Fara í efni

Bæjarstjórn

82. fundur
2. desember 2010 kl. 16:00 - 18:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson ritari bæjarstjórnar
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2011
Málsnúmer 1009099

Bæjarstjóri fylgdi áætluninni úr hlaði með greinargerð.

Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Guðmundur Þorgrímsson og Páll Björgvin Guðmundsson.

Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa fjárhagsáætlun 2011 fyrir Fjarðabyggð og stofnanir til síðari umræðu 16.desember.
2.
Bæjarráð - 223
Málsnúmer 1011014F
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Páll Björgvin Guðmundsson og Guðmundur Þorgrímsson.
Bókun Fjarðalistans varðandi 4.lið fundargerðar bæjarráðs nr. 223.

"Bæjarfulltrúar Fjarðalistans styðja ákvörðun bæjarráðs þess efnis að veita ekki þann styrk til  Ungmenna og íþróttasambands Austurlands (ÚÍA) sem beðið er um í 4.lið í fundargerð 223. fundar bæjarráðs. Við leggjum þó áherslu á mikilvægi íþróttastarfs og horfum þar m.a. til forvarnagildis þess en ekki síður mikilvægi þeirrar starfsemi varðandi ímynd og markaðssetningu Fjarðabyggðar. Þess vegna teljum við mikilvægara að þeir fjármunir sem veittir eru í þennan málaflokk fari óskiptir til starfsemi íþróttafélaga innan Fjarðabyggðar. ÚÍA er ekki með lögheimili í Fjarðabyggð og við viljum sjá starfsemi sambandsins með skýrari hætti hér í Fjarðabyggð áður en við tökum þátt í að veita þann styrk sem beðið er um"  

Fundargerð bæjarráðs frá 29.nóvember samþykkt með 9 atkvæðum.

2.1 Endurskoðaður samningur um hlutverk Skólaskrifstofu Austurlands
2.2 Aðalfundur Leikfélags Reyðarfjarðar 2010 - Ályktun
2.3 Árgjöld sveitarfélaga til Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands
2.4 Framlög til starfsemi Ungmenna og íþróttasambands Austurlands 2011
2.5 Jólasjóður - aðstoð fyrir jólin
2.6 Lok afskriftartíma grunnskóla frá ríki til sveitafélaga
2.7 Íbúsamtök Eskifjarðar - Fyrirspurnir til bæjarráðs í nóvember 2010
2.8 Gjaldskrá í íþróttamannvirkjum og skólum 2011
2.9 Gjaldskrá félagslegrar heimaþjónustu
2.10 Gjaldskrá fyrir hunda- og kattarhald í Fjarðabyggð árið 2011
2.11 Gjaldskrá Sorpmiðstöðvar fyrir árið 2011
2.12 Gjaldskrár Hitaveitu Fjarðabyggðar árið 2011
2.13 Gjaldskrá Vatnsveitu Fjarðabyggðar, aukavatnsskattur
2.14 Fundagerð 781.fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga
2.15 Leiga á lóð á Hjallaleiru
2.16 Fjárhagsáætlun 2011
3.
Fræðslu- og frístundanefnd - 7
Málsnúmer 1011015F
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar frá 24.nóvember samþykkt með 9 atkvæðum.
4.
Fundargerðir félagsmálanefndar 2010
Málsnúmer 1011073
Enginn tók til máls.
Fundargerð félagsmálanefndar frá 22.nóvember samþykkt með 9 atkvæðum.