Bæjarstjórn
78. fundur
7. október 2010
kl.
16:00
-
19:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 213
Fundargerðir bæjarráðs nr. 213 og nr. 214 teknar fyrir saman.
Til máls tóku Elvar Jónsson, Valdimar O. Hermannsson, Jens Garðar Helgason, Páll Björgvin Guðmundsson og Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Fundargerð samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
1.1
Tilfærsla málefna fatlaðra til sveitarfélaga
1.2
Breytingar á reglum um framlög til stjórnmálaflokka
1.3
Ný skipulagsreglugerð
1.4
Lokun Landsbankans á Stöðvarfirði
1.5
Loftræstikerfi í Kirkju- og menningarmiðstöðinni
1.6
Viðhald á félagsaðstöðu fyrir unglinga á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði
1.7
Samstarf á Austurlandi
1.8
Skipan nefndarmanns í Heilbrigðisnefnd Austurlands
1.9
Fjárhagsáætlun 2011
2.
Bæjarráð - 214
Fundargerðir bæjarráðs nr. 213 og nr. 214 teknar fyrir saman.
Til máls tóku Elvar Jónsson, Valdimar O. Hermannsson, Jens Garðar Helgason, Páll Björgvin Guðmundsson og Jón Björn Hákonarson.
Ályktun bæjarstjórnar Fjarðabyggðar og stærstu fyrirtækja sveitarfélagsins gegn áformum um stórfelldan niðurskurð í helibrigðismálum á Austurlandi.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar og fyrirtæki innan sveitarfélagsins, Alcoa-Fjarðaál, Síldarvinnslan, Loðnuvinnslan, Eskja, Launafl og VHE mótmæla harðlega boðuðum niðurskurðaráformum stjórnvalda, er varða Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA), eins og þau koma fram í framlögðu frumvarpi til fjárlaga 2011. Boðaður er 22,1 % niðurskurður á heildarframlögum til HSA og þar af 52 % niðurskurður á sjúkrasviði stofnunarinnar sem koma mun mjög harkalega niður á starfsemi Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað (FSN) og lama starfsemi þess. Í Fjarðabyggð verður til fjórðungur gjaldeyristekna þjóðarinnar innan hinna sterku fyrirtækja í iðnaði og sjávarútvegi en taka verður tillit til þessarar miklu starfsemi og öryggis starfsmanna þeirra. Eitt af lykilatriðum í þeirri ákvörðun Alcoa að reisa álver sitt á Reyðarfirði var nálægð við sjúkrahúsið í Neskaupstað og öflug heilsugæsla í fjórðungnum. Verði af þessum aðgerðum ber að hafa í huga þær vegalengdir sem íbúar Austurlands munu þurfa að leggja á sig til að sækja sjúkrahúsþjónustu til Akureyrar og Reykjavíkur en þær munu veikja verulega öryggissjónarmið innan fjórðungsins að ótöldum þeim hundruðum sjómanna sem stunda veiðar út af Austurlandi.. Þá sé horft til náttúruhamfara sem, eins og dæmin sýna, hafa skollið á byggðarlögum. Má í því sambandi nefna snjóflóðin í Neskaupstað 1974. Niðurskurðaráform stjórnvalda munu án nokkurs vafa leiða til aukins atvinnuleysis á Austurlandi, meðal annars í kvennastörfum sem skortur er á hér um slóðir, og fýsileiki svæðisins til búsetu og atvinnurekstrar minnkar til muna.
Því skora áðurnefndir aðilar á heilbrigðisráðherra að endurskoða boðuð niðurskurðaráform. Alþingismenn Norðausturkjördæmis eru hvattir til að beita sér fyrir endurskoðun á fjárheimildum til HSA eins og þau liggja nú fyrir.
Ályktun samþykkt með 9 atkvæðum.
Liður 2.17. - Ráðningarsamningur við bæjarstjóra - borinn upp sérstaklega og samþykktur með 9 atkvæðum.
<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Fundargerð samþykkt að öðru leyti af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
2.1
Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2011 - Bæjarráð
2.2
Edduborgarreiturinn Eskifirði - umgengni
2.3
Lóðarframkvæmdir við Breiðablik
2.4
Kynning á tillögu að starfsleyfi fyrir Alcoa Fjarðaál
2.5
Samvinna vinabæja Fjarðabyggðar
2.6
Aðalfundur HAUST bs. 2010
2.7
Ráðstefna um almannavarnir sveitarfélaga 21.október 2010 á Grand Hótel Reykjavík
2.8
Hættumat fyrir Oddsskarð
2.9
Árgjöld sveitarfélaga til Avinnuþróunarsjóðs Austurlands
2.10
Aðalfundur Raflagna Austurlands 16.september 2010
2.11
Kynningarfundur vegna rannsókna á samfélagsáhrifum álvers- og virkjunarframkvæmda
2.12
Fyrirspurn um Samband sveitarfélaga á Austurlandi og Fjarðabyggð
2.13
Fundur sveitarstjórnar með fjárlaganefnd Alþingis haustið 2010
2.14
Íslandshátíð í Gravelines
2.15
Hluthafafundur 1.október 2010 í Lánasjóði sveitarfélaga
2.16
Samningur við bæjarstjóra
2.17
Beiðni um styrk vegna útgáfu á geisladisk
3.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 4
Enginn tók til máls.
Fundargerð samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
3.1
Kynning á innleiðingu "grænu tunnunnar"
3.2
Tillaga að breytingum á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008 -2028
3.3
Gerð deiliskipulags fyrir sumarbústaði.
3.4
Aðgengismál við sundlaug Norðfjarðar
3.5
Gilsbakkalækur, grenndarkynning
3.6
750 Skólavegur 36a-Umsókn um breytingu á lóð
3.7
Merking safnahússins í Norðfirði
3.8
Ósk um uppsetingu á skilti
3.9
Beiðni um framkvæmdir við hesthúsabyggð á Fáskrúðsfirði
3.10
Verðkönnun á rifi og urðun SÚN-bryggjunnar á Norðfirði
3.11
Samþykkt um katta-hunda- og annara gæludýra
3.12
Endurnýjun á aðveitulögn Rafveitu Reyðarfjarðar
3.13
Egilsbúð, klæðning utanhúss
3.14
Franski spítalinn við Hafnarnes
3.15
Endurskoðun á umferðasamþykkt
3.16
Samningur um veghald þjóðvega í þéttbýli 2010
3.17
Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2011-Eigna-skipulags- og umhverfinefnd
3.18
Fjárhagsáætlun 2011 - Fjárfestingaáætlun
3.19
Landbúnaðarnefnd - 2
4.
Atvinnu- og menningarnefnd - 3
Til máls tók Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
5.
Félagsmálanefnd - 2
Enginn tók til máls.
Fundargerð samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
6.
Hafnarstjórn - 74
Enginn tók til máls.
Fundargerð samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
6.1
Undirbúningsvinna vegna komu skemmtiferðaskipa
6.2
Verðkönnun á rifi og urðun SÚN-bryggjunnar á Norðfirði
6.3
Aðstaða í smábátahöfninni á Norðfirði
6.4
Merking safnahússins í Norðfirði
6.5
Listaverkakaup við höfnina á Reyðarfirði
6.6
Framhald fyrirspurnar frá hafnarstjórnarfundi 21. júlí 2010 um kræklingaeldi innan hafnarsvæði
6.7
Móttaka skipa á Norðfirði
6.8
Framkvæmdir við bæjarbryggju á Norðfirði
6.9
Fjárhagsáætlun 2011
7.
Barnaverndarnefnd - fundur nr. 2
Enginn tók til máls.
Fundargerð samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.