhagsáætlun 2026 vegna gjaldskrárbreytinga, búnaðar íþróttahúss á Reyðarfirði, frágangs við Gamla skóla á Eskifirði, sölu Sunnugerðis 7 og þakviðgerðir grunnskóla Breiðdals.
a)
Lækkun tekna vegna gjaldskrárbreytinga í a- hluta að fjárhæð 5,5 m.kr.
b)
Hækkun fjárveitinga til frístundamála vegna búnaðar íþróttahúss á Reyðarfirði að fjárhæð 8,3 m.kr.
c)
Hækkun fjárveitinga í eignasjóði til umhverfis Gamla skóla á Eskifirði að fjárhæð 5,5 m.kr.
d)
Auknar tekjur í málaflokki 57 vegna söluhagnaðar Sunnugerðis 7 að fjárhæð 86,3 m.kr.
e)
Hækkun fjárveitingar til eignasjóða vegna viðhaldsframkvæmda í Breiðdalsskóla að fjárhæð 90. m.kr.

Breytingar á fjárhagsáætlun ársins 2026 eru að rekstrarniðurstaða a- hluta versnar um 5,5, m.kr. og verður jákvæð um 256,4 m.kr. Tekjur félagslegra íbúða og b-hluta hækka um 86,3 m.kr. Áætluð afkoma samstæðu a- og b- hluta hækkar því um 80,8 m.kr. og verður 873,5 m.kr. Sjóðsstaða aðalsjóðs og samstæðu lækkar við þessar breytingar um 30 m.kr. og verður 562 m.kr.

Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum viðauka I við fjárhagsáætlun ársins 2026.
15.
Reglur fyrir íþrótta- og tómstundastyrk Fjarðabyggðar 2026
Málsnúmer 2604157
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir endurskoðuðum reglum.
Vísað frá bæjarráð til afgreiðslu bæjarstjórnar endurskoðuðum reglum um íþrótta- og tómstundastyrki.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum reglur um íþrótta- og tómstundastyrki.
16.
Samskiptastefna 2026 - síðari umræða
Málsnúmer 2604082
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir stefnu.
Vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn endurskoðaðri samskiptastefnu fyrir Fjarðabyggð og stofnanir.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum Samskiptastefnu Fjarðabyggðar.
17.
Óverulega breyting deiliskipulags Holtahverfis ásamt grenndarkynning
Málsnúmer 2604237
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir óverulegri breytingu deiliskipulags og grenndarkynningu.
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar óverulegri breytingu á deiliskipulagi Holtahverfis á Fáskrúðsfirði vegna Garðaholts 5.
Jafnframt er niðurstöður grenndarkynningar vegna breytinganna vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum óverulega breytingu deiliskipulags Holtahverfis á Fáskrúðsfirði og staðfestir niðurstöðu grenndarkynningar vegna Garðaholts 5.
18.
Óveruleg breyting á deiliskipulagi Stekkir 1, Reyðarfirði - Stekkjarbrekka 15
Málsnúmer 2603135
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir óverulegri breytingu deiliskipulags.
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar óverulegri breytingu á deiliskipulagi Stekkir 1 á Reyðarfirði til að færa lóðarstærð til samræmis við breytta lóðastærð sem þegar hefur verið gerð og samþykkt ásamt leiðréttingu á byggingarreit.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum óverulega breytingu deiliskipulagsins Stekkir 1 á Reyðarfirði.
19.
Breyting á deiliskipulagi Sævarendi 2
Málsnúmer 2512025
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir tillögu að breytingu á deiliskipulagi.
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu að breytingu á deiliskipulagi hafnarsvæðis á Stöðvarfirði þar sem lóðin Sævarendi 2 bætist við skipulagssvæðið.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum breytingu á deiliskipulaginu.
20.
Breyting á aðalskipulagi Sævarendi 2
Málsnúmer 2507014
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingu á aðalskipulagi Fjarðabyggðar.
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarstjórnar tillögu að breytingu á aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020 til 2040 fyrir Sævarenda á Stöðvarfirði. Tekið hefur verið tillit til athugasemda sem fram komu við kynningu á vinnslutillögu.
Til máls tók Stefán Þór Eysteinsson.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum breytingar á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020 til 2040 vegna Stöðvarfjarðar.
Síðasti skipulagði fundur bæjarstjórnar Fjarðabyggðar. Jón Björn Hákonarson fór yfir feril sinn og færði samstarfsmönnum sínum þakkir fyrir gott samstarf bæði kjörnir fulltrúar og starfsmenn sveitarfélagsins. Fundarmenn þökkuðu Jóni Birni sömuleiðis fyrir gott samstarf og svo hvor öðrum fyrir gott samstarf með ósk um velfarnað.