Bæjarstjórn
Ræddar voru umsóknir um starf bæjarstjóra í Fjarðabyggð.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Fram kom að ekki hefði náðs full samstaða um neinn umsækjendanna. Með hliðsjón af því að mörg stór og vandmeðfarin verkefni verða á dagskránni næsta kjörtímabil telur bæjarráð nauðsynlegt að þverpólitísk samstaða náist um þann einstakling sem velst til starfsins. Slík samstaða um nýjan bæjarstjóra var markmið sem bæjarráð og bæjarstjórn Fjarðabyggðar settu sér í upphafi. Því leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að bæjarráði verði falið að leita að umsækjanda sem full samstaða geti skapast um.
Bókun Fjarðalistans varðandi fundargerð 204. bæjarráðsfundar
Bæjarfulltrúar Fjarðalistans lögðu fram bókun á 74. fundi bæjarstjórnar varðandi stefnu listans í ráðningu bæjarstjóra. Nokkrir af umsækjendum um starfið féllu vel að stefnu listans, m.a. allir þeir sem boðaðir voru í viðtöl hjá bæjarráði. Hefði listinn því stutt þá alla til starfsins ef meirihlutinn hefði gert tillögu um einhvern þeirra. Þar sem stór þáttur í okkar stefnu er að þverpólitísk sátt verði um nýjan bæjarstjóra og hún hefur ekki náðs, styðjum við það að öllum umsækjendum sé hafnað og ráðningunni vísað til bæjarráðs í trausti þess að þar verði samið við aðila sem full sátt er um í bæjarstjórn.
Við viljum þó gera nokkrar athugasemdir varðandi ráðningarsamning við nýjan bæjarstjóra. Í fyrsta lagi að samningurinn sé opinber og bæði íbúum sveitarfélagsins og fjölmiðlum gefinn kostur að skoða hann. Í öðru lagi felst í starfinu mikil vinna og ábyrgð og teljum við launakjör eiga að vera í samræmi við það. Við leggjum jafnframt áherslu á að samningurinn sé einfaldur og gegnsær og byggist fyrst og fremst á grunnlaunum og fastri yfirvinnu en ekki ýmis konar viðbótar launaliðum. Í þriðja lagi óskum við eftir því að samningurinn taki mið af almennum kjarasamningum eins og kostur er, t.d. með 3ja mánaða biðlaunarétti í stað 6 mánaða eins og tíðkast hefur víða í ráðningarsamningum bæjarstjóra.
Elvar Jónsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Esther Ösp Gunnarsdóttir (sign)
Fundargerð samþykkt með 9 atkvæðum.
Tillaga:
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar felur bæjarráði að ganga til viðræðna og samninga við Pál Björgvin Guðmundsson um að hann taki við starfi bæjarstjóra í Fjarðabyggð til næstu 4 ára.
Jón Björn Hákonarson, Jens Garðar Helgason, Elvar Jónsson (sign)
Tillaga samþykkt með 9 atkvæðum.
Tillaga forseta bæjarstjórnar.
Lagt er til að bæjarstjórn komi saman að nýju eftir sumarfrí fimmtudaginn 2. september 2010. Einnig er lagt til að bæjarráði verði falið ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðsla mála bæjarstjórnar meðan á sumarfríi hennar stendur sbr. heimild í 15. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
Tillagan samþykkt með 9 atkvæðum.