Fara í efni

Bæjarstjórn

84. fundur
21. desember 2010 kl. 16:00 - 18:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson ritari bæjarstjórnar
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 224
Málsnúmer 1011019F
Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umræðu og afgreiðslu.
Til máls tóku:  Jón Björn Hákonarson, Jens Garðar Helgason, Valdimar O Hermannsson, Elvar Jónsson, Sævar Guðjónsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Stefán Már Guðmundsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Guðmundur Þorgrímsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir.
Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.  
1.1 Samningur um rekstur Félagsheimilisins Egilsbúðar.
1.2 Samdráttur í löggæslu í Fjarðabyggð
1.3 Umsókn um uppbyggingarstyrk vegna golfvalla GKF 2010-2012
1.4 Hluthafafundur - Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf 7.desember 2010
1.5 740 Kauptilboð, Nesbakki 19, íbúð 0202
1.6 Rekstrarstyrkur við Sjónarhól 2011
1.7 Íbúsamtök Eskifjarðar - Fyrirspurnir til bæjarráðs í nóvember 2010
1.8 Reglur um heimaþjónustu
1.9 Reglur um daggæslu barna í heimahúsum
1.10 Reglur um fjárhagsaðstoð
1.11 Reglur um sérstakar húsaleigubætur
1.12 Tilfærsla málefna fatlaðra til sveitarfélaga
1.13 Fundargerðir barnaverndarnefndar 2010
1.14 Hafnarstjórn - 78
2.
Bæjarráð - 225
Málsnúmer 1012003F
Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umræðu og afgreiðslu.
Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
2.1 Jarðhitaleitarstyrkir 2010
2.2 Jarðhitaleit í Fjarðabyggð, Reyðarfirði
2.3 Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð_2011
2.5 Gamli bæjarkjarninn í Búðarþorpi á Fáskrúðsfirði
2.6 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2011 - Bæjarráð
2.7 Málefni Björgunarsveitanna í Fjarðabyggð
2.8 Atvinnumál á Stöðvarfirði
2.9 Endurskoðaður samningur um hlutverk Skólaskrifstofu Austurlands
2.10 Rekstur Egilsbúðar
2.11 Upplýsingatæknimál - nýr stjórnenda og starfsmannavefur
2.12 Úrelding á tankbíl slökkviliðs
2.13 Hluthafafundur - Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf 7.desember 2010
2.14 Kjaramálanefnd sambandsins
2.15 Lokun bæjarskrifstofu 24. og 31.desember 2010
2.16 Aðalfundur Sjóminjasafns Austurlands haldinn 22.desember 2010
2.17 Íþrótta- og skólaakstur 2011
2.19 Gjaldskrá í íþróttamannvirkjum og skólum 2011
2.20 Fjárhagsáætlun 2011
2.21 Fræðslu- og frístundanefnd - 8
2.22 Atvinnu- og menningarnefnd - 7
2.23 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 10
3.
Bæjarráð - 226
Málsnúmer 1012009F
Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umræðu og afgreiðslu.
Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
3.1 Niðurskurður í heilbrigðismálum á Austurlandi
3.2 Fjárhagsáætlun 2011
3.3 Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2011
3.4 Bréf frá foreldrafélagi leikskólans Sólvalla vegna innheimtuaðgerða
3.5 Íslandsmeistaramót í Skák á Austurlandi
3.6 Hluthafafundur Raflagna Austurlands 22.desember
3.7 Lokun Landsbankans á Stöðvarfirði
3.8 Athugasemdir forstöðumanna bókasafna við fyrirhugaðan niðurskurð á grunnþjónustu safnanna á fjárhagsáætlun 2011
3.9 Verkefnastjóri - æskulýðs- og íþróttamál
3.10 Snjóflóðavarnir Tröllagili Norðfirði.
3.11 Fundargerðir barnaverndarnefndar 2010
4.
Hafnarstjórn - 78
Málsnúmer 1011017F
Til máls tóku:  Sævar Guðjónsson, Stefán Már Guðmundsson, Guðmundur Þorgrímsson.
Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
4.1 Fundargerð 333. fundar Hafnasambands Íslands
4.2 Endurbygging Barksins
4.3 Mengunarvarnamál
4.4 Móttaka skipa á Norðfirði
4.5 735 Tillaga að frágangi fjöru frá frystihúsbryggju út fyrir sýsluskrifstofu.
4.6 Smábátahöfn Stöðvarfirði
4.7 Áfamhaldandi framkvæmdir við klæðningu á Gamla garðinn á Stöðvarfirði
4.8 Smábátahöfn Eskifirði
4.9 Fjárhagsáætlun 2011
5.
Fræðslu- og frístundanefnd - 8
Málsnúmer 1012001F
Til máls tóku:  Eydís Ásbjörnsdóttir.
Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum. 
6.
Atvinnu- og menningarnefnd - 7
Málsnúmer 1011013F
Til máls tóku:  Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Jens Garðar Helgason, Stefán Már Guðmundsson, Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson.
Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
7.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 10
Málsnúmer 1012004F
Enginn tók til máls.
Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
7.1 Starfsáætlun eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar 2011
7.2 Deiliskipulag fyrir Ósinn á Fáskrúðsfirði
7.3 Deiliskipulag Nes 1, óveruleg breyting vegna skiptingu lóðar 23
7.4 735 Deiliskipulag innan Bleiksá að Norðfjarðarvegi
7.5 735 Tillaga að frágangi fjöru frá frystihúsbryggju út fyrir sýsluskrifstofu.
7.6 Egilsbraut 9 - sundlaug Norðfjarðar
7.7 Kynning á þjónustu fyrirtækisins Plan 21 ehf
7.8 Fundur 1.desember 2010 - fundagerð
7.9 Skýrsla um starfsemi nefndarinnar 2002-2008
7.10 740 Kauptilboð, Nesbakki 19, íbúð 0202
7.11 Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð_2011
7.12 Gjaldskrá Sorpmiðstöðvar fyrir árið 2011
7.13 Íbúsamtök Eskifjarðar - Fyrirspurnir til bæjarráðs í nóvember 2010
7.14 Jarðhitaleitarstyrkir 2010
7.15 Jarðahitaleit í Fjarðabyggð, Reyðarfirði
7.16 Niðurfelling hundaleyfisgjalda v/minkaveiðihunda
7.17 Fjarðaál Gámur við 570 - stöðuleyf
7.18 Rekstur í kjallara Strandgötu 25 735
7.19 Umsókn stöðuleyfi fyrir vegaskilti
7.20 755 Fjarðarbraut 41 - Breytt notkun
7.21 Afgreiðslur byggingafulltrúa - 14
8.
Fundargerðir barnaverndarnefndar 2010
Málsnúmer 1011072
Fundargerðir nr. 5 og 6 teknar til umræðu og afgreiðslu saman.
Enginn tók til máls.
Fundargerðir samþykktar með 9 atkvæðum.
9.
Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð_2011
Málsnúmer 1012079
Enginn tók til máls.
Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
10.
Reglur um fjárhagsaðstoð
Málsnúmer 1009112
Forseti fylgdi reglunum úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
11.
Reglur um heimaþjónustu
Málsnúmer 1011149
Forseti fylgdi reglunum úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
12.
Reglur um daggæslu barna í heimahúsum
Málsnúmer 1011152
Forseti fylgdi reglunum úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
13.
Reglur um sérstakar húsaleigubætur
Málsnúmer 1011151
Forseti fylgdi reglunum úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
14.
Deiliskipulag fyrir Ósinn á Fáskrúðsfirði
Málsnúmer 1007031
Forseti fylgdi deiliskipulaginu úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
15.
Fjárhagsáætlun 2011
Málsnúmer 1009099
Bæjarstjóri fylgdi áætluninni úr hlaði og gerði grein fyrir breytingum skv. greinargerð fjármálastjóra sem gerðar hafa verið á fjárhagsáætluninni milli umræðna.
Til máls tóku:  Elvar Jónsson, Jens Garðar Helgason, Jón Björn Hákonarson, Guðmundur Þorgrímsson,
 

Bókun Fjarðalistans varðandi 84. fundar bæjarstjórnar.  Almenn mál 2, liður 15<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

"Eitt helsta eðli stjórnmála eru málamiðlanir.  Við, bæjarfulltrúar Fjarðalistans,  höfum  verið  með í ráðum allt fjárhagsáætlunarferlið og sjónarmið okkar verið tekin til greina.  Við viljum taka þátt í því að taka á fjárhagslegri stöðu sveitarfélagsins af ábyrgð og raunsæi.

Það er oft þunn lína á milli þess að skera niður þjónustu og hagræða. Er það mat okkar að hér sé fyrst og fremst um hagræðingu að ræða þar sem lögbundinni grunnþjónustu er hlíft. Einnig viljum við sérstaklega geta þess að hluti af hagræðingarkröfunni í íþrótta-, tómstunda og fræðslumálum er sett inn í vinnuhóp sem á að koma með tillögur að einstaka aðgerðum. Þessar aðgerðir koma svo til afgreiðslu og þá munum við taka afstöðu til þeirra eins og aðrir bæjarfulltrúar.

Varðandi gjaldskrárhækkanir var m.a samstaða um að hækka ekki gjaldskrár leik- og grunnskóla og að  b-hluta fyrirtækin séu ekki rekin með tapi.

Einnig viljum við minna á það að bæjarstjórn er fjölskipað stjórnvald og því hefur það litla þýðingu að sitja hjá þó það sé vissulega valmöguleiki.  Í ljósi þessa þá samþykkja bæjarfulltrúar Fjarðalistans frumvarp að  fjárhagsáætlun árið 2011 en  vitnum að öðru leiti til málflutnings okkar í umræðum um fjárhagsáætlun hér á vettvangi bæjarstjórnar. 

 "

Elvar Jónsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Stefán Már Guðmundsson (sign)

 

Bókun frá bæjarfulltrúum Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks

 

"Bæjarfulltrúar Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks fagna þeirri samstöðu sem ríkt hefur á milli stjórnmálaflokkanna sem fulltrúa eiga í bæjarstjórn Fjarðabyggðar við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins fyrir árið 2011. Hafa flokkarnir unnið að því verki sem enginn væri meiri- eða minnihluti sem er mikill styrkur þegar unnið er að gerð fjárhagsáætlunar í því árferði sem nú ríkir í íslensku samfélagi. Þá er þessi samvinna í takt við þá kröfu samfélagsins til kjörinna fulltrúa í dag að menn leggi til hliðar átakastjórnmál og vinni að heilindum og samvinnu við stjórn sveitarfélagsins að kosningum loknum."

Jón Björn Hákonarson, Jens Garðar Helgason, Sævar Guðjónsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Valdimar O Hermannsson, Guðmundur Þorgrímsson.

 

 

 

Niðurstöður fjárhagsáætlunar 2011 fyrir Fjarðabyggð og stofnanir með áorðnum breytingum sbr. greinargerð fjármálastjóra.
 
Tölur í þús. kr. Rekstrar-niðurstaða Fjárfesting Afborganir lána* Sala eigna Langtíma-lántaka
Samst.A-hluta     13.533       95.000      389.151     30.000      100.000
Samst.B-hluta   196.343     191.500     212.413               0                 0
Samst.AogB hluta 209.876 286.500      601.564     30.000      100.000
*afborganir langtímalána og leiguskulda
 
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana samþykkt með 9 atkvæðum.
Forseti las ljóð fyrir bæjarfulltrúa. Bæjarstjórn óskar íbúum fjarðabyggðar gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.