Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
11. fundur
3. janúar 2011
kl.
16:30
-
18:30
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Jóhann Eðvald Benediktsson
Mannvirkjastjóri
Dagskrá
1.
Axarvegur, Hringvegur í Skriðdal og Hringvegur um Berufjarðarbotn - Frummatsskýrsla
Farið yfir frummatsskýrslu vegna Axarvegar, hringsvegs í Skriðdal og hringsvegs um Berufjarðarbotn. Athugasemdarfrestur vegna skýrslunnar er til 7. janúar 2011. Málið rætt og sviðstjóra falið að koma áherslum nefndarinnar til skipulagsstofnunnar.
2.
Gamli bæjarkjarninn í Búðarþorpi á Fáskrúðsfirði
Lögð fram tillaga eiganda Kaupvangs á Fáskrúðsfirði " Byggðin við Krókinn" þeirra Bærings Bjarnar Jónssonar og Birnu Baldursdóttur. Tillagan hefur áður fengið umfjöllun í bæjarráði 14. desember síðastliðin og var vísað til umfjöllunar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd. Nefndin fagnar frumkvæði tillöguhöfunda og felur sviðstjóra að halda áfram með málið, í samvinnu við hagsmunaaðila, svo sem tillöguhöfunda, íbúasamtökin, Loðnuvinnsluna og Minjavernd. Lagt er til að tillagan verði skoðuð með hliðsjón af flutningi á Franska spítalanum.
3.
Umsókn um styrk til úrbóta á ferðamannastöðum fyrir árið 2011
Lagðar fram til kynningar umsóknir til Ferðamálastofu, en umsóknar frestur var 20. desember síðastliðin. Sótt var um styrki til uppbyggingu ferðamannastaðanna við Helgustaðarnámu, Hólmanesi og Söxu.
4.
Gjaldskrár Rafveitu Reyðarfjarðar fyrir árið 2011
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að vísa tillögu að nýrri dreifigjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar til afgreiðslu bæjarráðs. Ný gjaldskrá mun taka gildi 1. febrúar 2010. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Þann 26. nóvember síðastliðinn var sótt um heimild Orkustofnunnar til að hækka gjaldskrá dreifingar um 3 % til að nýta tekjumörk Rafveitu Reyðarfjarðar. Fyrir liggur samþykki Orkustofnunnar. Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011 var gert ráð fyrir umræddri hækkun.
5.
94.fundur Heilbrigðiseftirlit Austurlands
Fundargerð 94. fundar Heilbrigðiseftirlits Austurlands lögð fram til kynningar.
6.
Heimildarlausar framkvæmdir í landi Fjarðar 1 í Mjóafirði
Lulu Munk byggingarfulltrúi kom inn á fundinn.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Farið yfir framkvæmdir í landi Fjarðar 1 í Mjóafirði. Lagt fram svarbréf byggingarfulltrúa, dagsett 20. desember, ásamt bréfi landeiganda, dagsett 29. desember síðastliðinn. Nefndin fór yfir málið og felur byggingafulltrúa að svara bréfi landeiganda.
7.
Umgengismál á Stöðvarfirði
Lagt fram bréf til kynningar, dagsett 11. nóvember frá Garðari Harðarsyni um umgengnismál á Stöðvarfirði. Nefndin fór yfir bréfið.
8.
Afgreiðslur byggingafulltrúa - 15
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd staðfestir afgreiðslu byggingarfulltrúa.